top of page
2027 Suður-Afríka og Lesóto - forskráningarafsláttur!

18. mars til 4. apríl 2027

Upplifðu Suður-Afríku og Lesótó – stórbrotið dýralíf, Drakensberg-fjöllin, Höfðaborg og vínhéruðin. Ævintýri þar sem náttúra, saga, menning, matur og vín mætast – og við fetum jafnframt í fótspor Nelsons Mandela og Mahatma Gandhi.


Ferðin sameinar þannig margt af því sem gerir Suður-Afríku svo einstaka – dýralíf, stórbrotna náttúru, sögu, menningu, mat og vín – auk ævintýralegrar dagsferðar til Lesótó.

unnamed (7).png

Ferðin í febrúar 2026 seldist upp á skömmum tíma. Tryggðu þér pláss á forskráningarverði HÉR


Nú endurtökum við leikinn um páskana 2027. Ferðin er 18 dagar í heild, en þar sem hún nær yfir páskahátíðina þarf aðeins að taka 9 vinnudaga í frí – tilvalið tækifæri til að nýta páskafríið í óvenjulegt ævintýri í Suður-Afríku og Lesótó.


Ferðin hefst í Durban við Indlandshafið, líflegri og litríkri strandborg þar sem ólíkir menningarheimar mætast. Borgin á sterkar rætur í zúlúmenningu en ber jafnframt skýr merki breskrar nýlendusögu og indverskra áhrifa. Í Durban býr eitt stærsta samfélag fólks af indverskum uppruna utan Indlands. Hér kynnumst við því óvenjulegri blöndu afrískrar, indverskrar og evrópskrar menningar – allt í suðrænu umhverfi við hlýtt Indlandshafið.


Þaðan liggur leiðin um fjölbreytt landslag KwaZulu-Natal, frá ströndinni og einstöku dýralífi verndarsvæðanna upp í tignarleg Drakensberg-fjöllin. Við bregðum okkur einnig yfir landamærin til Lesótó, hins einstaka fjallakonungsríkis sem er umlukið Suður-Afríku.


Í ferðinni upplifum við dýralíf Afríku í sínu náttúrulega umhverfi. Við förum í dýraskoðunarferðir um Hluhluwe–iMfolozi, elsta friðlýsta dýralífssvæði Afríku, sem er sérstaklega þekkt fyrir mikilvægan þátt sinn í verndun hvíta nashyrningsins. Þar er að finna allar hinar svokölluðu Big Five – ljón, hlébarða, nashyrninga, fíla og afríska buffalóa – auk fjölmargra annarra dýrategunda. Við siglum einnig um St. Lucia-vatn þar sem við leitum að flóðhestum og krókódílum í sínu náttúrulega umhverfi.


Við kynnumst jafnframt áhrifamikilli sögu landsins og arfleifð Nelsons Mandela og Mahatma Gandhi, meðal annars með heimsókn á Robben-eyju, þar sem Mandela sat lengi í fangelsi, og á heimili Gandhi í Durban.

Síðari hluti ferðarinnar tekur okkur til Höfðaborgar, einnar fegurstu borga heims, þar sem Taffafjall gnæfir yfir borginni. Við kynnumst mörgæsunum við Boulders Beach og ökum hina stórbrotnu strandleið um Chapman’s Peak að Cape Point og Góðrarvonarhöfða.


Að lokinni dvölinni í Höfðaborg höldum við til vínhéraðanna, heimsækjum hinn sögufræga bæ Stellenbosch og dveljum síðustu tvær nætur ferðarinnar í Franschhoek. Þar njótum við fallegs umhverfis, góðs matar og vína og kynnumst sögu og vínmenningu þessa rómaða héraðs.


Ferðin sameinar þannig margt af því sem gerir Suður-Afríku svo einstaka – dýralíf, stórbrotna náttúru, sögu, menningu, mat og vín – auk ævintýralegrar dagsferðar til Lesótó.


Ferðatímabilið er 18. mars til 4. apríl 2027 sem eru 18 dagar.
Landpakkinn er 16 dagar og 15 gistinætur.


