top of page
Menning og hreyfing í Marche

Komdu með í ferð um eitt best varðveitta leyndarmál Ítalíu þar sem stórbrotin náttúra, heillandi miðaldabæir, menning og gönguferðir eru í forgrunni. Léttar til meðal krefjandi göngur leiða okkur um fallegt landslag, á meðan matur, vín og menningarperlur gefa innsýn í sérstöðu þessa lítt þekkta héraðs.

unnamed (7).png

Marche hérað er eitt best varðveitta leyndarmál Ítalíu. Þetta rólega og strjálbýla hérað liggur á milli Adríahafsins og öllu þekktari nágranna þess, Toskana og Umbria. Sumir segja að Marche sé eins og Toskana var fyrir 50 árum síðan, óspillt og undurfallegt. Hér er enn tækifæri til að upplifa Ítalíu án mannfjöldans.


Höfuðborg héraðsins er hafnarborgin Ancona sem var nýlega valin menningarhöfuðborg Ítalíu fyrir árið 2028 eftir að hafa orðið hlutskörpust þeirra 23 borga sem sótti um. Titillinn er árleg viðurkenning sem veitt er borgum á Ítalíu sem leggja sérstaka áherslu á menningu og listir.


Árið 2026 hlaut bærinn Cingolititilinn „Il Borgo dei Borghi“ – fallegasta þorp Ítalíu. Í árlegri keppni RAI-sjónvarpsins, velja öll 20 héruð landsins sinn fulltrúa og aðeins einn bær stendur uppi sem sigurvegari. Cingoli ber einnig viðurnefnið „Il Balcone delle Marche“ eða Svalir Marche, enda stendur bærinn í um 630 metra hæð yfir sjávarmáli og býður upp á eitt glæsilegasta útsýni héraðsins.


Annars er Marche staðsett á miðju ítalska stígvélinu, aftan á kálfanum við Adríahafið. Flestir íbúar búa við ströndina en inn til landsins rísa kastalabæir á hæðartoppum og sveitirnar eru skreyttar litlum þorpum, vínekrum og ólífulundum sem gera landslagið einstakt.


Markhópurinn fyrir þessa ferð er fólk sem hefur gaman af hreyfingu, náttúru og menningu. Þess á milli gefst nægur tími til að njóta lystisemda Ítalíu, láta dekra við sig og gera vel við sig í mat og drykk. Í bland við þetta er lögð áhersla á að kynnast landi og þjóð, sérkennum svæðisins og búa til minningar. Þeir sem vilja taka sér frí frá göngu einn dag geta notið þess að slaka á á hótelinu eða kanna umhverfið á eigin hraða.


Ferðin er hönnuð af sérfræðingum sem þekkja Marche út og inn og vita hvar er að finna hið einstaka og dæmigerða. Við heimsækjum staði sem rata sjaldan í hefðbundnar ferðahandbækur, göngum utan alfaraleiða og komum á stórkostlega útsýnissstaði.


Auk þess að skoða heillandi miðaldabæi og stórbrotið landslag heimsækjum við einnig íverustað fólks sem bjó neðanjarðar sem gefur einstaka innsýn í sögu og menningu svæðisins.


HÉR er hægt að forskrá sig í ferðina.

Hotel Bel Sit sem er 3ja stjörnu fjölskyldurekið hótel sem stendur á dásamlegum stað með útsýni yfir ströndina í Senigallia og nærliggjandi sveitir með einkennandi aflíðandi hæðum og gömlum þorpum. Húsakosturinn er upphaflega frá 19. öld og stendur á rústum forns klausturs en síðar var þar reistur prestaskóli. Herbergin eru látlaus en staðsetningin og útsýnið úr garðinum er stórkostlegt.


Hotel Bel Sit býður upp á mjög góða aðstöðu til dekurs og dundurs. Stór og góð sundlaug er við hótelið, líkamsræktaraðstaða og heilsulind þar sem hægt er að láta líða úr sér. Einnig er hægt að bóka nudd og annað dekur með fyrirvara. Hótelið hefur aðstöðu niður við ströndina við Senigallia sem kölluð er flauelsströndin. Upplagt fyrir þá sem vilja njóta strandlífsins þá daga sem tími gefst til. Hægt er að leigja handklæði á hótelinu.


