top of page
2028 Kirgistan ævintýraferð í maí

20. maí - 1. júní 2028

Kirgistan er landlukt ríki í hjarta Mið-Asíu og á landamæri að Kasakstan í norðri, Kína í austri, Tadsíkistan í suðri og Úsbekistan í vestri. Stór hluti landsins tilheyrir Tíansjan-fjallgarðinum og fjöllin setja sterkan svip á landslag, búsetu og menningu þjóðarinnar. Hirðingjahefðir eiga sér djúpar rætur og enn í dag flytja sumar fjölskyldur með búfé sitt á sumarhaga og dvelja þar í hefðbundnum jurtum.


Íbúar landsins eru um 7,5 milljónir og Bishkek er bæði höfuðborgin og stærsta borg landsins. Kirgisar eru meirihluti þjóðarinnar en þar búa einnig fjölmennir hópar Úsbeka, Rússa og fleiri þjóðarbrota. Kirgiska er tyrkneskt mál og er opinbert mál ásamt rússnesku. Meirihluti landsmanna er múslimatrúar, einkum súnní-múslimar. Menning landsins mótast af tyrkneskum og miðasískum arfi, hirðingjahefðum og áhrifum frá tímum Rússaveldis og Sovétríkjanna. 


Ferðin er hönnuð fyrir fróðleiksfúsa og ævintýragjarna ferðalanga sem vilja kynnast nýjum slóðum. Hún hentar sérstaklega þeim sem hafa áhuga á náttúru, menningu og útivist og vilja jafnframt komast í náin kynni við heimamenn og lífshætti þeirra.


Við ferðumst um tignarleg fjöll, gróðursæla dali, hrikaleg gljúfur og afskekktar byggðir og fylgjum tærum fjallavötnum. Á leiðinni göngum við að fallegum útsýnisstöðum og skoðum sérstök náttúrufyrirbæri, en höfum jafnframt nægan tíma til að njóta umhverfisins, fræðast um sögu og menningu landsins og upplifa Kirgistan í rólegheitum.


Ferðaþjónusta fer vaxandi í Kirgistan og landið höfðar ekki síst til ferðalanga sem sækjast eftir víðáttumikilli náttúru, lifandi menningu og áfangastöðum utan fjölförnustu ferðamannaleiðanna.

unnamed.jpg

HÉhttps://agustasigrun.wixforms.com/f/7362327743322653421R er hægt að forskrá sig í ferðina og tryggja sér forskráningarverð.


Gistingin sem boðið er upp á er af ýmsum toga. Í höfuðborginni er gist á 4ra stjörnu hóteli með loftkælingu. Annars er gist á hótelum og gistiheimilum en auk þess verður gist tvær nætur í Yurt hirðingjatjöldum.


Nokkrar gönguferðir verða í boði sem geta verið allt frá 2 km upp í 12-15 km, en lengsti göngudagurinn er líka valkvæður. 


Búast má við að við leggjum af velli um 1200-1500 km af akstri í ferðinni. 


Kirgistan hefur verið hluti af ýmsum menningarsvæðum og stórveldum. Landið var hluti af Silkiveginum og öðrum verslunarleiðum um Mið-Asíu. Vegir silkileiðarinnar fornu eru allir að fá andlitslyftingu undir verkefninu „Belti og braut" sem er stórtækt samgöngu- og viðskiptaverkefni kínverskra stjórnvalda. 


Í tengslulm við þetta hafa vegaframkvæmdir staðið yfir í þrjú ár í Kirgistan  á þeim að vera lokið árið 2029. Sumsstaðar eru vegirnir tilbúnir en vegavinna og brúarframkvæmdir í gangi á öðrum stöðum. 


Sjá má nánar í ferðlýsingunni fyrir hvern dag fyrir sig hvað má búast við af göngum og akstri á hverjum degi.


Hópurinn verður að hámarki 15 manns og verður saman í einum bíl af gerðinni Sprinter.


