top of page
2025 Maria Callas tónlistarferð

Markhópur ferðarinnar er tónlistar- og söngáhugafólk og hreinræktaðir Maria Callas aðdáendur. Við förum á staði sem tengjast hennar lífi á Ítalíu með einum eða öðrum hætti.

Miði í góð sæti (poltrona) á stórkostlega nýja uppfærslu af AIDA eftir Verdi á óperulistahátíðina í Arenunni Verona er innifalinn í verði.

unnamed (7).png

Við byrjum fyrstu tvær næturnar í Verona sem  óumdeilanlega ein af borgum ástarinnar. Þar förum við á ógleymanlega nýja uppfærslu á AIDA eftir Verdi í Arenunni. Auk þess förum við í fylgd með leiðsögn á þá staði sem tengjast Maria Callas í Verona. Þar göngum við í hennar fótspor og kynnumst sögustöðum bogarinnar sem tengjast henni og tónlistarlífinu. Verona er staðurinn sem Maria Callas kom fyrst til á Ítalíu og hún debúteraði í Arenunni.


Þessar fyrstu tvær nætur verður dvalið á hótelinu Leon d‘Oro****+ sem er klassískt hótel í göngufæri við miðbæ Verona.


Eftir það færum við okkur til bæjarins Garda við Gardavatn þar sem dvalið verður það sem eftir lifir ferðar. Gardavatn er staður sem allir elska og þangað er hægt að koma aftur og aftur og uppgötva nýja og spennandi staði í hverri ferð. Það eiga allir sinn uppáhaldsbæ við vatnið.


Dvalið verður á hótelinu Ccsem stendur alveg niður við vatnið. Hótelið er rótgróið og fjölsyldurekið með smekklega innréttuðum herbergum. Tvíbýlin eru ýmist götumegin eða snúa að vatninu. Góð aðstaða er á efstu hæð hótelsins til að sóla sig og njóta útsýnisins yfir vatnið.


Farið verður í skoðunarferðir og siglt vítt og breitt um vatnið en einnig er möguleiki að slaka á í bland við skipulagðar ferðir. Við förum til Sirmione þar sem Callas dvaldi oft og tíðum. Við göngum um bæinn og út á hinn stórkostlega tanga þar sem Catullo rústirnar er að finna.


Tónlistarlífið á þessum slóðum á sumrin er fjölbreytt og viðburðir tíðir. Í Bardolino, nágrannabæ Garda, eru jafnframt sumaróperutónleikar sem gaman er að hlusta á. Gardavatn er staður sem allir elska og þangað er hægt að koma aftur og aftur og uppgötva nýja og spennandi staði í hverri ferð. Það eiga allir sinn uppáhaldsbæ við vatnið.

Brottfarardaginn komum við á safn sem er í bígerð fyrir Maria Callas í bæ sem heitir Zevio og svo heimsækjum við hið heimsfræga Prosecco svæði og fáum búbblur við hæfi fyrir brottförina.


Fararstjóri býður upp á fræðslu um söngdívuna elskuðu sem átti sín bestu ár á þessu svæði. Við munum nota hvert tækifæri til að kynnast lífi og starfi Maria Callas betur og sækja tónlistarviðburði.

Ferðin er í sölu hjá Heimsferðurm sem sér um bókanir, innheimtu, skilmála og tryggingar skv. ferðakskrifstofuleyfi nr. 2022-028 gefnu út af Ferðamálastofu.


Verð

339.000 kr. á mann í tvíbýli götumegin

384.000 kr. á mann í tvíbýli sem snýr að vatninu

359 .000 kr. fyrir lítið einbýli.

439.000 kr fyrir stórt einbýli


HÉR er hægt að bóka tvíbýli

HÉR er hægt að bóka einbýli


Innifalið: Flug með Play air og ein innrituð taska. Gisting á 3ja og 4ra stjörnu hótelum í 7 nætur með morgunverði. Óperukvöldverður með drykkjum. Allur akstur og siglingar sem getið er um í ferðalýsingu. Kvöldverður við komuna til Garda. Aðgangur á Maria Callas safn. Miði í góð sæti (poltrona) á AIDA eftir Verdi í Arenunni. Fræðsla um Maria Callas, tónlist og söngvara sem tengjast innihaldi ferðarinnar. Staðarleiðsögn eins og við á og fararstjórn allan tímann.


Ekki innifalið: Gistináttaskattur á hótelum og þjórfé eins og við á hverju sinni.

Fararstjóri býður upp á fræðslu um söngdívuna elskuðu sem átti sín bestu ár á þessu svæði. Við munum nota hvert tækifæri til að kynnast lífi og starfi Maria Callas betur og sækja tónlistarviðburði.


Blogg um kvikmynd sem er í framleiðslu um ævi Mariu Callas. Aðalhlustverkið leikur Angelina Jolie.


Hér er facebook hópur fyrir áhugasama 

Dagur 1 – Komudagur - FIM 19. júní

Flogið er síðdegis til Feneyja með PLAY þar sem lent er kl. 21:20. Við höldum rakleiðis til Verona þar sem við gistum fyrstu tvær næturnar. á Hótel Leon d'Oro esm er 4*+ hótel.

Dagur 2 – Maria Callas í Verona og AIDA í Arenunni - FÖS 20. júní

Farið verður í fróðlega gönguferð um elsta hluta Veronaborgar sem er á UNESCO heimsminjaskrá. Við rekjum okkur í gegnum fótspor Mariu Callas og þá staði sem hún hafði oftast viðkomu á, þar sem hún bjó og gifti sig.

