top of page

Jólasveinninn í Bari

Writer: Ágústa Sigrún Ágústsdóttir
Ágústa Sigrún Ágústsdóttir
Nov 9
4 min read

Updated: Nov 10

Hvað eiga rauðklæddur jólasveinn með hvítt skegg, biskup frá Litlu-Asíu og ítölsk hafnarborg við Adríahafið sameiginlegt?


Svarið er heilagur Nikulás.


Ef við viljum heimsækja manninn sem lagði grunninn að jólasveininum eins og við þekkjum hann í dag, þá er Bari á Suður-Ítalíu ágætis staður til að byrja.


Í Bari er til fallegt gamalt orðatiltæki:


A Bari nessuno è straniero – Í Bari er enginn ókunnugur


Það lýsir vel sögu þessarar hafnarborgar og endurspeglar gestrisni borgarbúa og þá staðreynd að í Bari-borg hafa um aldir verið krossgötur ólíkra þjóða og menningarheima.


Annað þekkt orðatiltæki er:


San Nicola ama i forestieri – Heilagur Nikulás elskar aðkomufólk


...og vísar til þess að Nikulás er meðal annars verndardýrlingur ferðalanga og að Bari hefur lengi verið áfangastaður pílagríma.


Kirkja heilags Nikulásar í Bari. Hér er farið með líkneski hans í gönguferð
Kirkja heilags Nikulásar í Bari. Hér er farið með líkneski hans í gönguferð

Í hjarta gamla bæjarins, stendur Basilica di San Nicola, mikil og virðuleg kirkja sem geymir jarðneskar leifar heilags Nikulásar. Það er að segja, ef við tökum orð sjómannanna frá Bari trúanleg, sem sóttu þær alla leið til Litlu-Asíu árið 1087.

Nikulás var biskup í Mýru, fornri borg í Litlu-Asíu, þar sem nú er suðurhluti Tyrklands. Hann var uppi á 4. öld og varð eftir dauða sinn einn vinsælasti dýrlingur kristninnar. Gröf hans í Mýru varð snemma mikilvægur pílagrímastaður.


Bjargað eða stolið?

Á 11. öld var svæðið hins vegar orðið ótryggt vegna átaka og breyttra yfirráða. Árið 1087 sigldu sjómenn og kaupmenn frá Bari til Mýru, sóttu þangað „megnið" af líkamsleifum Nikulásar og fluttu þær heim með sér.


Hvort þetta hafi verið björgunaraðgerð eða beinlínis þjófnaður fer svolítið eftir því hvorum megin Miðjarðarhafsins sagan er sögð. Sendiförin taldi sig vera að bjarga helgum minjum, en heimamenn í Mýru voru ekki endilega á sama máli.


Hvað sem því líður þá breytti þessi ferð sögu Bari.


Borgin varð mikilvægur pílagrímastaður og strax árið 1087 hófst bygging kirkju yfir jarðneskuar leifar dýrlingsins. Þar hvílir hann enn, tæpum þúsund árum síðar.


Nikulásarkirkan líkist helst virki

Þegar maður stendur fyrir framan Basilikuna er hún nánast eins og virki. Mikill hlunkur úr ljósum kalksteini og hlutföllin eitthvað skrýtin. Þykkir veggir, ósamhverfir turnar og tiltölulega látlaus framhlið.


Hún er eitt merkilegasta dæmið um rómanskan byggingarstíl Puglia, romanico pugliese, þar sem áherslan er á sterkbyggð form, jafnvægi og einfaldleika.


En þegar nær er komið kemur í ljós að þessi þunglamalega bygging er full af fíngerðum smáatriðum. Við innganginn eru útskornar súlur, bogar og dýramyndir.


Inni í kirkjunni taka við háir bogar og raðir af súlum. Þegar upp er litið, blasir við skreytt loft frá barokktímanum. Þar mætast tveir ólíkir heimar byggingarlistar: hinn agaði og þungi rómanski stíll og litadýrð barokksins.


Kirkjan hefur auðvitað tekið breytingum í gegnum aldirnar og fylgt tískustraumum.


Grafhvelfingin

Í grafhvelfingunni hvíla jarðneskar leifar Nikulásar sem varðveittar eru í þessu altari.


Altari og jarðneskar leifar San Nicola
Altari og jarðneskar leifar San Nicola

Í grafhvelfingunni ríkir sérstök stemning. Lágt er til lofts, súlurnar standa þétt undir gömlum steinhvelfingum og dempuð birtan skapar kyrrð.


Basilica di San Nicola er rómversk-kaþólsk kirkja, en heilagur Nikulás er einnig einn ástsælasti dýrlingur rétttrúnaðarkristinna. Hingað koma því pílagrímar víða að úr heiminum, ekki síst frá Austur-Evrópu.


Það sem gerir kirkjuna sérstaklega merkilega er að rétttrúnaðarkristnir hafa einnig aðstöðu til guðsþjónustuhalds. Hér hafa bæði Rússar og Úkraínumenn komið saman til bæna, þótt þjóðir þeirra eigi nú í hörmulegum átökum.


Basilíkan hefur lengi verið mikilvægur vettvangur samskipta milli kaþólsku kirkjunnar og rétttrúnaðarkirkjunnar.