Morgunverðurinn er fjölbreyttur og hægt að borða í sérstökum morgunverðarsal eða úti þegar veður er gott. Veitingastaðurinn er í fallegum sal þar sem dekkað er upp fyrir kvöldverði og þjónað til borðs. Boðið er upp á þriggja rétta máltíðir með bragðgóðum kjöt- og fiskréttum sem framreiddir eru skv. staðbundnum uppskriftum og venjum. Gestir velja á milli tveggja fyrstu rétta og tveggja aðalrétta og skrá sig í kvöldverð deginum áður.


Öll herbergin eru með góðri loftviftu og flugnanet fyrir gluggum. Hótelið stýrir miðlægri loftkælingu og kveikir á henni þegar aðstæður gefa tilefni til.

  • Herbergin eru einföld, enginn íburður, eins og sést á myndum, enda gamalt klaustur.

  • Öll herbergin eru með baðherbergi, ýmist baðkar/sturta eða bara sturta.

  • Hótelið er í um 2km inn í landi og stendur á miklum útsýnisstað. Það er eiginlega útsýni í 360°.

  • Það er mjög stór verönd fyrir utan hótelið, með borðum, þar sem dásamlegt er að sitja og njóta.

Tvíbýlin

· Comfort herbergin eru ca. 16-17m2 og með stærra baðherbergi, baðkar/sturta. Eru með fjallasýn.

· Superior er 18-20m2 með baðkari/sturtu. Snúa í áttina að hafinu.


Einbýlin

· Comfort Easy herbergin eru ca. 14m2 + lítið baðherbergið með sturtu. Snúa í áttina að hafinu.


Möguleiki er að fá þriggja manna herbergi líka, en þá þarf að senda fyrirspurn á agustasigrun@flandrr.is 


Hér er kynningarmyndband frá hótelinu: https://www.youtube.com/watch?v=8B2y6VfCHCo


HÉR er hægt að forskrá sig í ferðina.

Flandrr ferðamiðstöð er hugmyndasmiður ferðarinnar en Heimsferðir er ferðaskrifstofan á bak við ferðina og sér um bókanir, innheimtu, skilmála og tryggingar skv. ferðakskrifstofuleyfi nr. 2022-028 gefnu út af Ferðamálastofu.


Möguleiki er að fá þriggja manna herbergi líka, en þá þarf að senda fyrirspurn á agustasigrun@flandrr.is 


Dagskrá er útgefin með fyrirvara um smávægilegar breytingar og tilfærslur á tímasetningum. Ítarlegri dagskrá með tímasetningum verður gefin út þegar nær dregur.  


Til fróðleiks:

· Marche, hið nýja Toskana https://www.flandrr.is/post/marche-nyja-toskana

· Tónlistarfólk frá Marche https://www.flandrr.is/post/tonlistarfolk-fra-marche



HÉR er hægt að forskrá sig í ferðina.



Fararstjóri er Ágústa Sigrún Ágústsdóttir. Hún hefur mannauðsstjórnun og markþjálfun að aðalstarfi en ræturnar hennar eru í söng og fararstjórn sem hún sinnir jafnhliða öðrum störfum.


Ágústa er menntaður leiðsögumaður frá Leiðsöguskóla Íslands og hefur unnið við fararstjórn á Ítalíu, Króatíu og Slóveníu yfir 20 ár og hún hefur einnig starfað sem leiðsögumaður á Íslandi fyrir ítölsku- og enskumælandi ferðamönnum. Marche hefur verið hennar annað heimili frá aldamótum og hún heimsækir svæðið reglulega.


Ágústa talar ítölsku og heldur úti ferðabloggi undir nafninu Flandrr ferðamiðstöð þar sem hún varpar upp áhugaverðum vinklum um ýmislegt tengt ferðalögum: www.flandrr.is


Gönguleiðsögumaður er Niki Morganti sem er fæddur og uppalinn í Senigallia í Marche og þekkir því svæðið eins og lófann á sér. Hann er menntaður leiðsögumaður bæði fyrir náttúru- og fjallaferðir og er einnig með próf í náttúruvísindum.  Menntun hans er frábær grunnur fyrir leiðsögnina og hann nýtur þess að bæta við upplifunina með að tengja ferðirnar við sögu, menningu, hefðir og matarmenningu svæðisins sem hann fer um. Hann hefur komið nokkrum sinnum til Íslands með hópa og skipuleggur reglulega ferðir innan Ítalíu og til Lapplands, Nepal og Kanaríeyja.