Verðið í forskráningu er 899.000 kr á mann í tvíbýli sem er um 90.000 kr. afsláttur af fullu verði á manninn. Viðbót fyrir einbýli er 165.000 kr.


Forskráningarverðið gildir fyrir fyrstu 10 sætin eða til 1. október 2026 í síðasta lagi.

Markhópur þessar ferðar er forvitið fólk sem vill kynnast Suður-Afríku með djúpri tengingu við land og þjóð og með ævintýri að leiðarljósi.


Ferðin er farin á vegum Fiðrildaferða sem er með ferðina í sölu og sér um bókanir, innheimtu, skilmála og tryggingar skv. ferðaskrifstofuleyfi nr. 2022-028 gefnu út af Ferðamálastofu. Sure Voyager Travel er samstarfsaðilinn í Suður-Afríku sem hefur veg og vanda að skipulagningunni og bókar öll flug. Ágústa Sigrún er íslenskur fararstjóri ferðarinnar á vegum Flandrr ferðamiðstöðvar. 


Hópurinn telur að hámarki 20 manns. Ferðast er í rúmgóðri rútu. 


Flogið er með British Airways til Durban og heim frá Höfaborg með millilendingu á Heathrow í London.


Hótelin í ferðinni eru ýmist þriggja eða fjögurra stjörnu


Protea Hotel by Marriott Durban Umhlanga

https://www.marriott.com/en-us/hotels/durum-protea-hotel-durban-umhlanga/overview/?scid=f2ae0541-1279-4f24-b197-a979c79310b0

Þetta þriggja stjörnu hótel býður upp á þægilega gistingu með nútímalegum herbergjum í hjarta Umhlanga Rocks.

Það er í göngufæri frá baðströndinni og flest herbergin bjóða upp á magnað útsýni út á hafið og með þakverönd og sundlaug. Herbergin eru smekkleg og stílhrein með eldunaraðstöðu, örbylgjuofni, ísskáp, borðbúnaði og hægt að laga sér kaffi og te. Loftkæling.


Anew Hotel Hluhluwe

https://anewhotels.com/hotels/hluhluwe-safaris/

Þetta er fjögurra stjörnu hótel á hinu fallega Elephant Coast-svæði í KwaZulu-Natal, skammt frá hinu sögufræga Hluhluwe–iMfolozi náttúruverndarsvæði. Hótelið er umlukið gróskumikilli náttúru og býður upp á notalega gistingu í sannkölluðu afrísku umhverfi. Á hótelinu eru þægileg herbergi, veitingastaður, bar og útisundlaug og staðsetningin er tilvalin fyrir dýraskoðunarferðir og upplifun á einstakri náttúru svæðisins. Loftkæling.


Premier Resort Sani Pass við rætur Lesótó

https://www.premierhotels.co.za/sani-pass

Hótelið er staðsett við rætur á Sani Pass fjallaskarðins og á bökkum Mkhomazana-árinnar, þar sem ferskt vatn rennur beint úr Drakensberg-fjöllunum. Einungis 19 km frá Underberg þar sem hótelið er komum við að landamærum Lesótó. Hótelið býður upp á þægileg herbergi í náttúrulegu umhverfi Ezemvelo náttúruverndarsvæðisins. Svæðið er griðland fyrir Eland-Antilópuna og þar eru fjölmargar göngu- og hjólaleiðir fyrir þá sem vilja smá ævintýri. Sundlaug. Hægt aða bóka nuddmeðferðir. Loftkæling.


City Lodge V&A í Höfðaborg

https://citylodgehotels.com/our-hotels/City%20Lodge%20Hotel/86

Þægilegt og vel staðsett hótel í hjarta Höfðaborgar, steinsnar frá V&A Waterfront, Bo-Kaap hverfinu og helstu verslunum og veitingastöðum. Hótelið býður upp á nútímaleg og snyrtileg herbergi með öllum helstu þægindum. Líkamsræktaraðstaða, lítill heitur pottur og notalegt kaffihús. Góð staðsetning fyrir ferðalanga sem vilja kanna borgina fótgangandi. Loftkæling.