Og kannski er það einmitt það fallegasta við þennan stað: Á meðan stjórnmál og trúardeilur sundra fólki heldur heilagur Nikulás áfram að sameina það, nær sautján öldum eftir sína daga.



Nikulás á Íslandi


Nikulás var líka einn vinsælasti dýrlingur miðalda á Íslandi, jafnvel vinsælli en okkar eigin Þorlákur helgi, sem Þorláksmessa er kennd við. Heimildir nefna að minnsta kosti 44 kirkjur og kapellur sem helgaðar voru Nikulási á kaþólskum tíma. Kirkjan á Bessastöðum var meira að segja upphaflega helguð honum.


Það kemur kannski ekki á óvart þegar haft er í huga að hann var verndardýrlingur sjómanna í landi þar sem lífsafkoma fólks byggðist að miklu leyti á sjónum.


Þótt siðaskiptin hafi breytt trúarlífi Íslendinga lifði minning hans áfram í kirkjusögu okkar.


Og svo eigum við auðvitað okkar eigin þrettán jólasveina, sem eru af allt öðrum og heldur óheflaðri uppruna en hinn virðulegi biskup frá Mýru.


Það er erfitt að ímynda sér heilagan Nikulás stela skyri eða sleikja ask, hvað þá að vera Leppalúðason!


En báðar hefðirnar hafa á sinn hátt þróast í átt að jólagjöfum, gleði og eftirvæntingu barna.


Frá San Nicola til Santa Claus


En hvernig breyttist biskup frá Litlu-Asíu í rauðklæddan jólasvein á hreindýrasleða?


Nikulás var þekktur fyrir gjafmildi sína og umhyggju fyrir þeim sem minna máttu sín, ekki síst börnum. Ein þekktasta sagan segir að hann hafi í leyni gefið fátækum föður gull svo dætur hans þrjár ættu möguleika á betra lífi.


Hann varð verndardýrlingur sjómanna, ferðamanna, barna og kaupmanna, svo fátt eitt sé nefnt. Hann hefur meira að segja verið talinn verndardýrlingur vændiskvenna.


En það var gjafmildin sem átti eftir að gera hann heimsfrægan.


Í Hollandi varð heilagur Nikulás að Sinterklaas, hvítskeggjuðum biskupi í rauðum klæðum sem færði börnum gjafir í desember. Þaðan barst hefðin til Ameríku, þar sem nafnið þróaðist í Santa Claus.


Á 19. öld bættu bandarískir rithöfundar og teiknarar við sleðanum, hreindýrunum og Norðurpólnum. Árið 1931 gerðu auglýsingar Coca-Cola svo rauðklædda, síbrosandi jólasveininn heimsfrægan, þótt rauði búningurinn hefði verið kominn til sögunnar löngu áður.


Nikulás lagði því til gjafmildina, Hollendingar nafnið, Bandaríkjamenn hreindýrin og Coca-Cola sá um markaðssetninguna!


Leiðin frá Mýru til Bari og þaðan alla leið á Norðurpólinn er vissulega löng. Á leiðinni hefur biskupinn skipt um föt, lagt frá sér biskupsstafinn, eignast hreindýr og sleða og tekið að sér að koma jólagjöfum til barna um allan heim.


Og hver hefði trúað því að þessi biskup frá Litlu-Asíu, nokkrir framtakssamir sjómenn frá Bari, hollenskar jólahefðir og íslensk börn með skó í glugganum ættu svona margt sameiginlegt?


Þótt Nikulás hafi tekið miklum stakkaskiptum í gegnum aldirnar er eitt óbreytt: gjafmildin sem gerði hann svo vinsælan í upphafi.


Í Bari hvílir biskupinn, en jólasveinninn er enn á fullu í ferðalögum. Og nú styttist í annasamasta tíma ársins hjá honum!


Heilagur Nikulás og Santa Claus
Heilagur Nikulás og Santa Claus


Comments

Rated 0 out of 5 stars.
No ratings yet

Add a rating
Uppruninn
  • Facebook
  • Instagram

Flandrr ferðamiðstöð varð til sem umgjörð og samnefnari fyrir ferðablæti Ágústu Sigrúnar.

 

Í hinu alræmda kófi magnaðist ferðaþráin mjög mikið og Ágústa ákvað að bjóða landsmönnum í sýndarferðalög í gegnum Zoom. Heimsferðir stukku strax á þessa hugmynd og þegar upp var staðið höfðu orðið til 10 sýndarferðalög og yfir 10.000 manns höfðu tekið þátt.

​

Í framhaldinu fannst henni eðlilegt að útfæra allan þann fróðleik sem hún hafði bætt við sig með einhverjum hætti og pistlaskrifin hófust. Í kjölfarið urðu til hugmyndir að ferðum sem mótast af hennar áhugasviði sem eru hreyfing, menning, tónlist og léttleiki.  

 

Íslensk ferðaskrifstofa selur ferðirnar og sér um bókanir, innheimtu, skilmála og tryggingar skv. ferðakskrifstofuleyfi  gefnu út af Ferðamálastofu.​

Flandrr ferðamiðstöð

© 2023 Flandrr. Website by CC Website Design.

bottom of page