top of page

Ódysseifur á milli steins og sleggju

  • Writer: Ágústa Sigrún Ágústsdóttir
    Ágústa Sigrún Ágústsdóttir
  • Jul 21
  • 5 min read

Updated: Aug 4

Messínasund er miklu meira en mjótt sund á milli Kalabríu og Sikileyjar. Það er vettvangur eins þekktasta atburðar í sögu heimsbókmenntanna. Hér sigldi Ódysseifur milli Skyllu og Karýbdisar og stóð frammi fyrir ómögulegu vali. Nú, nær þrjú þúsund árum síðar, lifnar þessi forna saga Hómers við í nýrri stórmynd Christopher Nolan, The Odyssey.

Ódysseifskviða, sem nú hefur verið færð á hvíta tjaldið, er miklu meira en hefðbundin hetjusaga. Þótt Ódysseifur sé hetja sögunnar mótast ferðalag af heimþránni og þeim konum, dísum, galdrakonum og gyðjum sem verða á vegi hans – af klókindum þeirra, vélráðum og seiðmætti.


Skylla og Karýbdis. Á millil steins og sleggju.
Skylla og Karýbdis

Messínasund

Eftir sigur Grikkja í Trójustríðinu lagði Ódysseifur af stað heim til Íþöku. Heimferðin, sem átti að taka örfáa daga, varð að tíu ára ferðalagi sem var fullt af prófraunum. Ein sú hættulegasta var siglingin um Messínasund.


Messínasund - Á milli Sikileyjar og Kalabría héraðs á Ítalíu
Messínasund - Á milli Sikileyjar og Kalabría héraðs á Ítalíu

Þegar ekið er meðfram Messínasundi er auðvelt að gleyma því að hér liggur eitt frægasta svið heimsbókmenntanna. Hér staðsetti Hómer einn dramatískasta kafla Ódysseifskviðu, þar sem sundið milli Kalabríu og Sikileyjar varð vettvangur átaka við tvær ógnvekjandi verur úr grískri goðafræði.


Skylla var sexhöfða sæskrímsli sem bjó í helli við klettana Kalabríumegin. Bærinn Scilla dregur nafn sitt af henni.


Hinum megin sundsins beið Karýbdis. Samkvæmt goðsögninni var hún dóttir Póseidons og Gaiu sem Seifur breytti í sæskrímsli. Í Ódysseifskviðu birtist hún sem gríðarleg hringiða sem gat gleypt heilt skip og spýtt sjónum aftur út með ógnarkrafti.


Þegar Ódysseifur sigldi um Messínasund stóð hann frammi fyrir ómögulegu vali: að sigla of nærri Skyllu og missa hluta áhafnar sinnar eða hætta á að Karýbdis gleypti allt skipið. Gyðjan Kirka hafði varað Ódysseif við að reyna ekki að forðast bæði skrímslin. Hann yrði að velja minni ógnina.


Hann kaus að halda sig nær Skyllu. Hún náði sex mönnum hans, en skipið og aðrir skipverjar sluppu.


Þessi frásögn hefur orðið eitt þekktasta tákn heimsbókmenntanna fyrir það að standa frammi fyrir ómögulegu vali. Enn í dag er talað um að velja á milli Skyllu og Karýbdisar – eða, eins og við segjum á íslensku, vera milli steins og sleggju.


Bærinn Scilla í Kalabría
Bærinn Scilla í Kalabría

Það er engin tilviljun að bærinn Scilla í Kalabríu ber enn nafn Skyllu. Þegar staðið er við kastalann í Scilla og horft yfir sundið til Sikileyjar er auðvelt að ímynda sér hvernig fornir sæfarar upplifðu þessa staði sem heimkynni skrímsla. Sterkir straumar, óútreiknanlegar hringiður og þröngt sund gerðu siglingar hér afar hættulegar og urðu líklega innblástur Hómers.


Þegar goðsögn verður að örnefnum

Ódysseifskviðan er svo samofin grískri menningu að mörgum kemur á óvart hversu margir af þekktustu atburðum hennar tengjast Suður-Ítalíu. Engar sannanir eru fyrir því að Hómer hafi nokkru sinni komið til Ítalíu. Raunar vita fræðimenn ekki einu sinni með vissu hvort hann hafi verið raunveruleg persóna. Frá Sikiley og allt norður að svæðinu sunnan við Róm eru fjölmörg örnefni, bæir, eyjar, strendur og klettar sem geyma tilvísanir um ævintýralega heimför hetjunnar.


