top of page

22.02. - Lokaathöfnin og Zenatello

  • Writer: Ágústa Sigrún Ágústsdóttir
    Ágústa Sigrún Ágústsdóttir
  • Feb 22
  • 3 min read

Updated: Feb 26

Lokaathöfn Vetrarólympíuleikanna var haldin í Arenunni í Verona þann 22. febrúar en það er líka fæðingardagur Giovanni Zenatello sem fæddist fyrir 150 árum síðan.


Hver var Giovanni Zenatello?

Ítalskur tenór og einn af stofnendum óperuhátíðarinnar í Arena di Verona. Hann spilaði lykilhlutverkið í því að reglulegar óperusýningar hófust í Arenunni. Árið 1913 var haldið var upp á 100 ára afmæli Giuseppe Verdi. Af því tilefni var sett upp stórkostleg sýning á óperunni Aida. Þar söng Zenatello hlutverk Radamès í Aida eftir Verdi.


Þetta markaði upphaf hinnar frægu óperulistahátíðar í Arenunni í Verona sem haldin verður í 103. sinn sumarið 2026. Zenatello var einn af frumkvöðlunum sem sá til þess að hátíðin varð að veruleika.


Lokaathöfn Vetrarólympíuleikann 2026 og afmælisdagur Zenatello
Lokaathöfn Vetrarólympíuleikann 2026 og afmælisdagur Zenatello
„Arenan er eina leikhúsið í heiminum þar sem má ekki aðeins hlusta á tónlistina, heldur líka horfa.“ — Giovanni Zenatello

Þessi setning vísar til stórbrotinnar sjónrænnar upplifunar í Arena di Verona, þar sem sviðsetningar eru gríðarlega stórar og áhrifamiklar undir berum himni.


Hér syngur Zenatello sjálfur í fyrstu uppfærslunni árið 1913
Hér syngur Zenatello sjálfur í fyrstu uppfærslunni árið 1913

Vetrarólympíuleikarnir 2026

Borgirnar Milano og Cortina voru gestgjafaborgir Vetrarólympíuleikanna og opnunarhátíðn var haldin á San Siro leikvanginum í Milano.


Valið á staðnum fyrir lokaathöfnina var meðvitað, þótt Verona hafi ekki hýst neina íþróttaviðburði á meðan á leikunum stóð liggur hún þægilega á milli gestgjafaborganna tveggja og gegnir hlutverki náttúrulegs skurðpunkts á milli fjalla og sléttlendis.


Umbætur til framtíðar

Í kvöld fær Arenan enn eina rósina í hnappagatið!


Það er búið að vinna að miklum endurbótum á þessu 2000 ára gamla mannvirki, enda kominn tími til að „rampa hana upp!".

  1. Bætt aðgengi fyrir fatlaða, því opnunarathöfn XIV Vetrarólympíuleika fatlaðra (Paralympics) fer einnig fram þar.

  2. Í tengslum við aðgengi var unnið að því að koma fyrir römpum sem geta verið bæði tímabundnar fyrir hátíðina sem verðs svo varanlegur hluti af aðstöðu Arenaunnar til framtíðar.

  3. Salerni hafa erið endurnýjuð

  4. Aðgengi og gangstéttir í kringum Arenuna hefur verið lagaðar, til að gera leiðir að og frá svæðinu greiðari og öruggari. Þetta er líka hluti af stærra verkefni til að vernda mannvirki sem eru á heimsminjaskrá en jafnframt til að uppfylla nútíma öryggis- og aðgengiskröfum.

  5. Ný handrið við stiga og innganga.


Þessi vinna tryggir að Arenan geti hýst allt að ~12 000 gesti á lokahátíðinni á öruggan og aðgengilegan hátt. Umbæturnar munu nýtast borgarbúum, ferðamönnum og viðburðum sem sett verða á svið um ókomin ár.

Zenatello á mikilvæga tengingu við Maria Callas.

Söngferill og starf Zenatello leiddi til þess að hann fluttist til New York. Þar rak hann vel þekktan söngskóla við Central Park. Í New York uppgötvaði hann ýmsa fræga söngvara, þar á meðal hina frægu Lily Pons, hinn mikla Nino Martini, samlanda sinn.


Hann var jafnframt listrænn stjórnandi hátíðarinnar og vann við að afla söngvara fyrir þær óperur sem settar voru á svið í Arenunni. Þegar Zenatello heyrði fyrst í Maria Callas vissi hann samstundis að hún myndi henta vel fyrir þess senu.


Maria Callas bjó reyndar lengi á Hotel Accademia í Verona sem var í eigu Zenatello fjölskyldunnar og er enn! Hún bjó í herbergi sem er enn innréttað eins og þá og heitir eftir henni.


Maria átti sína frumraun á Ítalíu 2. ágúst árið 1947 í La Gioconda eftir Ponchielli sem sett var á svið í Arenunni. Hljómsveitarstjóri sýningarainnar var Tullio Serafin, sem átti eftir að verða áhrifamikill í mótun söngferils Mariu.


Maria Callas og Meneghini á gangi á Piazza Brá torginu í Verona
Maria Callas og Meneghini á gangi á Piazza Brá torginu í Verona

Það verður margrómuð tónlistarferð til Verona og Garda í fótspor Maria Callas þann 13. - 20. júní 2026. Þar verður farið á nýja uppsetningu á AIDA í Arenunni.

Nokkur sæti laus.




Meira um Verona og Arenuna

Comments

Rated 0 out of 5 stars.
No ratings yet

Add a rating
Uppruninn
  • Facebook
  • Instagram

Flandrr ferðamiðstöð varð til sem umgjörð og samnefnari fyrir ferðablæti Ágústu Sigrúnar.

 

Í hinu alræmda kófi magnaðist ferðaþráin mjög mikið og Ágústa ákvað að bjóða landsmönnum í sýndarferðalög í gegnum Zoom. Heimsferðir stukku strax á þessa hugmynd og þegar upp var staðið höfðu orðið til 10 sýndarferðalög og yfir 10.000 manns höfðu tekið þátt.

Í framhaldinu fannst henni eðlilegt að útfæra allan þann fróðleik sem hún hafði bætt við sig með einhverjum hætti og pistlaskrifin hófust. Í kjölfarið urðu til hugmyndir að ferðum sem mótast af hennar áhugasviði sem eru hreyfing, menning, tónlist og léttleiki.  

 

Heimsferðir og/eða Fiðrildaferðir eru söluaðili ferðanna og sjá um bókanir, innheimtu, skilmála og tryggingar skv. ferðakskrifstofuleyfi  gefnu út af Ferðamálastofu.​

Flandrr ferðamiðstöð

© 2023 Flandrr. Website by CC Website Design.

bottom of page