Konungsríki á himninum

Updated: 3 days ago
Lesótó er eitt óvenjulegasta ríki Afríku. Landið er fjalllent konungsríki sem liggur alfarið innan landamæra Suður-Afríku og er eina sjálfstæða ríki heims þar sem allt landsvæðið liggur í meira en 1.000 metra hæð yfir sjávarmáli. Ekki að undra að Lesótó gangi oft undir nafninu „Kingdom in the Sky“ – Konungsríki á himninum.
Landið er lítið, hrikalegt og stórbrotið. Há fjöll, djúpir dalir, ár og víðáttumikið graslendi einkenna landslagið og stór hluti þjóðarinnar býr enn í dreifbýli. Þar gegna sauðfjár- og geitarækt og annar landbúnaður mikilvægu hlutverki í daglegu lífi fólks, ekki síst vegna ullar- og móhárframleiðslu.

Þótt Lesótó sé algjörlega umlukið Suður-Afríku hefur landið varðveitt sterka eigin þjóðarvitund, menningu og hefðir.
Fjalllendi, náttúra og einstakt landslag
Stór hluti Lesótó er fjalllendi og Maloti-fjöllin setja sterkan svip á landið. Hér skiptast á háir tindar, djúpir dalir, gljúfur og grösug beitilönd og víða er útsýnið stórbrotið.
Hæðin hefur mikil áhrif á loftslagið. Vetur geta verið kaldir og snjóþungir á hálendinu og í Lesótó er meira að segja hægt að stunda skíði – nokkuð sem fæstir tengja við ferðalag um sunnanverða Afríku.
Vatn er ein verðmætasta náttúruauðlind landsins. Fjöllin safna mikilli úrkomu og vatn frá hálendi Lesótó er meðal annars flutt til Suður-Afríku. Fjalllendið gerir akuryrkju hins vegar erfiða og aðeins lítill hluti landsins hentar vel til ræktunar.
Basótó – þjóð með sterka menningararfleifð
Basótó-þjóðin hefur varðveitt sterka menningu og hefðir í gegnum aldirnar. Þjóðin á djúpar rætur í landinu og hefðbundnir lífshættir eru enn áberandi, sérstaklega í sveitum og afskekktari fjallahéruðum.
Eitt þekktasta tákn Lesótó er mokorotlo, hinn sérstaki keilulaga Basótó-stráhattur sem prýðir meðal annars fána landsins. Annað sterkt tákn þjóðarinnar er Basótó-teppið, þykkt ullarteppi með litríkum mynstrum sem er miklu meira en bara hlíf gegn kuldanum. Teppin eru hluti af þjóðbúningi Basótóa og tengjast ýmsum hátíðum og mikilvægum áföngum í lífi fólks.

Fjölskyldubönd og samfélagið skipta miklu máli og í sveitum landsins má enn sjá hefðbundna lífshætti samhliða nútímanum. Gestir upplifa því oft miklar andstæður – allt frá höfuðborginni Maseru til afskekktra fjallaþorpa þar sem daglegt líf hefur að mörgu leyti breyst hægar.

Íbúarnir nefnast Basótó og tungumálið er sesótó er eitt af bantúmálum sunnanverðrar Afríku, en enska er einnig opinbert tungumál.
Saga konungsríkisins
Saga Lesótó er nátengd Moshoeshoe I, sem sameinaði Basótó-þjóðina á fyrri hluta 19. aldar. Hann kom sér fyrir við Thaba Bosiu sem er einskonar náttúrulegt fjallavirki sem varð miðpunktur hins nýja ríkis og er enn einn mikilvægasti sögustaður landsins.
Lesótó var breskt verndarsvæði frá 1868 til 1966. Þegar landið fékk sjálfstæði frá Bretlandi 4. október 1966 tók það upp nafnið Kingdom of Lesotho – Konungsríkið Lesótó
Sani Pass og að ferðast um Lesótó

Ferðalag um Lesótó er ólíkt flestu öðru í sunnanverðri Afríku. Vegir geta verið torfærir, sérstaklega á hálendinu, og víða er fjórhjóladrifinn bíll nauðsynlegur. En einmitt einangrunin, fjöllin og hin sterka menning gera landið svo áhugavert.
Meðal þess sem ferðamenn geta upplifað eru gönguferðir um Maloti-fjöllin, heimsóknir í Basótó-þorp, hestaferðir um hálendið og heimsókn til hins sögufræga Thaba Bosiu.
Þegar loks er komið upp á hálendið, eftir ævintýralegt klifur upp Sani Pass, blasir við allt annar heimur – víðáttumikið fjalllendi, hrikaleg náttúra og lítil samfélög Basótó-fólksins.
Lesótó er kannski ekki land sem allir setja efst á ferðalistann sinn. En fyrir þá sem vilja kynnast öðruvísi Afríku – fjalllendi, sterkri menningu og samfélagi langt frá hefðbundnum ferðamannaslóðum – er Konungsríkið á himninum sannarlega þess virði að heimsækja.
Ein stórbrotnasta leiðin inn í landið er þó Sani Pass, fjallvegurinn sem klifrar upp úr KwaZulu-Natal í Suður-Afríku og upp á hálendi Lesótó. Vegurinn liðast í ótal kröppum beygjum upp bratta fjallshlíðina og sjálft ferðalagið upp er ævintýri út af fyrir sig.

Riding the Dragon
Sani Pass hefur stundum verið lýst sem því að „ríða drekanum“ – Riding the Dragon. Það er ekki erfitt að sjá hvers vegna þegar horft er yfir veginn þar sem hann liðast í kröppum hlykkjum upp brattar hlíðar Drakensberg-fjallanna.
Heitið varð meðal annars þekkt með bókinni Sani Pass: Riding the Dragon eftir David Alexander, sem kom fyrst út árið 1992 og segir frá því hvernig þessi hrikalega fjallaleið þróaðist í akfæran veg milli KwaZulu-Natal og Lesótó.
Fyrstu bílferðirnar yfir Sani Pass voru sannkallað ævintýri. Árið 1948 tókst að koma Willys-jeppa upp leiðina, en sumar beygjurnar voru svo krappar að færa þurfti bílinn til með handafli til að komast fyrir þær. Síðar var leiðin smám saman endurbætt og varð mikilvæg tenging við hálendi Lesótó.
En þótt vegurinn hafi breyst er tilfinningin enn sú sama: ferðin upp Sani Pass er ekki bara leiðin til Lesótó – hún er hluti af ævintýrinu.
Komdu með til Lesótó
Lesótó er því kannski ekki land sem allir setja efst á ferðalistann sinn. En fyrir þá sem vilja kynnast öðruvísi Afríku er Konungsríkið á himninum sannarlega þess virði að heimsækja.
Þangað er einmitt ferðinni heitið í mars 2027. Ferðin í febrúar 2026 seldist upp á skömmum tíma og nú endurtökum við leikinn.
Ferðin er 18 dagar - frá 18. mars til 4. apríl 2027, en þar sem hún nær yfir páskahátíðina þarf aðeins að taka 9 vinnudaga í frí! Tilvalið tækifæri til að nýta páskafríið í ævintýri í Suður-Afríku og Lesótó.
Verðið í forskráningu er 899.000 kr á mann í tvíbýli sem er um 90.000 kr. afsláttur almennu verði á manninn. Viðbót fyrir einbýli er 165.000 kr.
Forskráningarverðið gildir fyrir fyrstu 10 sætin eða til 1. október 2026 í síðasta lagi
HÉR getur þú forskráð þig og tryggt þér 90.000 kr. afslátt.

.png)



Comments