Bergamotto - ilmappelsína
- Ágústa Sigrún Ágústsdóttir

- Jul 5
- 3 min read
Updated: Jul 6
Bergamot hefur sterka menningarlega og efnahagslega tengingu við Kalabríu á Ítalíu og er eitt helsta tákn svæðisins. Það kemur víða fyrir í matargerð, listum og handverki og gegnir mikilvægu hlutverki í atvinnulífi héraðsins, ekki síst vegna notkunar þess í ilmvatns- og matvælaiðnaði.
Bergmot eða ilmappelsínan er ekki kölluð græna gullið að ástæðulausu. Hún er svo verðmæt að hún lætur litla ræktunarblettinn sinn vinna yfirvinnu.
Uppruni og saga
Heitið bergamot á sér óljósan uppruna. Samkvæmt einni kenningu er það dregið af nafni tyrknesku borgarinnar Bergama (forn Pergamon), norðan við Izmir. Annar möguleik er að nafnið komi frá tyrkneska orðinu bey armudu eða beg armudu, sem þýðir „pera höfðingjans“ eða „pera prinsins“.
Algeng skýring í ítölskum heimildum er að ávöxturinn fái nafn sitt af bergamotperu umrædds höfðingja frá Tyrklandi. Ástæðan er að bergamot minnir að nokkru leyti á þessa peru og orðið hafi svo þróast í ítölsku yfir í bergamotto.
Bergamotpera | Bergamot (ilmappelsína) |
Er afbrigði af peru (Pyrus communis). | Er sítrusávöxtur (Citrus × bergamia). |
Er æt og sæt eða mild á bragðið. | Er mjög súr og beisk á bragðið og er sjaldan borðuð fersk. |
Er ræktuð eins og aðrar perur. | Er ræktuð einkum vegna ilmkjarnaolíunnar í berkinum. |
Hefur ekkert með sítrusávexti að gera. | Er skyld appelsínum, sítrónum og límónum. |
Talið er að bergamot-tré eigi uppruna sinn í fjallaskógum Suðaustur-Asíu. Bergamot birtist fyrst á Suður-Ítalíu (í Kalabríu) á 15. og 16. öld og naut fljótt vinsælda vegna ilmsins af berki ávaxtarins. Framleiðsla og vinnsla bergamot-olíu hófst í byrjun 17. aldar.
Útlit og bragð
Ilmappelsína (bergamot) líkist appelsínu, en liturinn getur verið allt frá grænum yfir í gulan, eftir því hversu þroskaður ávöxturinn er. Hann vegur yfirleitt á bilinu 80–200 grömm. Ræktuð eru þrjú afbrigði bergamot: Fantastico, Castagnaro og Femminello. Fantastico er langalgengasta afbrigðið og þykir gefa ilmkjarnaolíu af bestu gæðum.
Ávöxturinn er yfirleitt ekki borðaður ferskur þar sem hann er bæði súr og beiskur á bragðið. Bragðið er einstaklega flókið og sameinar sítrónu-, appelsínu- og límónukeim með blómailmi — erfitt er að festa fingur á hvað það minnir helst á.
Um 200 kg af bergamotávöxtum þarf til að framleiða einn líter af bergamotolíu.
Ræktunarsvæði
Ítalía er langstærsti framleiðandi bergamotto og stendur fyrir um 90% af heimsframleiðslunni. Ávöxturinn er ræktaður í Kalabríu og á Sikiley, auk þess sem hann er ræktaður á Fílabeinsströndinni og í Gíneu í Afríku og í Brasilíu.
DOP
Til að tryggja gæði svæðisbundinna afurða hefur Evrópusambandið veitt bergamotto frá Reggio Calabria opinbera upprunavernd (PDO, Protected Designation of Origin; á ítölsku DOP – Denominazione di Origine Protetta).
Notkun og vinnsla
Ilmappelsína (bergamot) er fyrst og fremst ræktuð vegna ilmkjarnaolíunnar sem finnst í berkinum. Bergamotolía er mikilvægt hráefni í ilmvatnsiðnaði og er einnig notuð til að gefa tóbaki og tei (til dæmis Earl Grey) ilm og bragð. Franski ilmvatnsiðnaðurinn er stærsti kaupandinn á bergamotolíu, sem er að mestu leyti framleidd á Ítalíu. Í Japan er bergamotsafi notaður á svipaðan hátt og edik eða sítrónusafi.
Bergamot er mikið notað í matargerð, marmelaði, sósur, sultur, sælgæti, sápur, drykki og te — og margt fleira.
Bergamotolía hefur ferskan, sítruskenndan ilm með blómakeim og örlitlum kryddtónum.
Heilsufarsávinningur
Í hefðbundinni læknisfræði hefur bergamotto verið tengt ýmsum heilsufarslegum ávinningi, svo sem að minnka kvíða og streitu. Ávöxturinn þykir beyskur á bragðið en á að vera allra meina bót og fólk lætur sig hafa það fyrir heilsuna.

Margt bendir til þess að efni í bergamot geti haft jákvæð áhrif á blóðfitu, blóðsykur og blóðþrýsting. Heilsuávinningur bergamot felur einnig í sér andoxunareiginleika, C-vítamín innihald og hugsanlegan ávinning fyrir meltingu.
Bergamotto Spritz
Nú er um að gera að starta nýju trendi á Íslandi. Það eina sem þarf er að skipta út Aperol eða Limoncello og þá erum við komin mðe Bergamotto Spritz. Líkjörinn fæst auðvitað í Kalabría og er kallaður Bergamotto forfive 05. Styrkurinn er 30% og hann er unninn úr berkinum, því líkjörinn inniheldur um 15% af bergamot berki.
Ef þú vilt einfaldlega koma með í ferð til Kalabría og kaupa þessar guðaveigar þar eru tvær ferðir á dagskránni í lok september.

Heimildir víðsvegar af veraldarvefnum m.a. hér
Bergamotto safnið í Calabria
Ilmkjarnolíur
.png)









Comments