Þar á korti er að finna fjallið Monte Circeo. En hér á þessum hluta Ítalíu, sem kallast Riviera di UlisseStrandlengja Ódysseifs – nefna heimamenn það gjarnan La Maga Circe eða fjall Kírka galdrakonu. Að sögn var það hér sem Kirka breytti mönnum Ódysseifs í svín.


Galdragyðjan Kirka - Circe
Galdragyðjan Kirka - Circe

Þegar Forn-Grikkir námu land á Ítalíu um 750 f.Kr. voru kvæði Hómers þegar orðin vel þekkt meðal sæfaranna sem tóku þátt í landnáminu, segir fornleifafræðingurinn Lorenzo Ceruleo.


„Allir sæfarar óttuðust ókunn höf. Eftir því sem þeir uppgötvuðu og kortlögðu nýja staði fóru þeir í auknum mæli að tengja þá við goðsagnir sem þeir þekktu fyrir. Það veitti þeim ákveðið öryggi að geta tengt hið óþekkta við eitthvað sem var þeim kunnugt.“


Vindaguðinn sem rataði ekki inn i myndina

Svo er annað sem tengist Suður-Ítalíu í Hómerskviðu sem rataði EKKI inn í myndina. Var farin að hlakka til að sjá atburðinn um Vindaguðinn Eólos og vindasekkinn.

Þetta er einn frægasti kafli Ódysseifskviðu og sýnir vel hvernig heimför Ódysseifs tefst vegna mistaka áhafnar hans fremur en óvina.


Eftir að Ódysseifur kemur til Eólíu, eyju vindaguðsins Eólosar, tekur Eólos honum vel og veitir honum höfðinglegar móttökur í heilan mánuð.


Þegar Ódysseifur heldur loks af stað heim á leið gefur Eólos honum sérstaka gjöf: Leðursekk, bundinn með silfurþræði þar sem allir óhagstæðir vindar eru lokaðir inni. Aðeins mildur vestanvindur er skilinn eftir laus til að blása skipinu örugglega til Íþöku.


Ferðin gengur frábærlega og eftir níu daga siglingu sér áhöfnin loks heimilið í fjarska. Ódysseifur er örmagna og sofnar. Þá fara skipverjarnir að velta því fyrir sér hvað sé í sekknum. Þeir halda að Eólos hafi gefið Ódysseifi gull og silfur sem hann ætli að halda fyrir sig. Af öfund opna þeir sekkinn og um leið þjóta allir vindarnir út.


Skipið fýkur út á opið haf og alla leið aftur til Eólíu, rétt þegar heimilið var innan seilingar. Þegar Ódysseifur biður Eólos um hjálp á ný neitar vindaguðinn. Hann telur að maður sem guðirnir hafi refsað svona harðlega geti ekki notið verndar hans.


Aeolian Islands (e.) Isole Eolie (ít.) hafa stundum verið kallaðar Vindeyjar á íslensku vegna þessa.



Tökustaðir á Ítalíu

Þótt Nolan hafi tekið upp víða um Miðjarðarhafið valdi hann ekki sjálft Messínasund sem tökustað.


Þótt Hómer staðsetji einn dramatískasta kafla Ódysseifskviðu við Messínasund valdi Christopher Nolan að taka þessi atriði annars staðar. Siglingin milli Skyllu og Karýbdisar var að öllum líkindum kvikmynduð við Eólísku eyjarnar norður af Sikiley, einkum í kringum Lipari, Vulcano og Basiluzzo. Hluti sjóatriðanna var auk þess tekinn upp í kvikmyndaveri.


Eólísku eyjarnar eru kenndar við vindaguðinn Eólos, sem samkvæmt Ódysseifskviðu ríkti yfir vindunum. Eyjarnar hafa því stundum verið kallaðar Vindeyjar upp á okkar ástkæra ylhýra.


Íþaka er látin vera á eyjunni Favignana við vesturströnd Sikileyjar.

