top of page

Ancona olnboginn í Marche

  • Writer: Ágústa Sigrún Ágústsdóttir
    Ágústa Sigrún Ágústsdóttir
  • 2 days ago
  • 4 min read

Ancona hefur nýlega verið útnefnd ítalska menningarhöfuðborgin árið 2028.


Titillinn er árleg viðurkenning sem veitt er borgum á Ítalíu sem leggja sérstaka áherslu á menningu og listir. Þessi viðurkenning er mikilvæg fyrir borgina og svæðið í kring, þar sem hún mun auka sýnileika og opna dyr að fjölbreyttum menningarviðburðum og nýjum tækifærum fyrir íbúa og gesti.


Ancona er borg með ríka sögu sem nær aftur til fornaldar en hugmyndin með valinu er jafnframt að leggja áherslu á að menning sé ekki bara arfur – heldur verkfæri til að byggja framtíðina.


Auk hins virðulega titils fær Ancona 1 milljón evra í fjármögnun til að styðja menningarverkefnin sem bera heitið: Ancona: Questo adesso.



Ancona í gegnum Trajanusar bogann
Ancona í gegnum Trajanusar bogann

Borgin var stofnuð af Grikkjum og nafnið kemur af orðinu ankón („olnbogi“), sem vísar í lögun hafnarinnar. Hún var mikilvæg í Rómaveldi og sem verslunar- og siglingamiðstöð á miðöldum. Hún er enn í dag ein af mikilvægustu höfnunum við Adríahafið og ein af fáum ítölskum borgum sem snýr í austur (ekki vestur eins og flestar strandborgir). Þetta hefur gert hana að menningarlegum krossgötum milli Vestur-Evrópu og Austurlanda.


Alls sóttu 23 borgir um og úr þeim voru valdar 10 borgir í úrslit.

Hinar níu borgirnar í úrslitum fyrir 2028 voru: Anagni, Catania, Colle di Val d’Elsa, Forlì, Gravina in Puglia, Massa, Mirabella Eclano, Sarzana, Tarquinia.


Árið 2027 verður Pordenone menningarborg Ítalíu en í ár er það borgin L'Aquila. Árið 2025 var það Agrigento og Pesaro árið 2024. Viðurkenningin árið 2023 var með sérstökum hætti því þá urðu tvær borgir fyrir valinu, Bergamo og Brescia, en það voru þær borgir sem fóru hvað verst út úr Covid faraldrinum. Árið 2022 var það Procida og svo var Parma með titilinn í tvö ár í röð 2020-2021 á meðan á Covid stóð.


Menningararfurinn

Ancona er þekkt fyrir fallegan arkitektúr, söguleg mannvirki og lifandi menningarlíf. Borgin mun fá tækifæri til að kynna menningararfleifð sína, listir og nýsköpun í menningargeiranum á landsvísu og alþjóðavettvangi. Þetta felur í sér fjölbreytta dagskrá viðburða, sýninga, tónleika, leikrita og margt fleira.


Nokkur dæmi um menningararf sem Ancona státar af:

San Ciriaco dómkirkjan (Kirkja heilags Kýríakosar) frá 11. öld, og er blanda af rómönskum stíl (þykkir veggir, einföld form) og býsönskum áhrifum (hvelfingar og skipulag). Hún er í raun „samantekt“ á sjálfsmynd Ancona í einni byggingu. Sérkenni hennar er að hún er byggð í grískum krossi (ekki hefðbundnum latneskum)


👉 Þetta endurspeglar stöðu Ancona sem brú milli Vestur- og Austurmenningar. Kirkjan hefur oft verið endurbyggð, m.a. eftir jarðskjálfta, seinni heimsstyrjöld og önnur áföll.


👉 Hún er því líka tákn um þrautseigju borgarinnar. Hún stendur á hæsta punkti yfir borginni og býður upp á stórkostlegt útsýni






Lazzaretto (Mole Vanvitelliana), Fimmhyrnt mannvirki byggt á eyju frá 18. öld sem var notað sem sóttkvíarhús. Hannað af Luigi Vanvitelli. Í dag notað fyrir listasýningar, tónleika og menningarviðburði.


👉 Frábært dæmi um hvernig borgin endurvinnur söguleg rými fyrir nútímamenningu.






Traiano boginn. Sigurbogi frá tímum Trajanusar keisara (2. öld e.Kr.). Stendur við höfnina og markaði inngang að borginni frá sjó.