Le Franschhoek Hotel & Spa

https://dreamresorts.co.za/hotels-resorts/le-franschhoek-hotel-spa/explore/

Glæsilegt fjögurra stjörnu hótel í fallegu umhverfi vínhéraðsins, umkringt vínekrum, gróskumiklum görðum og Franschhoek-fjöllunum. Hótelið er byggt í anda hins klassíska Cape Dutch-stíls og býður upp á þægileg og smekklega innréttuð herbergi. Á hótelinu eru meðal annars veitingastaðir, bar, útisundlaug og heilsulind. Gestir geta einnig nýtt sér ókeypis skutlu inn í bæinn Franschhoek. Sundlaug og SPA. Loftkæling.

Innifalið í verði ferðar

Flug með British Airways til Durban og heim frá Höfðaborg.

Innanlandsflug frá Durban til Höfðaborgar.


Allar skoðunarferðir og aðgangseyrir samkvæmt ferðalýsingu.


Loftkæld rúta með bílstjóra fyrir rútudaga.

4x4 farartæki þann dag sem farið er til Lesótó.


Gisting á eftirtöldum hótelum þriggja og fjögurra stjörnu í 15 nætur. Loftkæling er á öllum herbergjum. Morgunverður innifalin í allri gistingu:

  • Protea Hotel by Marriott Durban Umhlanga - 1 nótt + 2 nætur = 3 nætur með morgunverði

  • Anew Hluhluwe hotel – 3 nætur með morgunverði og kvöldverði

  • Premier Resort Sani Pass – 2 nætur með morgunverði og kvöldverði

  • City Lodge V&A hotel – 5 nætur með morgunverði

  • Le Franschhoek Hotel & Spa - 2 nætur með morgunverði

Málsverðir sem innfaldir eru. 

- 7 x kvöldverðir 

- 4 x hádegisverðir


Skoðunarferð um vínhéruðin með aðgangi að fornbílasafni.

Vínsmökkun pöruð við létta rétti.


Enskumælandi staðarleiðsögn.

Íslensk fararstjórn.


Kynningar- og undirbúningsfundur með fararstjóra og ferðaskipuleggjanda í Suður-Afríku fyrir brottför.


Ekki innifalið

Þjórfé. Ferðatryggingar. Málsverðir umfram þá sem taldir eru upp í ferðalýsingu.


Við áskiljum okkur rétt til að breyta dagskrá með stuttum fyrirvara, ef þörf krefur, vegna óviðráðanlegra atvika.


Verðið í forskráningu er 899.000 kr á mann í tvíbýli sem er um 90.000 kr. afsláttur af fullu verði á manninn. Viðbót fyrir einbýli er 165.000 kr.


Forskráningarverðið gildir fyrir fyrstu 10 sætin eða til 1. október 2026 í síðasta lagi.

18. mars 2027 FIM – ferðadagur

Brottför frá Keflavík með British Airways kl. 11:40. Millilent í London Heathrow. Flugið heldur áfram með British Airways kl. 18:30. Millilent í Jóhannesarborg þar sem er stutt stopp áður en haldið er áfram síðasta legginn til Durban, sem er um 1 klst flug.  Við lendum á King Shaka flugvellinum í Durban kl. 11:35 þann 19. mars.

19. mars 2027 FÖS - Durban - Þar sem fjölmenning og Indlandshaf mætast

Við lendum á King Shaka flugvellinum í Durban kl. 11:35 þann 19. mars. Þar verðum sótt og okkur ekið á hótel í Umhlanga hverfinu í Durban þar sem gist verður í fyrstu nóttina.


Umhlanga Rocks er lífleg strandbær með fjöruga þorpsstemningu, fullur af verslunum og veitingastöðum, aðeins nokkrum metrum frá Promenade sem er vinsæll 5 km göngustígur sem liggur meðfram röð af glæsilegum hótelum, sjávarveitingastöðum og auðvitað hinum fræga vita og bryggjunni. Göngustígurinn er í miklu uppáhaldi hjá öllum sem vilja dást að fallegri ströndinni. Promenade-stígurinn frábær staður til að njóta Indlandshafsins.