Pistlar frà Flandrr um Kirgistan

Kyrgyz Adventur Travel

Áætlað er að ferðin verði 20. mai til 1. júní 2028 en getur færst til um nokkra daga þegar flugáætlun er komið í loftið.


Maí og júní mánuður er upplagðir til ferðalaga til Kirgistan. Þá er vorið komið og blómlegt um að litast. 

Kvöldin inn til fjalla eru svöl en í höfuðborginni getur hitinn farið upp í 28-30°C yfir hádaginn. Upp til fjalla þar sem gist er í Yurt tjöldum getur hitastigið á kvöldin og nóttunni farið niður í 5°C en tjöldin eru kynnt. Úrkoma er venjulega ekki mikil á þessum árstíma.


Handhafar íslenskra vegabréfa þurfa ekki vegabréfsáritun og mega dvelja í landinu í allt að 60 daga. 


Tímamismunurinn er 6 tímar. Kirgistan er 6 tímum á undan Íslandi.


Kyrgyz Adventure Travel, ferðaskipuleggjanda í Kirgistan, er þarlendur samstarfsaðili. Flandrr – ferðamiðstöð er umsjónaraðili. Fiðrildaferðir eru söluaðili ferðarinnar og sér um bókanir, innheimtu, skilmála og tryggingar skv. ferðaskrifstofuleyfi nr.2024-031 gefnu út af Ferðamálastofu. Nánari upplýsingar um ferðaskrifstofuna of skilmála hennar má sjá á heimasíðunni www.fidrildi.is 


Þú getur skráð þig á HNIPP-lista til að fylgjast með gangi mála.

Verðið liggur ekki fyrir en miðað við verðið á ferðinni undanfarin tvö ár mú búast við að hún verði á bilinu 500-600.000 kr. á mann í tvíbýli. Einungis 1-2 einstaklingsherbergi verða í boði og því um að gera að skrá sig strax.


Innifalið: Flug báðar leiðir. Gisting með morgunverði í átta nætur á hóteli/gistiheimilum og tvær nætur í Yurt tjöldum. Þægileg rúta með loftkælingu. Reyndur bílstjóri fylgir hópnum allan tímann. Enskumælandi staðarleiðsögumaður allan tímann og íslenskur fararstjóri. Fullt fæði allan tímann. nema hádegisverður tvo dagana. Einn líter af vatni á hverjum degi. Allt sem talið er upp í ferðalýsingu, nema annað sé tekið fram.


Ekki innifalið: Þjórfé. Áfengir drykkir. Valkvæð dægradvöl og annað sem sérstaklega er tekið fram að sé ekki innifalið í ferðalýsingu.


Hér er kynningarmyndband á ensku um Kirgistan

Íslenskur fararstjóri verður Ágústa Sigrún Ágústsdóttir. Hún hefur farið með tvær ferðir til Kirgistan sem hafa báðar selst upp. Hún er því búin að koma sér upp góðum samböndum í Kirgistan og vinnur náið í samráði við þarlendan eiganda og skipuleggjanda ferðarinnar.  Skipulag ferðarinnar eftir þessa reynslu hefur verið uppfært og aðlagað til að innifela sem mest og kynnast sem flestu.


Ágústa Sigrún er menntaður leiðsögumaður frá Leiðsöguskóla Íslands og hefur unnið við fararstjórn á Ítalíu, Króatíu og Slóveníu yfir 20 ár. Hún hefur einnig starfað sem leiðsögumaður á Íslandi fyrir ítölsku- og enskumælandi ferðamenn um Ísland. 


Þarlendur leiðsögumaður fylgir hópnum allan tímann og segir frá fræðir á ensku. 


