top of page
Huldar slóðir Adríahafsins - Cres og Istría - gönguferð

29. ágúst - 5. september 2027

Dagskráin byggir á góðri staðþekkingu og áralöngum tengslum við svæðið og ýmsa birgja, meðal annars við litla framleiðendur, víngerðir og heimamenn. Þannig komumst við nær mannlífi og náttúru svæðisins og heimsækjum staði sem erfitt væri að finna á eigin vegum. Við kynnumst fjölbreyttum menningarperlum og sögulegum gersemum sem verða ekki svo auðveldlega á vegi hins venjulega ferðamanns.


Ferðin leiðir okkur um tvö ólík svæði við norðanvert Adríahaf. Á eyjunni Cres bíður okkar villt og hrjóstrugt landslag, gamlar fjárgötur, skógar, fjallshryggir og afskekktar víkur. Þaðan höldum við til Istríu þar sem landslagið verður grænna og vínekrur, miðaldaþorp og matarmenning taka við.


Þetta er ferð fyrir þá sem vilja vel skipulagðar gönguferðir með krefjandi gönguálagi en njóta líka góðs matar, víns og notalegrar gistingar að göngu lokinni. Hópurinn er lítill og áhersla lögð á góða blöndu af hreyfingu, upplifun og hvíld.


Ætlunin er að keyra og sigla alla leið í gistinguna á eyjunni Cres með þægilegu og gómsætu stoppi á leiðinni. 


unnamed (7).png
Gisting

Gist er á tveimur heillandi þriggja stjörnu gististöðum með persónulegan stíl eigenda.


Pansion Tramontana er lítið og notalegt gistiheimili í fögru og friðsælu umhverfi við hið forna þorp Beli á eyjunni Cres. Hér njótum við kyrrðarinnar, skógi vaxinna hlíða og útsýnis yfir Kvarner-flóa. Herbergin eru aðeins tólf, skreytt af listamönnum úr heimabyggð, og á veitingastaðnum er lögð áhersla á staðbundna matargerð og hráefni úr héraðinu.


Hotel Kaštel er fjölskyldurekið, þriggja stjörnu boutique- og heilsulindarhótel í 17. aldar höll efst í miðaldabænum Motovun á Istríaskaganum í Króatíu. Hótelið sameinar sögulegt umhverfi, stórbrotið útsýni yfir sveitirnar í kring, heilsulindaraðstöðu og einstaka staðsetningu í hjarta gamla bæjarins.


Hápunktar ferðarinnar
  • Fjölbreyttar gönguferðir um eyjuna Cres og Istríu-skagann.

  • Gamlar fjárgötur, skógar, fjallshryggir og  strandstígar.

  • Afskekktar víkur og tækifæri til að baða sig í Adríahafinu.

  • Heimagerður matur og hefðbundnir réttir.

  • Vínsmakkanir og staðbundnar kræsingar á Istríaskaganum.

  • Gisting á Pansion Tramontana í Beli á eyjunni Cres og Hotel Kaštel í Motovun á Istríaskaganum.


Ætlunin er að keyra og sigla alla leið í gistinguna á eyjunni Cres með þægilegu og gómsætu stoppi á leiðinni. Hámarksfjöldi þátttakenda er 15 manns.


HÉR er hægt að forskrá sig í ferðina og fá forskráningarafslátt.

Forskráningarverð í TVÍBÝLI per mann: 359.000 kr.

Gönguleiðir og álag


Upplýsingar um skipulag göngudaganna má finna í leiðarlýsingunni hér að neðan. Plan A miðast við vant göngufólk í góðu formi. Sumar leiðirnar liggja um villt og stórbrotið landslag Cres og Lošinj, meðal annars um Tramontana- og Osoršćica-fjallshryggina. Þar má gera ráð fyrir lengri göngudögum, grýttu landslagi og stöku köflum utan hefðbundinna göngustíga. Lengstu dagarnir geta verið allt að 6–7 klukkustundir með hléum. Plan B er léttari útfærsla.


Hámarksfjöldi þátttakenda er 15 manns.


Áherslan er á að hópurinn gangi og upplifi ferðina saman.


Æskilegt er að þátttakendur séu nokkuð jafnir að getu og úthaldi svo hópurinn geti gengið saman. Ekki er gert ráð fyrir að hópnum verði skipt upp eftir getu.


Endanlegt skipulega göngudaganna verður ákveðið þegar nær dregur og samsetning hópsins liggur betur fyrir. Úr fjölmörgum gönguleiðum er að velja og því er hægt að laga göngurnar að getu og úthaldi hópsins í heild. Ef samsetning hópsins kallar á minna gönguálag verða valdar léttari leiðir um skóga og meðfram ströndinni sem bjóða áfram upp á fallegt landslag og góða upplifun af náttúrunni. Þetta verður ákveðið fyrir brottför.