Við tökum deginum rólega og búum okkur undir ævintýri næstu daga. Um kvöldið borðum við saman og fögnum komu okkar til landsins.

unnamed.jpg
20. – 23. mars 2027 – Hluhluwe-Imfolozi - elsta friðlýsta dýralífssvæði Afríku og St. Lucia vatnið

Við leggjum af stað snemma þann 20. mars og keyrum í áttina að Zúlú-landi og dveljum við Hluhluwe–iMfolozi, elsta friðlýsta dýralífssvæði Afríku, sem er sérstaklega þekkt fyrir mikilvægan þátt sinn í verndun hvíta nashyrningsins.

Þar er að finna allar hinar svokölluðu Big Five – ljón, hlébarða, nashyrninga, fíla og afríska buffalóa. Svæðið er einn af fáum stöðum í Suður-Afríku þar sem öll fimm „Big Five“ dýrin eru til staðar. Auðvitað sjáum við fjölmargar aðrar dýrategundir eins og gíraffa, sebrahesta, antilópur og fleira. – auk fjölmargra annarra dýrategunda.

Gist er á hótelinu Anew Hotel Hluhluwee í þrjár nætur með morgunverði.

Næstu daga gerum við út í skipulagða dýraskoðunarferðir (game drive) og upplifum dýralíf Afríku í sínu náttúrulega umhverfi. Þetta er um 3ja tíma ferðir og eru leiddar af reyndum leiðsögumönnum sem þekkja svæðið og dýralífið vel. Annaðhvort verður um morgun eða síðdegisferð í jeppa að ræða þar sem kynnumst dýralífinu og náttúrunni og því sem hún hefur upp á að bjóða þann daginn.

Innifaldar eru þrár Game Drive ferðir en auk þess verður hægt að bóka auklega ferðir og upplifun á svæðinu.

Á bakaleiðinni til Durban stoppum við við St. Lucia vatnið sem er hluti af heimsminjasvæðinu isimangaliso og stærsta ósavistkerfi Afríku. Þar förum við í 1½ klukkustundar siglingu um vatnið og leitum uppi flóðhesta og krókódíla í sínu náttúrulega umhverfi. Auk þess er fuglalífið við vatnið einstaklega fjölbreytt.

Einstakt tækifæri til að njóta suðurafrískrar náttúru, fá innsýn í lífríkið og upplifa dýralífið í sínu náttúrulega umhverfi – allt í fylgd fagfólks og í afslöppuðu umhverfi. Við erum viss um að þetta verði ógleymanleg upplifun fyrir alla.

Við innritum okkur aftur á sama hótelið og fyrstu nóttina, Hotel Protea Umhlanga í Durban þar sem við gistum næstu þrjár nætur.

unnamed (1).jpg
23. – 26. mars 2027 - Durban - Gandhi, arfleifð, Zúlú

Gist er á Hotel Protea Umhlanga í Durban í þrjár nætur.

24. mars 2027 MIÐ – Menningardagur í Durban
Þennan dag sökkvum við okkur djúpt inn í fjölbreytta menningu og sögu Durban-borgar. Ræturnar liggja í einum af sterkustu ættum allra afrískra þjóðflokka, Zúlú. Nýlendumenning og bresk áhrif er áberandi því borgin varð þekkt sem „síðasti breski útibærinn“ Indverskir innflytjendur einkenna einnig fjölþjóðlega samfélagið í Durban.

Við hefjum daginn með viðkomu í KwaMashu sem eitt þekktasta „township“ svæðið í Suður-Afríku. Heimili Mahatma Gandhi þar sem hann bjó á meðan hann starfaði í Suður-Afríku er einmitt staðsett mitt í þessu fátækrahverfi. Þar mótaðist friðarstefna hans og borgaraleg óhlýðni sem átti eftir að hafa áhrif á heimssöguna. Í Durban er ennþá stærsta indverska samfélagið í einni borg utan Indlands.

Næst liggur leið okkar á Victoria markaðinn, sem er lifandi og litríkur markaður þar sem finna má alls kyns handverk, indversk krydd, fatnað og minjagripi. Þar verður tími til að rölta um, skoða og njóta andrúmsloftsins.

Við kíkjum einnig á einstakan hluta borgarinnar þar sem finna má Zúlú-jurtamarkað, þar sem lækningajurtir og töfralyf eru enn stór hluti af daglegu lífi. Þar kynnist maður lifandi arfleifð og fornum siðum Zúlúmenningar.