Útbúnaðarlisti

Góðir en léttir gönguskór, utanvegaskór ættu að duga fyrir flesta. Ökklastuðningur alltaf góður samt. Göngustafir fyrir þá sem vilja. Hattur eða eitthvað til að hylja höfuðið er alveg nauðsyn, ásamt góðum sólgleraugum. Sólarvörn og varasalvi. Lítið handklæði til að þurrka svita. Kannski sessa. Lítill göngupoki og vatnsbrúsi til að fylla á. Mæli með síðbuxum, eða sem hægt er að fjarlægja skálmar af, til að lágmarka rispur á leggjum út af gróðri. Regn og/eða vindjakki. Kannski regnslá. Annar búnaður er undir hverjum og einum komið og hvað hentar best persónulega.


Innifalið í ferðinni: Flug með Icelandair til og frá Feneyjum. Ein 20 kg. taska innifalin. Gisting á Hotel Bel Sit í  Marche 7 nætur með morgunverði.

Málsverðir á dögum 1, 2, 3, 6 og 7, samtals sjö talsins. Tveir pic-nic hádegisverðir. Vínsmökkun og pörun við mat. Heimsókn til ólífuolíuframleiðanda. Aðgangur í Camerano safnið.

Allur akstur skv. leiðarlýsingu. Íslensk fararstjórn. Staðar- og gönguleiðsögn á ensku og íslensku.


Ekki innifalið: Aðgangur í heilsulind og meðferðir á hótelinu. Þjórfé. Gistináttaskattur sem greiddur er á hótelinu.

1. dagur – FIM 3. júní - Komudagur

Flogið verður til Feneyja með Icelandair kl. 08:20 og lending er áætluð kl. 15:00. Við komu verður ekið áfram til Hótel Bel Sit, þar sem dvalið verður á meðan á ferðinni stendur. Aksturinn tekur um 3½ klukkustund.


Við komuna á hótelið verður boðið upp á léttan málsverð.

2. dagur – FÖS 4. júní - Gönguferð í nágrenni hótelsins

8 km – hækkun 180m – létt ganga


Eftir morgunverð höldum við í létta gönguferð um næsta nágrenni hótelsins, í sveitinni Scapezzano. Gengið verður rólega um fallegt, hæðótt landslag, að mestu eftir litlum götum og malarstígum.


Að göngunni lokinni snæðum við hádegisverð hjá Ele, sem rekur sögufrægan stað sem forfeður hennar stofnuðu á 19. öld. Þar er gömul kornmylla sem hefur verið færð í nútímalegan búning og framleiðir hágæða hveiti og mjöl fyrir brauð og kökur. Við fáum að smakka afurðir staðarins ásamt góðu, staðbundnu víni.


Einnig gefst tækifæri til að kaupa úrvalspasta og annað góðgæti áður en haldið verður aftur af stað heim á hótel.


Um kvöldið snæðum við sameiginlegan þriggja rétta kvöldverð á hótelinu.

unnamed.jpg
3. dagur - LAU 5. júní - Kristur í Marche og bærinn Cingoli

13 km, hækkun 270m – frekar létt ganga
Við förum með rútu að upphafsstað göngunnar í fallegu skóglendi Tassinete, nærri bænum Cingoli. Þaðan liggur leiðin að hinu áhrifamikla listaverki Cristo delle Marche, sem stendur á útsýnisstað og táknar eins konar verndarfaðmlag yfir Marche-héraðið.

Gönguleiðin liggur að mestu um skjólsælan skóg, fallega stíga og þægilega malarvegi. Eftir rólega göngu um Tassinete-skóginn tekur við opnara landslag með fallegum útsýnisstöðum áður en komið er að Cristo delle Marche. Skúlptúrinn er eftir listamanninn Nazzareno Rocchetti og er rúmlega þrír metrar á hæð. Frá þessum stað blasir við einstaklega fallegt útsýni yfir hæðir Marche-héraðs og alla leið til Adríahafs þegar skyggni er gott.