Ágústa Sigrún heldur úti ferðabloggi undir nafninu Flandrr ferðamiðstöð þar sem hún varpar upp áhugaverðum vinklum um ýmislegt tengt ferðalögum: www.flandrr.is Þar er er að finna nokkra pistla um Kirgistan.

dagur 1 - Ferðadagur

Flug frá Íslandi og lent að morgni á Manas flugvelli í Bishkek, höfuðborgar Kirgistan.

dagur 2 - Koma til Bishkek og skoðunarferð um borgina.

Ferðin hefst með flugi frá Íslandi til Bishkek. Tekið verður á móti hópnum á flugvellinum og ekið á Plaza Hotel.
Nákvæm dagskrá dagsins ræðst af endanlegum flugtímum. Ef komið verður að kvöldi eða nóttu verður lögð áhersla á hvíld og rólega byrjun á ferðinni.

Eftir hádegisverð er stefnt á borgarferð þar sem heimsækjum Ala-Too torgið sem er hjarta borgarinnar og þar sem ríkissögusafnið er staðsett. Bishkek er þekkt sem grænasta borgin í Mið-Asíu, þökk sé ótal görðum og göngustígum sem gera borgina að frábærum stað til að búa.

Um kvöldið borðum við á skemmtilegum veitingastað í borginni þar sem við fáum að smakka dýrindis kirgiska þjóðarrétti.

Hotel Plaza: https://www.plazahotel.kg/en/

unnamed.jpg
dagur 3 - Þjóðgarðurinn Ala Archa

Um morguninn ökum við til þjóðgarðsins Ala Archa sem er í um 35 km fjarlægð frá höfuðborginni. Við skoðum okkur um á þessum fallega stað og virðum fyrir okkur snævi þakta fjallstinda, á og læki með fallega fjallasýn. Við kaupum okkur nesti á leiðinni og verjum bróðurpartinum af deginum á þessum fallega stað. Einnig er möguleiki á að dvelja áfram í Bishkek.

Þegar komið er inn í garðinn verða tvær útfærslur af gönguferðum í boði. Allir Það ganga saman fyrstu 2 km af leiðinni og svo halda þeir sem vilja lengri göngu áfram með leiðsögumanni og fara hina svokölluðu árleið.

1) Létt ganga, ca. 4 km á malbikuðum göngustíg. Mjög lítil hækkun. Hægt er að rölta um svæðið og njóta þess sem garðurinn hefur upp á að bjóða.

2) 12-15 km ganga eftir blönduðum stígum. Hækkun ca. 250 m. Ætlaður göngutími er ca. 3,5 klst.

Akstur ca. 35 km hvora leið.

Borðað á fallegum veitingastað í borginni um kvöldið og áfram gist á Plaza hotel.

unnamed (1).jpg
dagur 4 - Toktogul Arkyt og Sary Chelek

Við leggjum af stað frá Bishkek og förum yfir fjallaskörðin Too Ashuu og Ala Bel. Leiðin liggur um Suusamyr-dalinn, mikilvægt sumarbeitiland þar sem hirðingjafjölskyldur dvelja með júrtur sínar og búfé þegar líður á sumarið.

Hádegisverður verður á litlu veitingahúsi á leiðinni. Síðan höldum við áfram að Toktogul, stærsta uppistöðulóni Kirgistans. Eftir komu í náttstað gefst tími til að ganga niður að vatninu og njóta útsýnisins.

Gisting: Kok Bel í Toktogul

unnamed (4).png
dagur 5 - Göngudagur í Sary Chelek

Ganga: 8–10 km, 4–6 klst., hækkun um 400–500 m; miðlungserfið

Dagurinn er helgaður Sary Chelek-lífhvolfsfriðlandinu. Gangan hefst við Sary Chelek-vatn og liggur um einiskóga, engi og fjallastíga að útsýnisstað yfir vatnið og dali svæðisins.

Þeir sem vilja ekki taka þátt í lengri göngunni geta átt rólegri dag við vatnið, gengið styttri leiðir, tekið myndir eða notið kyrrðarinnar. Einnig getur verið hægt að leigja hest með leiðsögumanni.