Dagurinn endar á ljúffengan hátt með því að smakka ekta "bunny chow", sem er holaður brauðhleifur fylltur með með karrírétti og algengur götubiti í Durban. Þetta er bragðmikil og skemmtileg matarupplifun.

25. mars - Skírdagur og frjáls dagur

unnamed (4).png
26. – 28. mars 2027 - Frá ströndinni í fjallasælu í Lesótó

26. mars FÖS - Nelson Mandela handtökustaður og Drakensberg fjöllin
Á föstudaginn langa kveðjum við Durban og keyrum sem leið liggur í gegnum grænt og hæðótt sveitalandslagið Natal héraðsins. Stefnan er tekin á næsta náttstað sem er við rætur fjallakonungsríkisins Lesótó.

Við stöldrum við á merkum sögustað (capture site) þar sem Nelson Mandela var handtekinn, þegar hann var á ferð á milli Durban og Jóhannesarborgar. Atburðarins er minnst með listaverkum á Mandela Capture Site. Við fáum leiðsögn og gefum okkur tíma til að skoða það og hið áhrifaríka safn sem þar er að finna.

Við höldum áfram ferðinni inn í gróðursælt og hrífandi landslag Drakensberg-fjallanna og gistum á Premier Resort Sani Pass næstu tvær næturnar. Huggulegt fjallahótel sem býður upp á rólegt andrúmsloft, stórbrotið útsýni og ferskt fjallaloft. Hér njótum við kvöldsins og hvílum okkur fyrir viðburðaríkan dag framundan.

27. mars LAU – Upp Sani Pass að hjarta Lesóto
Í dag förum við í eina af mögnuðustu dagsferðum ferðalagsins – leiðangur upp Sani Pass, eitt ævintýralegasta fjallaskarð Suður-Afríku! Með leiðsögn reyndra ökumanna fikrum við okkur upp fjallvegi í sérútbúnum 4x4 farartækjum. Við förum upp í 2.874 metra hæð yfir sjávarmáli, þar sem andrúmsloftið er tærara, útsýnið ótrúlegt og andinn frjáls.

Lesótó er fjalllent landlukt konungsríki sem er algjörlega umkringt Suður-Afríku, með einstaka menningu og landslag sem skapar skýra andstæðu við láglendi nágrannalandsins.

Þegar upp er komið stoppum við í hefðbundnu þorpi í Lesótó, þar sem við fáum innsýn í líf og menningu Basotho-fólksins.

Ferðin endar með viðeigandi hætti í hádegismat og drykkjum á "The Highest Pub in Africa", þar sem þú getur borðað, skálað og horft yfir stórkostlegt landslag á mörkum himins og jarðar.

Við fikrum okkur aftur niður hlykkjóttar hlíðar þessa hæsta konungríkis Afríku og borðum kvöldverð á Sani Pass Resort hótelinu þar sem við gistum.

unnamed (2).jpg
28. mars 2027 SUN – Páskadagur og heimsókn í trúboðamiðstöð og lug til Höfðaborgar

Það er páskadagur og við kveðjum Drakensberg-fjöllin og höldum til baka á King Shaka flugvöllinn við Durban.

Á leiðinni heimsækjum við Reichenau trúboðsstöðina, en heimsókn í hina gömlu Trappista-kirkju á sjálfan páskadag setur skemmtilegan svip á ferðalag dagsins.

Við fáum leiðsögn um kirkjuna og skoðum einnig gömlu hveitimylluna, sem í dag gegnir hlutverki gistiheimilis. Reichenau á sér áhugaverða sögu og gefur okkur innsýn í starf trúboða og áhrif þeirra á samfélagið í þessum hluta KwaZulu-Natal.

Síðdegis komum við á King Shaka alþjóðaflugvöllinn við Durban, þaðan sem við fljúgum til Höfðaborgar og hefjum þar næsta kafla ferðarinnar.