Auk þess kynnumst helstu kennileitum borgarinnar, tónlistarsögu, fólki og viðburðum sem hafa komist á spjöld sögunnar. Við heyrum um Rómeó og Júlíu og aðrar sögur um þessa borg ástarinnar og njótum mannlífsins.

Gert verður hlé á dagskránni til að búa sig fyrir kvöldið því við munum borða saman á fallegum veitingastað áður en farið er á óperusýningu í Arenunni. Sýningin byrjar kl. 21:30 og lýkur rétt eftir miðnætti. Við sofnum með enduróminn af AIDA í eyrunum.

unnamed.jpg
Dagur 3 – Garda - LAU 21. júní

Við færum okkur að Gardavatni í dag og komum okkur fyrir á fallegum hóteli við vatnsbakkann í bænum Garda. Hótelið heitir Conca d‘Oro https://concadorohotel.it/ og er 3 stjörnur+

Eftir að við höfum komið okkur fyrir fer fararstjóri í kynnisferð um bæinn. Við kynnumst sögunni, umhverfinu og helstu gönguleiðum í nágrenninu. Rómantískir göngustígar liggja meðfram vatningu og fyrir þá sem vilja útsýnisgöngu er möguleiki að rölta út á tangann sem rammar inn víkina sem Garda stendur við. Það má jafnvel bregða sér upp á klettinn fyrir ofan bæinn og njóta útsýnisins yfir allan suðurhluta vatnsins.

Sameiginlegur kvöldverður á hótelinu um kvöldið innifalinn.

unnamed (1).jpg
Dagur 4 – Bardolino - SUN 22. júní

Við bregðum undir okkur betri fætinum og skoðum nágrannabæinn Bardolino sem er m.a þekktur fyrir vín- og ólífurækt. Gangan á milli bæjanna tekur um 45 mínútur. Við kynnumst notalegum miðbæjarkjarna með veitingastöðum, kaffihúsum, smáverslunum og skemmtilegu mannlífi. Einnig skoðum eina af elstu kirkjum á svæðinu, San Zeno, sem er vel falin en kemur á óvart.

Um kvöldið mætti skella sér á óperutónleika í Bardolino sem haldnir eru í afhelgaðri kirkju þar í bænum.

unnamed (4).png
Dagur 5 - Ferð til norðurhluta vatnsins – Malcesine, Limone, Riva - MÁN 23. júní

Heilsdagsferð til norðurhluta vatnsins. Farið með rútu til Malcesine sem stendur við norðausturenda Gardavatnsins þangað er tæplega klukkutíma akstur. Scaligero kastalinn setur sterkan svip sinn á bæinn og í bakgrunni gnæfir fjallið Monte Baldo. Bærinn er einstaklega skemmtilegur með þröngum hellulögðum strætum, litlum veitingastöðum, kaffihúsum og spennandi sérverslunum og er mikið eftirlæti ferðamanna.

Síðan siglum við þvert yfir vatnið til bæjarnis Limone og kynnum okkur þennan sérstaka bæ. Fararstjóri stingur upp á veitingastað þar sem við getum borðað saman, ef vill. Bærinn stendur við þverhnípt fjallið og var einangraður langt fram eftir síðstu öld.

Þaðan er siglt til bæjarins Riva þar sem við dveljum þar til síðdegis þar til rútan kemur að sækja okkur. Verðum komin aftur heim um kl. 18:30

unnamed (2).jpg
Dagur 6 – Sirmione - ÞRI 24. júní

Við siglum til Sirmione og skoðum bæinn þveran og endilangan og finnum húsið hennar Mariu Callas. Yst á tanganum er að finna áhugaverðar rómverskar menjar sem líklega eru ein stærsta rómverska villa sem fundist hefur. Svo er hægt að njóta stemmingarinnar í þessum einstaka bæ, þar sem ísbúðirnar eru á hverju götuhorni. Við heyrum um veru Maria Callas í Sirmione og göngum að húsinu sem þau hjónin áttu þar. Fleiri skemmtilegar sögur tengjast þessum stórkostlega bæ sem er einn mest heimsótti bærinn við Gardavatnið.

unnamed (3).jpg
Dagur 7 – Frjáls dagur - MIÐ 25. júní

Dagurinn er frjáls. Fararstjóri gefur upplýsingar og aðstoðar þá sem vilja að skipuleggja dægradvöl dagsins.

unnamed (4).jpg
Dagur 8 – Zevio - Safn um Maria Callas og Prosecco - FIM 26. júní

Við skráum okkur út af hótelinu og eftir hádegisverð leggjum við af stað eftir hádegið.
Á leiðinni á flugvöllinn stoppum við í smábæ sem tengist sögu Maria Callas á Ítalíu. Þar er orðinn til vísir að safni um hana og hennar muni. Þar átti fjölskylda Meneghini eiginmanns Maria rætur sínar og eignir og þau hjónin dvöldu þar oft. Tónlistarskólinn í bænum ber hennar nafn. Auk þess munum við fara í skemmtilega vínsmökkun í Prosecco héraðinu þar sem þetta fræga vín á uppruna sinn og er á verndarskrá UNESCO.

unnamed (5).png

unnamed (5).png


unnamed (5).png
bottom of page