top of page
Search


Jólasveinninn í Bari
Hvað eiga rauðklæddur jólasveinn með hvítt skegg, biskup frá Litlu-Asíu og ítölsk hafnarborg við Adríahafið sameiginlegt? Svarið er heilagur Nikulás. Ef við viljum heimsækja manninn sem lagði grunninn að jólasveininum eins og við þekkjum hann í dag, þá er Bari á Suður-Ítalíu ágætis staður til að byrja. Í Bari er til fallegt gamalt orðatiltæki: A Bari nessuno è straniero – Í Bari er enginn ókunnugur Það lýsir vel sögu þessarar hafnarborgar og endurspeglar gestrisni borgarbúa o
Ágústa Sigrún Ágústsdóttir
Nov 9


Yfirgefni bærinn í Kalabríu
Á hæð yfir Angitola-dalnum standa rústir Rocca Angitola, miðaldabæjar sem eitt sinn iðaði af lífi en er nú löngu yfirgefinn. Hér leynast sögur af grískum goðsögnum, valdabaráttu Normanna, mannskæðum jarðskjálftum og samfélagi sem smám saman hvarf af sjónarsviðinu. Eftir standa rústirnar sem þögul vitni um viðburðaríka sögu þessa forvitnilega staðar. Sagan nær langt aftur í aldir en bærinn var að mestu yfirgefinn áður en jarðskjálftinn mikli reið yfir Kalabríu árið 1783. Goðsö
Ágústa Sigrún Ágústsdóttir
Oct 23


Stóra-Grikkland í Kalabríu
Það kemur mörgum á óvart hversu djúp grísk áhrif eru enn á Suður-Ítalíu. Þau sjást í fornminjum og byggingarlist, en merkilegast er kannski að enn eru til lítil samfélög þar sem töluð eru tungumál af grískum uppruna. Til að skilja hvernig það gerðist þurfum við að fara rúmlega 2.700 ár aftur í tímann. Frá 8. öld f.Kr. hófu Grikkir að stofna borgir og nýlendur meðfram ströndum Suður-Ítalíu og Sikileyjar. Með tímanum urðu þessar borgir svo öflugar og grísk menning svo ríkjandi
Ágústa Sigrún Ágústsdóttir
Oct 11


Ódysseifur á milli steins og sleggju
Messínasund er miklu meira en mjótt sund á milli Kalabríu og Sikileyjar. Það er vettvangur eins þekktasta atburðar í sögu heimsbókmenntanna. Hér sigldi Ódysseifur milli Skyllu og Karýbdisar og stóð frammi fyrir ómögulegu vali. Nú, nær þrjú þúsund árum síðar, lifnar þessi forna saga Hómers við í nýrri stórmynd Christopher Nolan, The Odyssey. Ódysseifskviða, sem nú hefur verið færð á hvíta tjaldið, er miklu meira en hefðbundin hetjusaga. Þótt Ódysseifur sé hetja sögunnar mótast
Ágústa Sigrún Ágústsdóttir
Jul 21


Bergamotto - ilmappelsína
Bergamot hefur sterka menningarlega og efnahagslega tengingu við Kalabríu á Ítalíu og er eitt helsta tákn svæðisins. Það kemur víða fyrir í matargerð, listum og handverki og gegnir mikilvægu hlutverki í atvinnulífi héraðsins, ekki síst vegna notkunar þess í ilmvatns- og matvælaiðnaði. Bergmot eða ilmappelsínan er ekki kölluð græna gullið að ástæðulausu. Hún er svo verðmæt að hún lætur litla ræktunarblettinn sinn vinna yfirvinnu. Útlit og bragð Ilmappelsína (bergamot) líkist a
Ágústa Sigrún Ágústsdóttir
Jul 5


Hundadagakonungur í Pizzo?
Gioacchino Murat (1767–1815) var franskur hershöfðingi og konungur Napólí á Napóleon-tímanum — ævintýraleg og dramatísk persóna í sögu Evrópu. Ég hef stundum kallað Gioacchino Murat „hundadagakonunginn í Pizzo“, með vísun í okkar eigin Jörund hundadagakonung. Þeir áttu nefnilega ýmislegt sameiginlegt. Báðir voru ævintýramenn á miklum umbrotatímum í Evrópu, báðir komust óvænt til mikilla valda og misstu þau aftur með dramatískum hætti. Og það sem gerir samanburðinn enn skemmti
Ágústa Sigrún Ágústsdóttir
Oct 9, 2025
bottom of page
.png)