Innanlandsflug til Höfðaborgar er innifalið í verði ferðar.

unnamed (3).jpg
28. mars - 1. apríl 2027 – Höfðaborg og nágrenni

28. mars – 1. apríl 2027 – Höfðaborg og nágrenni
Næstu fjórar nætur gistum við á City Lodge V&A Waterfront í Höfðaborg.

28. mars – Páskadagur – Komið til Höfðaborgar
Við komum til Höfðaborgar síðdegis á páskadag og komum okkur fyrir á hótelinu. Kvöldið er frjálst og tilvalið að njóta páskastemningarinnar í borginni og fá sér góðan kvöldverð.

Við erum vel staðsett við V&A Waterfront, eitt líflegasta svæði Höfðaborgar, í göngufæri við fjölbreytt úrval verslana, veitingastaða og kaffihúsa.

29. mars – Annar í páskum – Robben-eyja og saga Nelson Mandela
Við göngum að Nelson Mandela Gateway, brottfararstað ferjunnar til Robben-eyju. Þaðan siglum við út til eyjunnar, sem um árabil var notuð sem fangelsi og er órjúfanlega tengd sögu aðskilnaðarstefnunnar í Suður-Afríku.

Á eyjunni kynnumst við þessari áhrifamiklu sögu, en fyrrverandi pólitískir fangar hafa meðal annars tekið þátt í leiðsögn gesta um fangelsið. Við ferðumst einnig um eyjuna með rútu og heimsækjum fangelsið þar sem Nelson Mandela sat í 18 ár, þar á meðal hinn þekkta fangaklefa hans.

Heildartími ferðarinnar er um fjórar klukkustundir. Eftir að komið er aftur í land er síðdegið og kvöldið frjálst.

30. mars – Cape Point, Góðrarvonarhöfði og mörgæsir
Stórbrotinn dagur er fram undan þegar við könnum Cape Peninsula, einn fallegasta hluta Höfðaborgarsvæðisins. Við ökum hina stórkostlegu strandleið um Chapman’s Peak að Cape Point og Góðrarvonarhöfða, þar sem hrikalegar klettabrúnir, úfið haf og víðáttumikið útsýni skapa ógleymanlega umgjörð.

Við Cape Point gefst tækifæri til að fara upp að vitanum og njóta útsýnisins yfir ysta hluta skagans og hafið allt í kring.

Á heimleiðinni komum við við í Simon’s Town og heimsækjum Boulders Beach, þar sem við sjáum afrísku mörgæsirnar í sínu náttúrulega umhverfi meðal gróðurs og stórra granítkletta.

Kvöldið er frjálst.

31. mars – Höfðaborg – Taffafjall, Bo-Kaap og afrísk matarveisla
Í dag kynnumst við sjálfri Höfðaborg og byrjum á einu þekktasta kennileiti hennar, Table Mountain – Taffafjalli. Við förum með kláfi upp á fjallið og njótum stórkostlegs útsýnis yfir borgina, hafið og Cape Peninsula.

Að því loknu kynnumst við helstu byggingum og sögustöðum miðborgarinnar áður en við heimsækjum hið litríka Bo-Kaap-hverfi, áður þekkt sem Malay Quarter. Hverfið er þekkt fyrir litrík hús sín og sterka tengingu við Cape Malay-samfélagið og gefur okkur innsýn í fjölbreytta sögu og menningararfleifð Höfðaborgar. Við borðum saman hádegisverð sem er innifalinn í verði ferðarinnar.

Um kvöldið ljúkum við dvölinni í Höfðaborg með eftirminnilegri matar- og menningarupplifun á GOLD Restaurant. Þar njótum við fjölbreyttra rétta frá ýmsum hlutum Afríku í lifandi umhverfi með tónlist og skemmtun – og fáum meira að segja tækifæri til að spreyta okkur á afrískum trommuslætti.

Skemmtilegur lokapunktur á dvölinni í Höfðaborg, sem við kveðjum morguninn eftir.

unnamed (4).jpg
1. - 3. apríl 2027 – Frá Höfðaborg inn í vínlöndin

Við gistum á Le Franschhoek Hotel & Spa síðustu tvær nætur ferðarinnar

1. apríl - Stellenbosch – Saga og stemning í þessum gamla bæ
Eftir morgunverð og útskráningu af hótelinu liggur leiðin til Stellenbosch, næstelsta bæjar Suður-Afríku og eins þekktasta vínbæjar landsins. Bærinn er einstaklega fallegur, með gömlum eikartrjám, vel varðveittum byggingum í svokölluðum Cape Dutch-stíl og líflegu mannlífi.

