top of page
2026 - Kalabría frá Akureyri - Gengið yfir ristina

29. september til 8. október - Beint flug frá AKUREYRI

Flogið er í leiguflugi Heimsferða með ítalska flugfélaginu Neos air frá Akureyri til Lamezia Term í Kalabría


Kalabría myndar “tána” (og tábergið og ristina) á ítalska stígvélinu. Í suðri skilur einungis lítið sund héraðið frá Sikiley. Sundið heitir Messínasund.


Þetta er ekki bara ganga, heldur ferð inn í hið ósvikna hjarta Kalabríu, þar sem hvert skref segir sína sögu. Leiðin liggur um kyrrlát fjallaþorp þar sem tíminn virðist hafa staðið í stað og gestir fá að kynnast daglegu lífi heimamanna. 


Kalabría hefur lengi verið minna sótt en aðrir ítalskir áfangastaðir. Kalabria Coast to Coast gönguleiðin er til komin með það að markmiði að dreifa ferðamönnum frá fjölmennum strandborgum inn í fjöll og þorp og styðja við brothætta innviði þar sem mörg þorp voru á leið í eyði.


Ferðin hentar þeim sem vilja upplifa Ítalíu á annan hátt – utan alfaraleiða, í nánum tengslum við náttúruna og með sterka tilfinningu fyrir staðinn og menninguna.


Á þremur göngudögum leggjum við að baki um 55 km leið, skipt niður í vel skipulagða áfanga. Á kvöldin njótum við afslöppunar á notalegum gistiheimilum, þar sem heimagerður matur og hlýtt andrúmsloft setja punktinn aftan við góðan göngudag.


Gistingin sem boðið er upp á í gönguferðinni eru herbergi á litlum gistiheimilum eða sveitagisting í eigu heimamanna þar sem matur, fólk og stemning skipta meira máli en lúxus.


Fararstjóri


Ágústa Sigrún er menntaður leiðsögumaður frá Leiðsöguskóla Íslands og hefur um árabil unnið við fararstjórn á Ítalíu, Króatíu, Slóveníu og í sérferðum. Hún hefur  mannauðsstjórnun og markþjálfun að aðalstarfi en er með bakgrunn úr listgreinum, er menntuð söngkona og söngkennari og hefur tekið þátt í sviðsuppfærslum og gefið út geisladiska.


Hún hefur verið með annan fótinn í fararstjórn frá upphafi aldarinnar og það lítur út fyrir að hún hafi átt einhver fyrri líf á Ítalíu. Ferðirnar sem hún setur saman mótast af hennar áhugasviði sem eru hreyfing, menning, tónlist og léttleiki.


Ágústa Sigrún talar ítölsku, ensku og þýsku og er að læra slóvensku. Einnig heldur hún úti ferðabloggi þar sem hún varpar upp áhugaverðum vinklum um ýmislegt tengt ferðalögum: www.flandrr.is

unnamed (7).png

Hámarksfjöldi í gönguferðina er 16 manns. Í boði eru 7 tvíbýli og 2 einbýli fyrir samtals 16 þátttakendur í gönguferðina þar sem gist er þrjár nætur á mismunandi gistiheimilum. Möguleiki er að fá þriggja manna herbergi, en þá þarf að senda sérstaka fyrirspurn vegna þess.


Seinni sex dagana er gist á Hotel Tropis í bænum TROPEA í Kalabría, í tvíbýli eða einbýli í samræmi við bókun.


Gangan er samtals 55 km og skiptist þannig niður á þessa þrjá göngudaga.

  1. Fyrsti áfangi: 18,7 km – hækkun 835 m – lækkun 420 m - Þetta er nokkuð kröftugur áfangi upp í móti en á þessum árstíma ætti ekki að vera mjög sterk sól. Áætlaður tími er ca. 6-7 tímar með hádegishléi.

  2. Annar áfangi: 21,4 km –  hækkun 705 m – lækkun 520 m - Sá lengsti og mest krefjandi. Hann byrjar á um tveggja klukkustunda göngu upp á við, restin er auðveldari viðureignar. Áætlaður tími er ca. 7-8 tímar með hádegishléi.

  3. Þriðji áfangi: 19,9 km – hækkun 584 m – lækkun 865 m - Sá auðveldasti, næstum allur niður á við en með nokkrum hæðum upp á við, ekki mikið skjól frá sólinni.  Áætlaður tími er ca. 6-7 tímar með hádegishléi.


