top of page

María í Makarska

  • Writer: Ágústa Sigrún Ágústsdóttir
    Ágústa Sigrún Ágústsdóttir
  • May 13
  • 2 min read

Updated: May 16

Þegar keyrt er inn til bæjarins Makarskaí Króatíu er helgidómur finnum við helgidóm Jómfrúarinnar (Maríu mey) frá Lourdes upp í hlíðinni.


Þessi helgidómur var reistur af héraðsbiskupi Split og Makarska, Juraj Carić, sem sem var héraðsbiskup Split-Makarska frá 1906 til 1918 og aðalbiskup frá 1918 til 1921.


Upprunalegi staðurinn þar sem María mey á að hafa birst er einn frægasti pílagrímsstaður kaþólsku kirkjunnar. Ung stúlka, Bernadette Soubirous, taldi sig hafa séð jómfrúnna árið 1858 í bænum Lourdes í Frakklandi.



Umræddur biskup fékk vitrun eftir heimsókn sína til Lourdes í Frakklandi og breytti hellinum í helgidóm með því að setja styttu af Maríu meyi fyrir framan hann ásamt altari. Hann vígði staðinn á hátíðardegi Jómfrúarinnar af Lourdes þann 11. febrúar 1909.


Eftir það var svæðið smám saman fegrað, stækkað og skipulagt til að mæta þörfum pílagríma. Vinsældir helgidómsins jukust mjög vegna pílagrímaferða sem áðu í Vepric á leið sinni til Međugorje í Bosníu-Hersegovínu.


Helgidómurinn er einnig heimsóttur af fjölmörgum ferðamönnum sem verja fríum sínum á þessum hluta Adríahafsstrandarinnar.


  • 2001: Samhliða stöðugum endurbótum á núverandi mannvirkjum var árið 2001 reist bygging með kapellu og annarri nauðsynlegri aðstöðu fyrir ýmsar samkomur, fundi og andlegar kyrrðarstundir.

  • 2008: var byggður ráðstefnusalur með 173 sætum.

  • 2014: Vegna aukins áhuga stærri hópa á gistingu og andlegri aðstöðu hófst árið 2014 bygging annars húss á stað gamla hússins, sem átti að auka gistirými núverandi húsnæðis, en þær framkvæmdir fóru í þrot og eftir standa steinsteypu-klumpar.


Helstu hátíðahöld í Vepric eru á boðunardegi Maríu og á aðfangadegi og hátíðardegi Jómfrúarinnar, þegar mikill fjöldi pílagríma fyllir stóra torgið. Ýmsar trúarathafnir fara fram í helgidóminum: skriftir, rósakransbænir, krossganga, messa, kvöldganga með kertaljósum, blessun sjúkra o.fl.



Helgidómurinn hefur sinn eigin forstöðumann og trúarlegan staðarhaldar sem búa þar að staðaldri.


Í helgidóminum er einnig að finna gröf biskupsins Juraj Carić.


Hægt er að fá sér göngutúr þarna uppeftir og taka þátt í helgiathöfnum.




Ganga frá Hotel Aminess Laurel Khalani að helgidóminum

  • Fjarlægð: um 900 metrar – 1,2 km

  • Tími: um um 20 mínútur+ gangandi

  • Leið: að mestu eftir aðalvegi (Ivana Gorana Kovačića) og svo eftir malarstíg síðasta spölinn.


Dagskrá messa og trúariðkana

Frá 01.10. til 30.04.

Mánudaga til laugardaga:

  • Morgunmessa: kl. 06:55

  • Síðdegismessa: kl. 15:30

  • Rósakransbæn: kl. 15:00

  • Skriftir: kl. 15:00–15:30


Sunnudaga og helgidaga:

  • Morgunmessa: kl. 08:00

  • Síðdegismessa: kl. 15:30

  • Rósakransbæn: kl. 15:00

  • Skriftir: kl. 15:00–15:30


Frá 01.05. til 30.09.

Mánudaga til laugardaga:

  • Morgunmessa: kl. 06:55

  • Kvöldmessa: kl. 19:00

  • Rósakransbæn: kl. 18:30

  • Skriftir: kl. 18:30–19:00


Sunnudaga og helgidaga:

  • Morgunmessa: kl. 08:00

  • Kvöldmessa: kl. 19:00

  • Rósakransbæn: kl. 18:30

  • Skriftir: kl. 18:30–19:00


Altarisganga og tilbeiðsla: fimmtudaga eftir messu

Kvöldrósakrans í helgidóminum: á hverju kvöldi kl. 21:00

Skriftir: daglega hálftíma fyrir síðdegis- eða kvöldmessu, eða eftir samkomulagi




Heimildir af veraldarvefnum og víðar:

Comments

Rated 0 out of 5 stars.
No ratings yet

Add a rating
Uppruninn
  • Facebook
  • Instagram

Flandrr ferðamiðstöð varð til sem umgjörð og samnefnari fyrir ferðablæti Ágústu Sigrúnar.

 

Í hinu alræmda kófi magnaðist ferðaþráin mjög mikið og Ágústa ákvað að bjóða landsmönnum í sýndarferðalög í gegnum Zoom. Heimsferðir stukku strax á þessa hugmynd og þegar upp var staðið höfðu orðið til 10 sýndarferðalög og yfir 10.000 manns höfðu tekið þátt.

Í framhaldinu fannst henni eðlilegt að útfæra allan þann fróðleik sem hún hafði bætt við sig með einhverjum hætti og pistlaskrifin hófust. Í kjölfarið urðu til hugmyndir að ferðum sem mótast af hennar áhugasviði sem eru hreyfing, menning, tónlist og léttleiki.  

 

Heimsferðir og/eða Fiðrildaferðir eru söluaðili ferðanna og sjá um bókanir, innheimtu, skilmála og tryggingar skv. ferðakskrifstofuleyfi  gefnu út af Ferðamálastofu.​

Flandrr ferðamiðstöð

© 2023 Flandrr. Website by CC Website Design.

bottom of page