Við röltum um sögulega miðbæinn og skoðum fallegar byggingar áður en frjáls tími tekur við. Þá gefst tækifæri til að líta inn í litlar verslanir og listasöfn eða heimsækja Oom Samie se Winkel, sögufræga verslun frá árinu 1904. Einnig má einfaldlega setjast á kaffihús og njóta stemningarinnar í þessum heillandi háskóla- og vínbæ.

Hádegisverður er á eigin vegum á einum af fjölmörgum veitingastöðum bæjarins áður en við höldum áfram til Le Franschhoek Hotel.

2. apríl – Franschhoek – vín, kræsingar og fornbílar
Í dag kynnumst við Franschhoek, einu þekktasta vínhéraði Suður-Afríku, þar sem fallegar vínekrur og tignarleg fjöll skapa einstaka umgjörð.

Við lítum inn í minningarmiðstöð Húgenotta og kynnumst sögu frönsku mótmælendanna sem flúðu trúarofsóknir í Frakklandi á 17. öld og settust meðal annars að á þessum slóðum. Þeir áttu stóran þátt í að móta samfélagið og vínmenninguna sem Franschhoek er þekkt fyrir í dag.

Því næst heimsækjum við Anthonij Rupert Wyne Estate, glæsilegan vínbúgarð þar sem okkar bíður fjölbreytt dagskrá. Við ökum um landareignina að Franschhoek Motor Museum, þar sem við skoðum úrval um 80 klassískra og sögulegra bíla.

Þaðan höldum við að Terra del Capo, þar sem við njótum antipasti-hádegisverðar með völdum vínum. Að máltíð lokinni förum við með litlum sporvagni vínbúgarðsins að Anthonij Rupert-smökkunarhúsinu, þar sem heimsókninni lýkur með vínsmökkun á úrvalsvínum Anthonij Rupert.

Skemmtilegur og fjölbreyttur dagur þar sem saga, vín, kræsingar, fallegt umhverfi og svolítil bíladella fara einstaklega vel saman.

Hádegisverður með vínpörun og vínsmökkun innifalin.

unnamed (5).png
3. - 4. apríl 2027 - Heimferð

3. apríl LAU - Drekkum í okkur síðustu tímana í Frenchhoek.
Frjáls dagur um morguninn þar til við verðum sótt til að fara á flugvöllinn í Höfðaborg. Flugið er kl. 18:30 með British Airways alla leið til Keflavíkur en millilent er á London Heathrow.

4. apríl SUN - Heimkoma
Við lendum á Íslandi kl. 09:30 á sunnudagsmorgni

unnamed (5).png



unnamed (5).png

Uppruninn
  • Facebook
  • Instagram

Flandrr ferðamiðstöð varð til sem umgjörð og samnefnari fyrir ferðablæti Ágústu Sigrúnar.

 

Í hinu alræmda kófi magnaðist ferðaþráin mjög mikið og Ágústa ákvað að bjóða landsmönnum í sýndarferðalög í gegnum Zoom. Heimsferðir stukku strax á þessa hugmynd og þegar upp var staðið höfðu orðið til 10 sýndarferðalög og yfir 10.000 manns höfðu tekið þátt.

Í framhaldinu fannst henni eðlilegt að útfæra allan þann fróðleik sem hún hafði bætt við sig með einhverjum hætti og pistlaskrifin hófust. Í kjölfarið urðu til hugmyndir að ferðum sem mótast af hennar áhugasviði sem eru hreyfing, menning, tónlist og léttleiki.  

 

Íslensk ferðaskrifstofa selur ferðirnar og sér um bókanir, innheimtu, skilmála og tryggingar skv. ferðakskrifstofuleyfi  gefnu út af Ferðamálastofu.​

Flandrr ferðamiðstöð

© 2023 Flandrr. Website by CC Website Design.

bottom of page