Gönguleiðin flokkast sem miðlungs erfið (moderate). Ekki tæknilega erfið (engin klifur eða hættuleg svæði) og hentar flestum sem eru í ágætu gönguformi. 

Kalabría hérað er rúmir 15.000 ferkílómetrar að stærð og íbúarnir eru u.þ.b. 2 milljónir. Héraðið er 248 km að lengd frá norðri til suðurs en einungis 110 km þar sem það er breiðast frá austri til vesturs en þess má geta að strandlengja héraðsins er u.þ.b. 710 km að lengd.

Héraðið er að mestu ósnortið af fjöldatúrisma enn sem komið er. Þeir sem til þekkja segja þó að svæðið ætti að vera einn heitasti staðurinn enda fallegar strendur og einstök náttúra til staðar. 

Heimsferðir er með ferðina í sölu og sér um bókanir, innheimtu, skilmála og tryggingar skv. ferðakskrifstofuleyfi nr. 2022-028 gefnu út af Ferðamálastofu.


HÉR er hægt að bóka tvíbýli. Verð 329.000 kr. á manninn. Einbýlin kosta 369.000 kr.


Innifalið er:

  • Flogið er til Lamezia Terme flugvallarins í beinu flugi frá Akureyri.

  • 3 nætur á gistiheimilum (B&B) á meðan á gönguferð stendur og 6 nætur á Hotel Tropis i Tropea sem er 4ra stjörnu hótel

  • Morgunverður alla dagana.

  • 3 nestispakkar fyrir hádegisverð og 3 kvöldverðir á meðan á gönguferð stendur.

  • Göngupassi og viðurkenningarskjal í lok ferðar.

  • Tartufo-ís að göngu lokinni.

  • Gönguleiðsögumaður í gönguferðinni.

  • Íslenskur fararstjóri: Ágústa Sigrún.

  • Fundur með fararstjóra á Zoom fyrir brottför.

  • Akstur á komudag frá Lamezia-flugvelli til Soverato þar sem gist er fyrstu nóttina og gangan hefst.

  • Akstur frá Pizzo á hótelið þar sem dvalið er frá 2. október.

  • Akstur á flugvölinn á brottfarardegi.

  • Flutningur á farangri göngudagana - trúss á milli staða.

Ekki innifalið:

  • Gistináttaskattur í 6 nætur.

  • Skoðunarferðir á vegum Heimsferða eftir að gönguferð lýkur.

  • Þjórfé.

Í seinni hluti ferðarinnar, eftir að gönguferð lýkur, er dvalið á fjögurra stjörnu hóteli, Hotel Tropis, í bænum TROPEA sem er ein af perlunu við Týrenna-hafið. Hægt er að taka þátt á almennri dagskrá Heimsferða og bóka skoðunarferðir sem í boði verða. 

Dagur 1 - Akureyri - Kalabría og Soverato ÞRI - 29. september

Flogið frá Akureyri til  Lamezia Terme flugvallarins í Kalabría. Farangur sorteraður og akstur á hótelið í Soverato þar sem gist er fyrstu nóttina. Farangurstaska sem geyma á á hóteli á meðan á gönguferð stendur verður komið í réttar hendur. Akstur til Soverato tekur klukkutíma. Innritun á hótel í Soverato og frjáls tími. Sameiginlegur kvöldverður og gisting í eina nótt.

Dagur 2 - Fyrsti göngudagur frá SOVERATO til PETRIZZI - 30. september

18,7 km – hækkun 835 m – lækkun 420 m


Morgunverður á hótelinu, fundur með leiðsögumanni og fararstjóra og afhending vegabréfs göngumannsins. Brottför í fyrsta áfanga gönguleiðarinnar frá Soverato til Petrizzi.

Á leiðinni njótum við stórkostlegs útsýnis yfir tærbláan sjó og strendur Squillace flóa. Gengið er í gegnum þorpið Petrizzi og haldi áfram á sveitagistiheimili. Innritun og upplifun með heimamönnum. Kvöldverður og gisting í eina nótt.

unnamed.jpg
Dagur 3 – Annar göngudagur. PETRIZZI – MONTEROSSO - 1. október

21,4 km – hækkun 705 m – lækkun 520 m

Morgunverður á sveitagistiheimili og brottför eftir leiðinni sem liggur að þorpinu San Vito sullo Ionio. Gangan heldur áfram í sveitalegu umhverfi þar til komið er að Acero vatni þar sem við nærum okkur á nestispakkanum okkar.