Boginn eða hliðið var byggt á til að fagna sigri hans á Dákíu og til að áherslu og mikilvægi hafnaraðstöðunnar í Ancona.


👉 Eitt best varðveitta rómverska minnismerki í Marche.










Stríðsminnismerki fallinna hermanna er staðsett á einum af fallegustu svæðum borgarinnar. Það var byggt af arkitektinum Guido Cirilli milli 1927 og 1930 og var opinberlega vígt 3. nóvember 1932.


Byggingarefnið er kalksteinn frá Istría skaganum og samanstendur af átta súlum og lítið altari er í miðjunni.


👉Á grunninn er ritað vers úr laginu „All’Italia“ eftir Giacomo Leopardi sem er einn af óskasonum Marche-héraðs.







Teatro delle Muse (Leikhús listagyðjanna): Aðalleikhús borgarinnar og miðpunktur fyrir óperuflutning, ballett, tónleika og leiklist. Leikhúsið er það stærsta í Marche héraði með 1147 og það 13. stærsta á Ítalíu.


Teatro delle Muse var fyrst opnað árið 1810 þegar Napóleon, var við föld. Leikhúsið var opið allt til síðari heimsstyrjaldar, þegar það skemmdist í eldi. Það opnaði aftur 13. október 2002 eftir að hafa verið lokað í meira en 60 ár.




Passetto‑hellarnir eru röð af rúmlega 500 hellum sem hafa verið handgrafnir inn í mjúkt bergið á strandlengjunni við Passetto‑ströndina í Ancona. Þeir voru grafnir af fiskimönnum frá miðri 19. öld og allt fram til 1960. Tilgangurinn var að geyma veiðarfæri og báta. Í dag er það mikill heiður og fengur að eiga slíkan skúr eða helli og oft er mikið líf við hellana á sumrin.




Undirbúningurinn fyrir 2028 er hafinn!

Titillinn ítalska menningarhöfuðborgin mun hafa jákvæð áhrif á samfélagið í Ancona. Með aukinni menningarstarfsemi eykst þátttaka íbúa í menningarlífi, sem styrkir samfélagslega tengingu og bætir lífsgæði.


Þessi viðurkenning verður einnig nýtt til að laða að gesti og listunnendur. Borgaryfirvöld vinna með listafólki, menningarstofnunum og samfélaginu öllu til að tryggja að árið verði eftirminnilegt.


Helstu áherslur í undirbúningnum eru:

  • Endurbætur á menningarstofnunum og sýningarrýmum.

  • Skipulagning fjölbreyttra viðburða sem ná til allra aldurshópa.

  • Samstarf við aðrar borgir og menningarstofnanir á Ítalíu og í Evrópu.

  • Stuðningur við unga listamenn og nýsköpun í menningargeiranum.





Mynd frá viðburðinum 18. mars 2026 þegar Ancona var útnefnd.
Mynd frá viðburðinum 18. mars 2026 þegar Ancona var útnefnd.

Það verður gaman af því að koma til Ancona næstu árin því þessi viðurkenning hefur alltaf verið lyftistöng fyrir þær borgir sem hefur hlotnast þessi heiður.







Comments

Rated 0 out of 5 stars.
No ratings yet

Add a rating
Uppruninn
  • Facebook
  • Instagram

Flandrr ferðamiðstöð varð til sem umgjörð og samnefnari fyrir ferðablæti Ágústu Sigrúnar.

 

Í hinu alræmda kófi magnaðist ferðaþráin mjög mikið og Ágústa ákvað að bjóða landsmönnum í sýndarferðalög í gegnum Zoom. Heimsferðir stukku strax á þessa hugmynd og þegar upp var staðið höfðu orðið til 10 sýndarferðalög og yfir 10.000 manns höfðu tekið þátt.

Í framhaldinu fannst henni eðlilegt að útfæra allan þann fróðleik sem hún hafði bætt við sig með einhverjum hætti og pistlaskrifin hófust. Í kjölfarið urðu til hugmyndir að ferðum sem mótast af hennar áhugasviði sem eru hreyfing, menning, tónlist og léttleiki.  

 

Heimsferðir og/eða Fiðrildaferðir eru söluaðili ferðanna og sjá um bókanir, innheimtu, skilmála og tryggingar skv. ferðakskrifstofuleyfi  gefnu út af Ferðamálastofu.​

Flandrr ferðamiðstöð

© 2023 Flandrr. Website by CC Website Design.

bottom of page