top of page
Search


Yfirgefni bærinn í Kalabríu
Á hæð yfir Angitola-dalnum standa rústir Rocca Angitola, miðaldabæjar sem eitt sinn iðaði af lífi en er nú löngu yfirgefinn. Hér leynast sögur af grískum goðsögnum, valdabaráttu Normanna, mannskæðum jarðskjálftum og samfélagi sem smám saman hvarf af sjónarsviðinu. Eftir standa rústirnar sem þögul vitni um viðburðaríka sögu þessa forvitnilega staðar. Sagan nær langt aftur í aldir en bærinn var að mestu yfirgefinn áður en jarðskjálftinn mikli reið yfir Kalabríu árið 1783. Goðsö
Ágústa Sigrún Ágústsdóttir
Oct 23


Stóra-Grikkland í Kalabríu
Það kemur mörgum á óvart hversu djúp grísk áhrif eru enn á Suður-Ítalíu. Þau sjást í fornminjum og byggingarlist, en merkilegast er kannski að enn eru til lítil samfélög þar sem töluð eru tungumál af grískum uppruna. Til að skilja hvernig það gerðist þurfum við að fara rúmlega 2.700 ár aftur í tímann. Frá 8. öld f.Kr. hófu Grikkir að stofna borgir og nýlendur meðfram ströndum Suður-Ítalíu og Sikileyjar. Með tímanum urðu þessar borgir svo öflugar og grísk menning svo ríkjandi
Ágústa Sigrún Ágústsdóttir
Oct 11


Ódysseifur á milli steins og sleggju
Messínasund er miklu meira en mjótt sund á milli Kalabríu og Sikileyjar. Það er vettvangur eins þekktasta atburðar í sögu heimsbókmenntanna. Hér sigldi Ódysseifur milli Skyllu og Karýbdisar og stóð frammi fyrir ómögulegu vali. Nú, nær þrjú þúsund árum síðar, lifnar þessi forna saga Hómers við í nýrri stórmynd Christopher Nolan, The Odyssey. Ódysseifskviða, sem nú hefur verið færð á hvíta tjaldið, er miklu meira en hefðbundin hetjusaga. Þótt Ódysseifur sé hetja sögunnar mótast
Ágústa Sigrún Ágústsdóttir
Jul 21


Bergamotto - ilmappelsína
Bergamot hefur sterka menningarlega og efnahagslega tengingu við Kalabríu á Ítalíu og er eitt helsta tákn svæðisins. Það kemur víða fyrir í matargerð, listum og handverki og gegnir mikilvægu hlutverki í atvinnulífi héraðsins, ekki síst vegna notkunar þess í ilmvatns- og matvælaiðnaði. Bergmot eða ilmappelsínan er ekki kölluð græna gullið að ástæðulausu. Hún er svo verðmæt að hún lætur litla ræktunarblettinn sinn vinna yfirvinnu. Útlit og bragð Ilmappelsína (bergamot) líkist a
Ágústa Sigrún Ágústsdóttir
Jul 5


Áttu ættir að rekja til Kalabría?
Ný þróun í ferðaþjónustu hefur litið dagsins ljós með verkefninu „Turismo delle Radici“, sem væri hægt að þýða sem „rótartúrismi“. En hljómar kannski betur sem ferðaþjónusta sem ræktar ræturnar . Hér er áhersla á matarvenjur og siði Kalabríu, þar sem gamlar uppskriftir varða leiðina. Rætur okkar í Kalabríu Í þessum nýja kima ferðaþjónustunnar er einblínt á tengsl fólks við uppruna sinn. Þetta framtak hefur vakið athygli og verið verðlaunað af „Italus“ – og fjármagnað af ferða
Ágústa Sigrún Ágústsdóttir
Nov 1, 2025


Hetjur í hafdjúpinu
Nútímasaga bronsstyttanna hefst 16. ágúst 1972 , þegar tvær styttur úr bronsi fundust við Porticello di Riace Marina , eftir atvik sem enn hefur ekki verið fullkomlega upplýst. Í kringum fundarstaðinn fundust engar vísbendingar um í hvaða samhengi þær höfðu legið þarna í 3.000 ár sem gerir uppgötvunina enn dularfyllri. Stefano Mariottini , verkfræðingur frá Róm, var að snorkla við strendur Riace , þegar hann sá hönd standa upp úr sandinum. Hann taldi þetta vera líkamsleifar o
Ágústa Sigrún Ágústsdóttir
Sep 29, 2025


Lecce - Flórens suðursins
Borgin Lecce hefur verið kölluð „Flórens suðursins“ enda svipur með þessum tveimur borgum, svona barokksvipur!
Ágústa Sigrún Ágústsdóttir
Oct 22, 2023
bottom of page
.png)