Þeir sem þurfa hvíld frá göngum geta auðveldlega sleppt einstaka göngudegi og dvalið í bænum Cres, rölt um á eigin vegum eða slakað á við ströndina.


HÉR er hægt að forskrá sig í ferðina.

Heimsferðir er ferðaskrifstofan á bak við ferðina og sér um bókanir, innheimtu, skilmála og tryggingar skv. ferðakskrifstofuleyfi nr. 2022-028 gefnu út af Ferðamálastofu.


Dagskrá er útgefin með fyrirvara um smávægilegar breytingar og tilfærslur á tímasetningum. Ítarlegri dagskrá með  verður gefin út þegar nær dregur.  


Innifalið í verði

Samgöngur og akstur

  • Flug til og frá Feneyjum með Icelandair.

  • Akstur til og frá Marco Polo flugvellinum í Feneyjum.

  • Tvær ferjugsiglingar á milli eyjarinnar Cres og meginlandsins.

  • Allur akstur á meðan ferðinni stendur, ásamt eldsneyti, bílastæðagjöldum, vegatollum og ferjugjöldum.

  • Hraðbátsferð frá Sveti Blaž að lokinni göngu.

Gisting, matur og drykkur

  • 5 nætur á Pansion Tramontana í Beli, með morgunverði og fjórum heimatilbúnum kvöldverðum.

  • 2 nætur á Hotel Kaštel í Motovun, með morgunverði.

  • Lokakvöldverður með hefðbundnum réttum frá Istríu á sérvöldum veitingastað.

  • Nesti í fjórar gönguferðir.

  • Vínsmökkun og staðbundnar kræsingar á einni af bestu víngerðum miðhluta Istríu.

  • Vínsmökkun á Parenzana-leiðinni undir leiðsögn faglærðs vínþjóns frá Istríu.

Leiðsögn og persónuleg þjónusta

  • Þarlendur göngu-, fjalla- og menningarleiðsögumaður fylgir hópnum alla ferðina, frá komu til brottfarar, og sér um leiðsögnina á ensku.

  • Farangursþjónusta við flutning milli gististaða. Farangurinn er fluttur beint á herbergi á meðan hópurinn nýtur      dagskrárinnar.

  • Íslensk fararstjórn.

  • Skjáfundur með fararstjóra fyrir brottför.


Ekki innifalið í verði

  • Ferðatryggingar

  • Þjórfé

  • Aðrar máltíðir en þær sem tilgreindar eru hér að ofan

  • Persónuleg útgjöld

Leiðsögn og fararstjórn


Luka Horvat hefur mikla ástríðu fyrir náttúru, útivist og óbyggðum og starfar sem fjallaleiðsögumaður og skipuleggjandi ferða. Hann þekkir Króatíu og Slóveníu afar vel og leitar gjarnan að áhugaverðum leiðum utan fjölförnustu ferðamannaslóðanna.


Þegar Luka setur saman nýjar ferðir kannar hann svæðin sjálfur, finnur gönguleiðir, staði og upplifanir sem eiga vel saman og byggir dagskrána á þeirri reynslu. Hann kann vel að meta blönduna af líflegum bæjum og borgum annars vegar og kyrrð fjallanna og náttúrunnar hins vegar.


Luka leggur áherslu á ferðir í litlum hópum og telur þær bæði persónulegri og sjálfbærari leið til að ferðast og kynnast nýjum stöðum.


Ágústa Sigrún Ágústsdóttir er íslenskur fararstjóri ferðarinnar og fylgir hópnum frá upphafi til enda. Hún vinnur náið með þarlendum leiðsögumanni og skipuleggjendum og heldur utan um heildina fyrir hönd hópsins. Hún þekkir svæðið af eigin raun, enda bjó hún þar um tíma. Í ferðinni deilir hún reynslu sinni og þekkingu á mannlífi og staðháttum.


Ágústa Sigrún er menntaður leiðsögumaður frá Leiðsöguskóla Íslands og hefur yfir 20 ára reynslu af fararstjórn á Ítalíu, í Króatíu og Slóveníu. Hún hefur jafnframt starfað sem leiðsögumaður á Íslandi fyrir ítölsku- og enskumælandi ferðamenn.