Eftir gönguna snúum við aftur til Arkyt og hvílum okkur fyrir kvöldverð.

Gisting: Gistiheimili í Arkyt

unnamed (2).jpg
dagur 6 - Sary Chelek og Chychkan gljúfur

Ganga: 4–6 km, 2–3 klst., hækkun um 150–250 m; létt til miðlungserfið

Við kveðjum Sary Chelek og höldum til Chychkan-gljúfursins, sem einkennist af grænum dölum, klettum og tærum fjallalækjum.

Eftir komu og innritun verður farið í náttúrugöngu um gljúfrið. Ef veður og færð leyfa liggur leiðin að fjallafossi um skóglendi og meðfram ánni.

Þeir sem vilja sleppa göngunni geta notið umhverfisins nær gististaðnum eða hvílt sig.
Gisting: Belek í Chychkan-gljúfri

unnamed (3).jpg
dagur 7 - Chychkan og Kochkor

Frá Chychkan liggur leiðin til Kochkor um fjalllendi, víða dali og hefðbundin þorp.

Kochkor er ein helsta miðstöð hefðbundins handverks í Kirgistan. Þar heimsækjum við vinnustofu og fylgjumst með sýnikennslu í gerð shyrdak, litríkra filtteppa sem tengjast menningu og hirðingjaarfi Kirgisa.

Að heimsókn lokinni verður innritun og frjáls tími fyrir kvöldverð.

Gisting: Mira Guesthouse í Kochkor

unnamed (4).jpg
dagur 8 - Issyk-Kul vatnið - tjaldgerð og arnarveiðar

Við höldum að Issyk-Kul-vatni og komum við í Kyzyl Tuu, þorpi sem er þekkt fyrir júrtugerð. Heimafólk sýnir okkur handverkið og hópurinn tekur þátt í að reisa litla júrtu.

Í Bokonbaevo hittum við arnarveiðimann og fræðumst um þessa aldagömlu hefð hirðingja. Hádegisverður verður borinn fram í júrtu á gistiheimili.

Síðan höldum við til Ton við suðurströnd Issyk-Kul. Þar gistum við í jurt-tjöldum og gefst tími til að njóta vatnsbakkans.

Gisting: Oimo Tash-júrtubúðir við Ton

unnamed (5).png
dagur 9 - Skazka ævintýragljúfrið, sjö nautshöfuð og Eco Village

Fyrsti viðkomustaður dagsins er Skazka, eða Ævintýragljúfrið, sem er þekkt fyrir litskrúðugar og sérkennilegar bergmyndanir. Þar gefst tími til að ganga um og skoða landslagið.

Við höldum áfram til Jety Oguz, þar sem rauðar klettamyndanirnar „Sjö nautshöfuð“ rísa yfir dalnum. Hádegisverður verður í jurt-tjaldi í gljúfrinu.

Síðdegis komum við í Eco Village. Eftir innritun verður frjáls tími; meðal annars getur verið hægt að leigja reiðhjól eða fara í sánu.

Gisting: Eco Village Lodge

unnamed (5).png
dagur 10 - Karakol borgin og Jyrgalan dalurinn afskekkti

Við heimsækjum Karakol, fjórðu stærstu borg Kirgistans. Þar skoðum við Dungan-moskuna, sem minnir á kínverska pagóðu, og timburkirkju heilagrar þrenningar.

Í hádeginu heimsækjum við Dungan-fjölskyldu. Þar fáum við mat og tökum þátt í matreiðslustund þar sem gerðar eru hefðbundnar Dungan-núðlur.

Síðan liggur leiðin inn í afskekktan Jyrgalan-dal. Jyrgalan var áður námubær en hefur á síðustu árum þróast sem fjallaþorp fyrir ferðafólk. Eftir komu verður hægt að rölta um þorpið og kynnast umhverfinu.