Við borðum hádegisverð í lautarstíl áður en göngunni lýkur í bænum Cingoli, sem hlaut þann heiður að vera útnefndur „Þorp þorpanna“ árið 2026. Þar göngum við um gamla bæinn og njótum andrúmsloftsins í þessum heillandi miðaldabæ, sem ber hið lýsandi gælunafn „Svalir Marche“ vegna stórkostlegs útsýnis yfir héraðið.

Til fróðleiks: https://www.flandrr.is/post/merkilegar-styttur-i-marche

unnamed (1).jpg
4. dagur – SUN 6. júní – Elcito eyðiþorpið og Canfaito

13-15 km – hækkun 450m – meðalerfið ganga
Við leggjum snemma af stað inn til fjalla. Að þessu sinni liggur gönguleiðin um hásléttuna þar sem við komum meðal annars við í þorpinu Elcito, sem áður var nær yfirgefið en er aftur að vakna til lífsins.
Elcito stendur í 821 metra hæð í hlíðum San Vicino-fjallsins og er það sem eftir stendur af fornum kastala sem reistur var til varnar Benediktínaklaustrinu. Þorpið hefur oft verið kallað „Tíbet Marche-héraðs“ vegna einstakrar staðsetningar, friðsældar og stórbrotins útsýnis.

Þaðan göngum við fjölbreytta leið um skóglendi, opin engi og fallegt fjallalandslag með frábæru útsýni yfir Sibillini-fjöllin. Fyrsti hluti göngunnar er nokkuð krefjandi og liggur upp á við, en við tökum góð hlé á leiðinni svo allir geti notið göngunnar á sínum hraða. Við fáum léttan hádegisverð í lautarstíl (pic-nic) þegar komið er á hæsta punkt göngunnar.

Síðasti hluti leiðarinnar liggur að mestu niður á við og endar í Elcito, þar sem gangan hófst. Þar gefst tími til að slaka á og hvíla lúin bein á litla barnum/veitingastaðnum í þorpinu.

Til fróðleiks: https://www.flandrr.is/post/litla-tibet-i-marche

unnamed (4).png
5. dagur – MÁN 7. júní - Senigallia eða frjáls dagur við ströndina eða sundlaugina

Við tökum strætó frá hótelinu til strandbæjarins Senigallia, sem á sér langa og heillandi sögu allt frá því fyrir tíma Rómaveldis. Bærinn er þekktur fyrir fallega, breiða sandströnd sem ber hið ljúfa nafn „Flauelsströndin“ og hefur jafnframt hlotið umhverfisvottun fyrir hreinleika og gæði strandarinnar.

Í Senigallia gefst góður tími til að njóta bæjarins á eigin vegum, rölta um gömlu göturnar, fara á ströndina eða sinna öðrum hugðarefnum. Fyrir þá sem vilja er einnig boðið upp á létta göngu til baka að hótelinu. Leiðin er um 5 km löng og liggur um þægilegt landslag – góð tækifæri til að njóta sjávarloftsins og umhverfisins.

Þeir sem kjósa að vera lengur í Senigallia geta notið dagsins þar í rólegheitum áður en haldið verður aftur á hótelið, þar sem einnig gefst tækifæri til að slaka á við sundlaugina.

unnamed (2).jpg
6. dagur – ÞRI 8. júní - Menningarhöfuðborgin Ancona og Jesi

Við hefjum daginn á heimsókn til Ancona, höfuðborgar Marche-héraðs, sem á sér langa og merkilega sögu allt frá tímum Grikkja og Rómverja. Borgin stendur fallega við Adríahafið og sameinar á áhugaverðan hátt forna sögu, hafnarstemningu og lifandi ítalskt borgarlíf. Ancona hefur hlotið þann heiður að vera valin ítalska menningarhöfuðborgin árið 2028, en borgin varð hlutskörpust af 23 umsækjendum.

Í Ancona gefst tími til að njóta borgarinnar á eigin vegum og snæða frjálsan hádegisverð. Hægt verður að rölta um gömlu hverfin, njóta útsýnisins yfir höfnina og hafið eða einfaldlega setjast niður á notalegu kaffihúsi og upplifa stemningu borgarinnar áður en ferðinni er haldið áfram.