Hún heldur úti ferðablogginu Flandrr ferðamiðstöð, þar sem hún fjallar um ferðalög frá ýmsum sjónarhornum og segir frá stöðum, fólki og upplifun sem verða á vegi hennar: www.flandrr.is


Útbúnaðarlisti

Góðir en léttir gönguskór, utanvegaskór ættu að duga fyrir flesta. Ökklastuðningur alltaf góður samt. Göngustafir fyrir þá sem vilja. Hattur eða eitthvað til að hylja höfuðið er alveg nauðsyn, ásamt góðum sólgleraugum. Sólarvörn og varasalvi. Lítið handklæði til að þurrka svita. Kannski sessa. Lítill göngupoki og vatnsbrúsi til að fylla á. Mæli með síðbuxum, eða sem hægt er að fjarlægja skálmar af, til að lágmarka rispur á leggjum út af gróðri. Regn og/eða vindjakki. Kannski regnslá. Annar búnaður er undir hverjum og einum komið og hvað hentar best persónulega.

Dagur 1 – 29. ágúst – Flug frá Keflavík til Feneyja og áfram til eyjarinnar Cres

Flugtak í Keflavík kl. 08:20 og lent í Feneyjum kl. 14:45.
Við lendum á Marco Polo flugvellinum í Feneyjum þar sem Luka, leiðsögumaðuðrinn okkar, tekur á móti hópnum. Við keyrum sem leið liggur til Króatíu en á leiðinni höfum við viðdvöl á fallegum stað þar sem hádegisverður verður borinn fram fyrir okkur.

Eftir hressinguna höldum við áfram og siglum síðasta hluta ferðarinnar yfir á eyjuna Cres þar sem við gistum næstu fimm nætur.

Dagur 2 – 30. ágúst – Um skóga Tramontana

Fyrsta ganga ferðarinnar leiðir okkur inn í villt landslag norðurhluta Cres. Við hefjum gönguna nálægt Porozina og fylgjum gömlum fjárgötum um skóga og yfir opna hryggi áður en við komum niður að hinu sögulega þorpi Beli.

Gönguleiðin verður valin eftir getu og úthaldi hópsins en gera má ráð fyrir um fjögurra klukkustunda göngu.
Að göngu lokinni gefst tími til að slaka á og jafnvel synda við ströndina neðan Beli. Nesti er meðferðis í gönguna og um kvöldið bíður okkar heimagerður kvöldverður á Pansion Tramontana.

Plan A: Porozina > Beli um Tramontana fjallshrygginn
8 km | 3 klst | +282 m | −411 m

Plan A+: Porozina > Ivanje > Beli
10 km | 4:00 klst | + 433 m | -561 m

Plan B (léttari): 5.44 km | 2 klst | +227 m | −217 m

unnamed.jpg
Dagur 3 – 31. ágúst – Frá ólífulundum að falinni vík

Við höldum suður eftir eyjunni til bæjarins Cres. Gangan hefst meðal aldagamalla ólífutrjáa og liggur eftir gömlum stígum að afskekktri vík. Landslagið breytist smám saman úr ólífulundum og dæmigerðum Miðjarðarhafsgróðri yfir í laufskóga og opið útsýni yfir hafið.

Snemma síðdegis komum við niður að víkinni þar sem gefst tími til að synda, hvílast og njóta máltíðar undir berum himni, sem útbúin hefur verið fyrir okkur og borin fram með staðbundinni ólífuolíu.

Að því loknu sækir okkur hraðbátur og flytur okkur aftur til bæjarins Cres. Það sem eftir lifir dags er frjálst. Tilvalið er að rölta um þröngar götur gamla bæjarins, njóta stemningarinnar við höfnina eða velja sér veitingastað fyrir kvöldverð áður en haldið er aftur til Beli síðar um kvöldið.

Þetta verður einn fjölbreyttasti dagur ferðarinnar þar sem göngur, sjóböð, bátsferð og bæjarlíf fara saman.

Bærinn Cres > Sveti Blaž flóa
8.17 km | 3.5 klst | +302 m | −302 m

unnamed (1).jpg
Dagur 4 – 1. september – Hin villta strönd Cres

Í dag göngum við til Lubenice, örsmás steinþorps sem stendur hátt á stórbrotnum kalksteinsklettum yfir Adríahafinu.

Eftir að hafa skoðað þorpið göngum við niður að ströndinni fyrir neðan þar sem gefst tími til að synda í kristaltæru vatninu. Nesti er meðferðis og deginum varið úti í náttúrunni.