Gengið er um tignarlegan beykiskóg og áfram upp á fjallshrygginn Monte Coppari þar sem „álfasteinninn“ (pietra della fata) er skoðaður. Kalabría á líka sína álaga- og ævintýrasteina og við kynnumst þeim sögum. Síðan tekur við brött niðurleið að fallega þorpinu Monterosso Calabro með stórbrotnu sýn yfir Angitola vatnið og Týrennahafið. Innritun á gistiheimilið, kvöldverður á veitingastað og gisting í eina nótt í Montrerosso.

unnamed (1).jpg
Dagur 4 - Þriðji göngudagur - MONTEROSSO – PIZZO - 2. október

19,9 km – hækkun 584 m – lækkun 865 m
Morgunverður og brottför til Pizzo Calabro. Gangan hefst eftir götum Monterosso og niður að Angitola náttúruverndarsvæðinu, sem er heimili gráhegrans. Þaðan liggur leiðin upp að Rocca Angitola með glæsilegu útsýni yfir Serre-fjöllin, Sant’Eufemia-flóa og á heiðskírum dögum allt til Stromboli.
Síðan er gengið niður í miðbæ Pizzo, þar sem boðið er upp á ís á Piazza della Repubblica. Við Murat kastalann er vegabréfi göngumannsins skilað inn og viðurkenningarskjal afhent og göngunni fagnað. Eftir að hafa smakkað hinn margfræga Tartufo ís og fagnað göngunni er akstur á hótelið í Tropea.

Um Murat: https://www.flandrr.is/post/hundadagakonungur-i-pizzo

unnamed (4).png
Dagur 5 - 13 - Dvalið í TROPEA frá 3. - 8. október

Hotel Tropis er 115 herbergja hótel , staðsett í um 350 metra fjarlægð frá miðbæ Tropea og Dómkirkju hinnar heilögu Maríu.

Hótelið er vel staðsett upp í hlíðinni fyrir ofan miðbæinn og þaðan er fallegt útsýni yfir Tropea. Á hótelinu eru 2 sundlaugar, líkamsrækt og heilsulind. Í heilsulindinni er hægt að panta tíma í fjölda andlits og líkamsmeðferða gegn gjaldi.

Veitingastaður er á hótelinu þar sem morgunverðarhlaðborðið fer fram ásamt því að hægt er að njóta góðs matar á kvöldin. Snack-bar er við sundlaugina.

Herbergin eru rúmgóð og hlýlega innréttuð. Í öllum herbergjum eru loftkæling, sjónvarp, öryggishólf, mini-bar og á baðherbergi er hárþurrka.

Hér er Facebook hópur fyrir ferðina: https://www.facebook.com/groups/heimsferdir.calabria

unnamed (2).jpg


unnamed (3).jpg


unnamed (4).jpg

unnamed (5).png


unnamed (5).png

unnamed (5).png

Uppruninn
  • Facebook
  • Instagram

Flandrr ferðamiðstöð varð til sem umgjörð og samnefnari fyrir ferðablæti Ágústu Sigrúnar.

 

Í hinu alræmda kófi magnaðist ferðaþráin mjög mikið og Ágústa ákvað að bjóða landsmönnum í sýndarferðalög í gegnum Zoom. Heimsferðir stukku strax á þessa hugmynd og þegar upp var staðið höfðu orðið til 10 sýndarferðalög og yfir 10.000 manns höfðu tekið þátt.

Í framhaldinu fannst henni eðlilegt að útfæra allan þann fróðleik sem hún hafði bætt við sig með einhverjum hætti og pistlaskrifin hófust. Í kjölfarið urðu til hugmyndir að ferðum sem mótast af hennar áhugasviði sem eru hreyfing, menning, tónlist og léttleiki.  

 

Heimsferðir og/eða Fiðrildaferðir eru söluaðili ferðanna og sjá um bókanir, innheimtu, skilmála og tryggingar skv. ferðakskrifstofuleyfi  gefnu út af Ferðamálastofu.​

Flandrr ferðamiðstöð

© 2023 Flandrr. Website by CC Website Design.

bottom of page