Gisting: Ala Kol Guesthouse í Jyrgalan

unnamed (5).png
dagur 11 - Semenovka gljúfur og Cholpon Ata

Fyrirhuguð ganga: 12,4 km, hækkun um 500 m

Við ökum frá Jyrgalan til Semenovka-gljúfursins. Þar liggur fyrirhuguð gönguleið upp eftir malarvegi um barrskóga og grænar fjallshlíðar að litlu fjallavatni.

Gengnir eru um 6,2 km hvora leið, samtals 12,4 km. Hækkunin er um 500 metrar og áætlaður göngutími rúmar þrjár klukkustundir, eftir hraða hópsins. Nesti verður borðað í gljúfrinu.

Að göngu lokinni höldum við til Cholpon Ata, þekktasta sumarleyfisbæjarins við Issyk-Kul. Á hótelinu er hægt að slaka á í heitum laugum.

Gisting: Ak Bermet Hotel í Cholpon Ata

unnamed (5).png
dagur 12 - Burana turninn og Bishkek

Við leggjum af stað frá Cholpon Ata klukkan 9 og ökum að Burana-turninum, sem stendur nærri Tokmok, um 80 km frá Bishkek. Turninn og fornleifasvæðið eru leifar Balasagyn, mikilvægrar borgar á Silkiveginum sem Karakhanídar stofnuðu á 9. öld. Á svæðinu má einnig sjá forna legsteina, grafhýsi og aðrar minjar úr sögu borgarinnar.

Við fylgjumst með sýningu á kok-boru, hefðbundinni hestaíþrótt Kirgisa, og borðum hádegisverð hjá kirgisískri fjölskyldu.

Eftir hádegisverð höldum við áfram til Chon Kemin-gljúfursins, sem er þekkt fyrir fallegt landslag og fjölbreytt dýra- og plöntulíf. Eftir komu á gistiheimilið verður hægt að ganga að fallegum útsýnisstað yfir gljúfrið og njóta víðáttumikillar fjallasýnar. Hækkunin er um 200 metrar. Þeir sem vilja geta farið á hestbak í stað göngunnar, en hestaferðin er ekki innifalin í verði.

Gisting: Plaza Hotel í Bishkek

unnamed (5).png
dagur 13 - Frjáls dagur í Bishkek

Dagurinn er frjáls og hægt að nota hann til að skoða Bishkek á eigin vegum, versla, heimsækja söfn eða hvíla sig eftir ferðina um landið.

Mælt er með heimsókn í hinn fræga Osh bazar markað. Um leið og stigið er inn á markaðinn hverfum við inn í austurlenska stemningu með fjölda fólks og mikla fjölbreytni í vörum og litagleði.

Gisting: Plaza Hotel í Bishkek

Daginn eftir verður svo haldi út á flugvöll og flugið tekið heim til Íslands

Uppruninn
  • Facebook
  • Instagram

Flandrr ferðamiðstöð varð til sem umgjörð og samnefnari fyrir ferðablæti Ágústu Sigrúnar.

 

Í hinu alræmda kófi magnaðist ferðaþráin mjög mikið og Ágústa ákvað að bjóða landsmönnum í sýndarferðalög í gegnum Zoom. Heimsferðir stukku strax á þessa hugmynd og þegar upp var staðið höfðu orðið til 10 sýndarferðalög og yfir 10.000 manns höfðu tekið þátt.

​

Í framhaldinu fannst henni eðlilegt að útfæra allan þann fróðleik sem hún hafði bætt við sig með einhverjum hætti og pistlaskrifin hófust. Í kjölfarið urðu til hugmyndir að ferðum sem mótast af hennar áhugasviði sem eru hreyfing, menning, tónlist og léttleiki.  

 

Íslensk ferðaskrifstofa selur ferðirnar og sér um bókanir, innheimtu, skilmála og tryggingar skv. ferðakskrifstofuleyfi  gefnu út af Ferðamálastofu.​

Flandrr ferðamiðstöð

© 2023 Flandrr. Website by CC Website Design.

bottom of page