Styttur í Marche
- Ágústa Sigrún Ágústsdóttir

- Jul 31
- 2 min read
Hafmeyjan í Kaupmannahöfn á sér systur í Marche á Ítalíu og Kristur í Rio de Janeiro á sér kollega. Meira að segja Charles Bronson á tvífara!
Penelópa
Hafmeyjan í Kaupmannahöfn á sér systur í bænum Senigallia í Marche á Ítalíu
Verkið er hluti af röð 37 verka, unnin á árunum 1993 til 1998 af listamanninum Gianni Guerra og hefur vakað fyrir austurbryggju Senigallia síðan 2004.
Penelópa hefur orðið tákn fyrir elskendur sem skilja eftir hengilás sem merki um ást sína. Íbúar í Senigallia hafa tekið ástfóstri við Penelópu og sumir hverjir sverja að hún færi þeim lukku.

Hún heitir eftir Penelópu hans Ódysseifs sem beið síns heittelskaða eftir að hann snéri heim eftir Trójustríðið í 20 ár, eins og frægt er orðið.
Innblásturinn sem listamaðurinn fékk var þegar hann stóð við höfnina og fylgdist með báti á leið út á miðin og tók eftir því hvernig myrkrið gleypti hann. Hann velti fyrir sér hver myndi bíða endurkomu hans og niðurstaðan var að auðvitað væri það kona, sama hversu lengi hún þyrfti að bíða.
Það minnir á ljóð og lag eftir Magnús okkar Eiríksson, Komu engin skip í dag.

Um sólsetur í fjörunni
á steini við röst er hún
og bláum augum beinir
út að hafsins ystu brún.
Kristur í Marche
Síðan 2010 hefur Kristur frá Marche (Cristo delle Marche) fylgst með svæðinu frá svölunum i Marche eins og staðurinn sem hann stendur á er kallaður. Styttan er 2,70 metra hátt svart granítverk og það sem er eftirtektarvert, er að krossinn vantar. Mjög áhrifríkt!

Það er ekki frá því að þessi Kristur kallist á við þann í Rio... en þessi er bara í Cingoli í Marche.

Styttan er eftir myndhöggvararann Nazzareno Rocchetti og stendur fyrir framan Domus San Bonfilio sem er trúarmiðstöð þar sem áður viðhöfðust einsetumunkar. Staðsetningin er táknræn í í 823m hæð og kristur vakir þar yfir öllu Marche héraði með einstakt útsýni.
Hér er Wikiloc leiðin þangað upp en best er að byrja á bílastæði við Tassinete skóginn. Gönguleiðin er um 12 km. HÉR er lýsing á gönguleiðinni
Sjómaðurinn í Numana
Á fallegum útsýnisstað í Numana stendur bronsstytta af sjómanni með hrukkótt og veðrað andlit sem heldur á hefðbundnu neti sem kallast „sciabega" eða herpinót (ísl.) í annarri hendi og horfir út á hafið.
Minnisvarðinn heiðrar tenginguna sem Numana hefur við sjóinn og alla sjómenn sem fast sóttu sjóinn frá þessum stað.

Myndhöggvarinn, Johannes Genemans, var innblásinn af goðsagnakenndri ímynd fiskimanns sem var til í raun og veru. Altibano Bartolucci var bæjarbúi í Numana, oft kallaður „Charles Bronson“ vegna þess hveru sterkur svipur er með þeim. Kannski eitthvað til í því. Hvað finnst ykkur?

Altì, eins og vinir hans kölluðu hann, var hin klassíska sjóhetja, ósvikinn frjáls andi sem fór til veiða á öllum árstímum. Hans þarfasti þjónn var báturinn Aquila dei sette mari eða „Örn hinna sjö hafa“.

Næsta ferð til Marche verður 3. - 10. júní 2027
Hér er facebook hópur fyrir ferðina
Hér er ferðalýsing
Hér er hægt að forskrá sig í ferðina og fá betri kjör
.png)



Comments