Síðdegis höldum við áfram til bæjarins Jesi, heillandi bæjar sem er umlukinn gömlum borgarmúrum og þekktur fyrir ríka menningar- og vínhefð. Jesi er fæðingarbær hins fræga tónskálds Pergolesi.

Áður en komið er aftur á hótel heimsækjum við stað þar sem framleidd er fyrsta flokks ólífuolía. Þar fáum við innsýn í framleiðsluferlið, fræðumst um leyndarmál góðrar olíugerðar og fáum að smakka á afurðum staðarins. Boðið verður upp á vel útilátið meðlæti og gott staðbundið vín sem saman myndar ljúffenga máltíð.

Til fróðleiks: https://www.flandrr.is/post/ancona-olnboginn-i-marche

unnamed (3).jpg
7. dagur – MIÐ 9. júní - Monte Conero, bærinn Sirolo og Camerano

Í dag kynnumst við Marche-héraði bæði að innan og utan. Við njótum stórbrotinnar náttúru, heillandi strandbæja og skoðum þá leyndardóma sem leynast undir yfirborðinu.

Við höldum með rútu inn á náttúruverndarsvæðið Monte Conero, þar sem við verjum hluta dagsins á göngu um eitt fegursta svæði Adríahafsstrandarinnar. Þetta er eini fjallgarðurinn eða höfðinn við Adríahafið frá Trieste í norðri og langt suður eftir ítölsku ströndinni. Svæðið er þekkt fyrir fjölbreytta náttúru, fallegar gönguleiðir og stórkostlegt útsýni yfir Adríahafið.

Við göngum fallega útsýnisleið í átt að bænum Sirolo. Þar lýkur göngunni og gefst góður tími til að njóta útsýnisins, rölta um heillandi götur bæjarins eða setjast niður og upplifa notalega stemningu þessa einstaka staðar. Hádegisverður er á eigin vegum.

Síðdegis höldum við áfram til bæjarins Camerano, þar sem við fáum að kynnast öðrum hliðum Marche-héraðs. Þar förum við undir yfirborðið og skoðum einstakt hellakerfi sem hefur gegnt ýmsum hlutverkum í gegnum aldirnar, meðal annars sem eins konar „neðanjarðarþorp“. Undir bænum leynist völundarhús af göngum, herbergjum og rýmum sem segja áhugaverða sögu um líf og starf fólks í gegnum tíðina.

Að lokum förum við á sérstakan stað sem ber heitið „Englaboginn“. Þar njótum við kvöldverðar í fallegu umhverfi, þar sem réttirnir eru bornir fram með vandlega völdu víni sem er sérvalið til að passa við matinn.

Til fróðleiks: https://www.flandrr.is/post/tveirgimsteinarimarche

unnamed (4).jpg
8. dagur – FIM 10. júní - Heimferðardagur

Við leggjum af stað frá hótelinu um kl. 10:00 og höldum til Feneyja. Flugið frá Feneyjum er kl. 16:10 og áætluð lending í Keflavík er um kl. 18:50.

Með okkur heim fylgja vonandi margar góðar minningar frá markverða Marche á Ítalíu.

unnamed (5).png

unnamed (5).png

unnamed (5).png

Uppruninn
  • Facebook
  • Instagram

Flandrr ferðamiðstöð varð til sem umgjörð og samnefnari fyrir ferðablæti Ágústu Sigrúnar.

 

Í hinu alræmda kófi magnaðist ferðaþráin mjög mikið og Ágústa ákvað að bjóða landsmönnum í sýndarferðalög í gegnum Zoom. Heimsferðir stukku strax á þessa hugmynd og þegar upp var staðið höfðu orðið til 10 sýndarferðalög og yfir 10.000 manns höfðu tekið þátt.

Í framhaldinu fannst henni eðlilegt að útfæra allan þann fróðleik sem hún hafði bætt við sig með einhverjum hætti og pistlaskrifin hófust. Í kjölfarið urðu til hugmyndir að ferðum sem mótast af hennar áhugasviði sem eru hreyfing, menning, tónlist og léttleiki.  

 

Íslensk ferðaskrifstofa selur ferðirnar og sér um bókanir, innheimtu, skilmála og tryggingar skv. ferðakskrifstofuleyfi  gefnu út af Ferðamálastofu.​

Flandrr ferðamiðstöð

© 2023 Flandrr. Website by CC Website Design.

bottom of page