Plan A: Lubenice > strand- og skógargönguleiðir > Lubenice svæðið og ströndin
18 km | 7 klst + strandtími | +1,056 m | −693 m

Plan B (léttari): Lubenice þorpið > ströndin og Blue Grotto hellirinn> Lubenice þorpið
4.4 km | 2.5 h + strandtími | +404 m | −415 m

unnamed (4).png
Dagur 5 – 2. september – Osoršćica-fjallshryggurinn

Síðasta gangan á Cres leiðir okkur um Osoršćica-fjallshrygginn á suðurhluta eyjaklasans. Við hefjum gönguna nálægt Nerezine og fylgjum hryggnum áður en við göngum niður í hinn sögulega bæ Osor, þar sem eyjarnar Cres og Lošinj mætast.

Á leiðinni opnast víðáttumikið útsýni yfir eyjar Kvarner-flóans og Adríahafið.

Plan A: Nerezine > yfir Osoršćica fjallshrygginn > Osor
12 km | 6 klst | +662 m | −707 m
Plan B (léttari): Ustrine > Stivan > Merašćica ströndin
7.5 km | 2 klst | +129 m | −295 m

Einnig möguleiki fyrir einhverja á að taka hvíldardag og dvelja í Cres bænum eða slaka á við ströndina í eigin takti.

Um kvöldið kveðjum við Cres með sameiginlegum kvöldverði og förum yfir það sem á daga okkar hefur drifið í eyjadvölinni.

unnamed (2).jpg
Dagur 6 – 3. september – Frá Cres til vínekranna í Istríu

Nú breytir ferðin um svip. Við siglum yfir til meginlandsins ogkveðjum hrjóstrugt eyjalandslag Cres. Framundan eru grænar sveitir og vínhéruð Istríu.

Fyrsta stopp er hjá Tomaz-víngerðinni þar sem við smökkum vín ásamt staðbundnum kræsingum. Þaðan höldum við gangandi eftir hluta af gömlu Parenzana-járnbrautinni, um vínekrur og sveitir Istríu.

Á leiðinni bíður okkar önnur vínsmökkun undir leiðsögn vínþjóns frá Istríu. Að því loknu höldum við til Motovun þar sem kvöldið er frjálst og hver og einn getur valið sér veitingastað fyrir kvöldverð.

Létt ganga - einskonar smakkrölt.

unnamed (3).jpg
Dagur 7 – 4. september – Rovinj, vínsmökkun og lokakvöldverður

Eftir morgunverð höldum við til Rovinj, eins fallegasta gamla bæjarins við Adríahafið. Við göngum með leiðsögumanni um þröngar götur gamla bæjarins og kynnumst feneyskum áhrifum og litríkri hafnarbyggðinni. Að því loknu er frjáls tími til að skoða bæinn og fá sér hádegisverð.

Síðdegis er möguleiki á að heimsækja hina fjölskyldureknu Bertoša-víngerð nærri Kaldir og fá sér eitt glas eða svo ef áhugi er fyrir hendi.

Ferðinni lýkur með sameiginlegum lokakvöldverði á Old River Restaurant nærri Buzet, þar sem við njótum matargerðar og bragða Istríu áður en haldið er aftur til Motovun og gist þar síðustu nótt ferðarinnar.

Létt gönguferð.

unnamed (4).jpg
Dagur 8 – 5. september - Heimferð

Eftir morgunverð kveðjum við Motovun í Króatíu og höldum til Marco Polo flugvallar í Feneyjum. Flug með Icelandair til Keflavíkur kl. 15:55. Lent í Keflavík kl. 18:30

unnamed (5).png
​

​

unnamed (5).png
​

​

unnamed (5).png
​

​

Uppruninn
  • Facebook
  • Instagram

Flandrr ferðamiðstöð varð til sem umgjörð og samnefnari fyrir ferðablæti Ágústu Sigrúnar.

 

Í hinu alræmda kófi magnaðist ferðaþráin mjög mikið og Ágústa ákvað að bjóða landsmönnum í sýndarferðalög í gegnum Zoom. Heimsferðir stukku strax á þessa hugmynd og þegar upp var staðið höfðu orðið til 10 sýndarferðalög og yfir 10.000 manns höfðu tekið þátt.

​

Í framhaldinu fannst henni eðlilegt að útfæra allan þann fróðleik sem hún hafði bætt við sig með einhverjum hætti og pistlaskrifin hófust. Í kjölfarið urðu til hugmyndir að ferðum sem mótast af hennar áhugasviði sem eru hreyfing, menning, tónlist og léttleiki.  

 

Íslensk ferðaskrifstofa selur ferðirnar og sér um bókanir, innheimtu, skilmála og tryggingar skv. ferðakskrifstofuleyfi  gefnu út af Ferðamálastofu.​

Flandrr ferðamiðstöð

© 2023 Flandrr. Website by CC Website Design.

bottom of page