Heimili Ódysseifs og Penelópu (Anne Hathaway), sem í sögunni er hertekið af ósvífnum biðlum sem keppa um hönd Penelópu, var tekið upp bæði í kvikmyndaveri Sony í Los Angeles og á eyjunni Favignana, rétt vestan við Sikiley.


Favignana er einn fárra staða sem einnig kemur fyrir í Ódysseifskviðu Hómers. Þar leggur Ódysseifur og áhöfn hans að landi á svokallaðri Geitaeyju (Goat Island) til að endurnýja vistir sínar. Margir fræðimenn telja að þessi Geitaeyja Hómers sé eyjan Favignana nú á dögum.


Hinn tignarlegi Castello di Santa Caterina, sem trónir hæst á eyjunni, var notaður sem ytra útlit hallarinnar á Íþöku. Á hverjum morgni gekk leikaralið og kvikmyndateymi um 275 metra upp á toppinn að 15. aldar kastalanum – eða fékk sér stundum þyrluflug upp eftir.


Christopher Nolan rifjar upp fyrstu heimsóknina á eyjuna: „Þegar við komum þangað sáum við strax að þetta var afar óhentugur tökustaður. En um leið og við stóðum uppi við kastalann og horfðum yfir landslagið fannst okkur þetta einfaldlega vera heimili Ódysseifs.“


Tökustaðir á Íslandi



Ísland var áður einn helsti tökustaður Interstellar og Nolan sneri því aftur hingað þegar hann leitaði að landslagi sem gæti táknað undirheima. Ísland gegnir mikilvægu hlutverki í The Odyssey og er notað til að skapa hinn hrjóstruga og yfirnáttúrulega heim Hadesar, undirheima grískrar goðafræði.


Helstu tökustaðir voru við Hjörleifshöfða, Markarfljót, Landeyjahöfn og á Snæfellsnesi. Breytt útgáfa af víkingalangskipinu Draken var látið tákna skip Ódysseifs.


Christopher Nolan segir að ákvörðunin hafi legið snemma fyrir:

„Ég vissi strax að ég vildi láta landslag Íslands tákna Hades undirheimana. Þessi ferð sífellt norðar, inn í kuldann, er eins fjarri heimili Ódysseifs á Íþöku og hugsast getur.“


Hvort sem ferðalangar heimsækja Scilla við Messínasund, Favignana undan ströndum Sikileyjar eða horfa yfir svarta sanda Hjörleifshöfða á Íslandi eiga þeir það sameiginlegt að feta í fótspor einnar þekktustu hetju heimsbókmenntanna. Nær þrjú þúsund árum eftir að Hómer orti Ódysseifskviðu heldur ferðalag Ódysseifs áfram að heilla nýjar kynslóðir – nú einnig á hvíta tjaldinu í túlkun Christopher Nolan.



Ferðlag Ódysseifs




Heimildir

Víðsvegar af internetinu, m.a. hér:



Comments

Rated 0 out of 5 stars.
No ratings yet

Add a rating
Uppruninn
  • Facebook
  • Instagram

Flandrr ferðamiðstöð varð til sem umgjörð og samnefnari fyrir ferðablæti Ágústu Sigrúnar.

 

Í hinu alræmda kófi magnaðist ferðaþráin mjög mikið og Ágústa ákvað að bjóða landsmönnum í sýndarferðalög í gegnum Zoom. Heimsferðir stukku strax á þessa hugmynd og þegar upp var staðið höfðu orðið til 10 sýndarferðalög og yfir 10.000 manns höfðu tekið þátt.

Í framhaldinu fannst henni eðlilegt að útfæra allan þann fróðleik sem hún hafði bætt við sig með einhverjum hætti og pistlaskrifin hófust. Í kjölfarið urðu til hugmyndir að ferðum sem mótast af hennar áhugasviði sem eru hreyfing, menning, tónlist og léttleiki.  

 

Íslensk ferðaskrifstofa selur ferðirnar og sér um bókanir, innheimtu, skilmála og tryggingar skv. ferðakskrifstofuleyfi  gefnu út af Ferðamálastofu.​

Flandrr ferðamiðstöð

© 2023 Flandrr. Website by CC Website Design.

bottom of page