top of page
Writer's pictureÁgústa Sigrún Ágústsdóttir

Hvað er svo glatt

Updated: Mar 31

Hvað er svo glatt sem góðra vina fundur, er gleðin skín á vonarhýrri brá? Eins og á vori laufi skrýðist lundur, lifnar og glæðist hugarkætin þá. Og meðan þrúgna gullnu tárin glóa og guðaveigar lífga sálaryl, þá er það víst, að beztu blómin gróa í brjóstum, sem að geta fundið til.


Guðaveigar koma í raun fyrst fram í vísunni „Hvað er svo glatt.“ Það virðist hafa verið óþrjótandi orðabrunnurinn sem Jónas Hallgrímsson sótt í. Auk kveðskaparins þá var Jónas orðasmiður og í þessari einu ljóðlínu koma fram tvö nýyrði, guðaveigar og sálarylur.


Máltilfinning hans og næmi fyrir blæbrigðum tungunnar var einstök og mörg þessara orða hafa munstrast vel inn í tungumálið. Ný orð og nýjar samsetningar í ljóðum og lausu máli virðast gamalkunn og eins og hluti af grunnorðaforða málsins.


Í dag eigum við orð eins og sporbaugur, miðflóttaafl, klakabundinn, fjaðurmagnaður, láréttur, hrímvhítur auk hins undurfagra orðs sálarylur sem guðaveigarnar lífga.



Á tíu þúsund króna seðlinum sem tileinkaður er Jónasi eru ýmis nýyrði hans sem mynda Háafjall og Hraundranga.


En hvernig tengjast guðaveigarnar Guði?


Margt bendir til þess að Jónas hafi verið með tilvísun í nectar, sem var guðdómlegur drykkur í grískri/rómverski goðfræði sem goðin á Ólympusfjalli drukku til að viðhalda sínu eilífa lífi. Ef mennskur maður fékk sér sopa varð hann líka ódauðlegur. Nectar var oftast vökvinn á meðan Ambrosia var maturinn eða fæðan en það er ekki óalgengt að því sé víxlað.


Heba, dóttir Heru og Seifs. Ímynd æskunnar
Heba, dóttir Heru og Seifs. Ímynd æskunnar

Málverk af hertogaynjunni Louise-Henriette de Bourbon-Conti (1726-1759), Duchess de Chartres, sem Heba. Málað af Jean-Marc Nattier og nemendum (1685-1766)


Í Hómerskviðum þýðir Sveinbjörn Egilsson orðið nectar sem ódáinsdrykk.


Á 16. öld verður merkingin almennari og nectar er notað um hvaða dýrindisdrykk sem er.


Þegar við tölum um guðaveigar í dag, erum við oftast að hugsa um gott vín eða hollan og næringarríkan drykk sem bragðlaukarnir gleðjast yfir. Stundum dugar okkur að hugsa um uppáhalds vínið okkar og þá mæta bragðlaukarnir til vinnu.


Bragðlaukar, ætli Jónas hafi líka smíðað það orð?

Recent Posts

See All

Comments

Rated 0 out of 5 stars.
No ratings yet

Add a rating
bottom of page