top of page
Writer's pictureÁgústa Sigrún Ágústsdóttir

Býflugnadagurinn 20. maí

Fararbroddur! ...er það ekki bara fullkomið nafn á ný íslensk samtök býflugnaræktenda?


Hunang spilar stóra rullu slóvenskri matargerð og býflugnarækt á sér mjög langa sögu í Slóveníu. Árið 2017, eftir þriggja ára þrotlausa vinnu, fengu Slóvenar því framgengt að þann 20. maí ár hvert yrði Býflugnadagurinn haldinn hátíðlegur. Það voru samtök býflugnaræktenda sem höfðu unnið ötullega að því að býflugan fengi þá athygli sem hún á skilið.


Sameinuðu þjóðarinar samþykktu tillöguna sem út frá hnattrænu sjónarhorni kom Slóveníu enn betur á heimskortið hvað varðar verndun lífríkis og sjálfbærrar matvælaframleiðslu.


Dagurinn sem valinn var, 20. maí, er fæðingardagur Anton Janša sem áltinn er einn af frumkvöðlum nútíma býflugnaræktar, og kenndi arftökum síðum við í býflugnaskólanum í Vín. Á þessum tíma ársins er líka allt að vakna til lífsins í býflugnabúunum á norðurhveli jarðar.



Hunang, þetta elsta sætuefni heims, er ríkt af næringarefnum og getur bætt heilsuna á svo margan hátt.


Græðarar hafa notað býflugnameðferð (apitherapy) í meira en 5.000 ár sem meðferð við ýmsum heilsufarslegum áskorunum, þar á meðal höfuðverk, liðverkjum og húðútbrotum.

Býflugnaeitur (apitoxin) hefur líka verið notað í meðferðir því það inniheldur amínósýrur, ensím og virk efnasambönd sem hafa bólgueyðandi eiginleika, draga úr sársauka og stuðla að jafnvægi í ónæmiskerfinu.


Við þekkjum notkun á náttúrulega sýklalyfinu Própólis, blómafræum (pollen) og drottningarhunangi sem ætlað er til inntöku. Býflugnavax er svo algengt í allskonar snyrtivörur.


Framþróun á svið býflugnameðferðar flýgur fram og þar eru Slóvenar í fararbroddi. Býflugnaafurðum er því gert sérstaklega hátt undir höfði í Slóveníu.


Undanfarin ár, hefur býflugnarækt í bæ og borg verið í hraðri þróun, sérstaklega í höfuðborginni, Ljubljana. Borgaryfirvöld stæra sig af þeirri staðreynd að 3% allra býflugnaræktenda í landinu sé að finna innan borgarmarkanna og að þar séu um 4.500 býflugnabú sem framleiða hunang.


Býflugnabúin eru líka þekkt fyrir skemmtilega skreyttar framhliðar, sem eru málaðar með fjölbreyttu myndmáli og eru í dag orðin vinsæl vara á antik-mörkuðum og sem minjagripir.





Svo má ekki gleyma að minnast á drottningu drottninganna. Það er Carniola býflugnadrottningin (Apis mellifera carnica) sem er mjög algeng um allan heim.






Recent Posts

See All

コメント

5つ星のうち0と評価されています。
まだ評価がありません

評価を追加
bottom of page