Stóra-Grikkland í Kalabríu

Það kemur mörgum á óvart hversu djúp grísk áhrif eru enn á Suður-Ítalíu. Þau sjást í fornminjum og byggingarlist, en merkilegast er kannski að enn eru til lítil samfélög þar sem töluð eru tungumál af grískum uppruna. Til að skilja hvernig það gerðist þurfum við að fara rúmlega 2.700 ár aftur í tímann.

Frá 8. öld f.Kr. hófu Grikkir að stofna borgir og nýlendur meðfram ströndum Suður-Ítalíu og Sikileyjar. Með tímanum urðu þessar borgir svo öflugar og grísk menning svo ríkjandi að Rómverjar kölluðu stóran hluta Suður-Ítalíu Magna Graecia – Stóra-Grikkland.
Ýmsir staðir við strendur Suður-Ítalíu og Sikileyjar hafa einnig verið tengdir við ævintýri Ódysseifs í Ódysseifskviðu Hómers. Meira um sögusvið kvæðisins og kvikmynd Christophers Nolans má lesa HÉR
Kalabría – hjarta Magna Graecia
Kalabría var eitt af mikilvægustu svæðum Magna Graecia. Þetta voru ekki afskekktar litlar nýlendur á jaðri hins gríska heims. Meðfram Jónahafsströndinni risu nokkrar af merkustu grísku borgum Suður-Ítalíu - auðugar borgir, hof, leikhús og menntasetur og svæðið varð mikilvægur hluti gríska menningarheimsins.
Sybaris - Sibari
Í norðurhluta Kalabríu, skammt frá Jónahafsströndinni, reis Sybaris, ein auðugasta og blómlegasta borg Magna Graecia, stofnuð á 8. öld f.Kr. Borgin varð svo fræg fyrir auðlegð sína og munaðarlíf íbúanna að nafn hennar lifir enn í evrópskum tungumálum. Á ítölsku er til dæmis orðið sibarita, sem merkir munaðarseggur eða manneskja sem hefur sérstakt dálæti á munaði og þægindum.
Árið 510 f.Kr. var Sybaris lögð í rúst af nágrannaborginni Kroton og náði aldrei aftur fyrri frægð. Síðar risu aðrar borgir á svæðinu, en leifar hinnar fornu Sybaris má enn finna á fornleifasvæðinu Parco Archeologico di Sibari.
Í dag lifir nafnið áfram í bænum Sibari, sem er hluti af sveitarfélaginu Cassano all’Ionio og telur um 1.500 íbúa. Nútímabærinn þróaðist í kringum járnbrautarstöðina, skammt frá rústum hinnar fornu borgar. Við ströndina eru hins vegar sumarleyfisbyggð og ferðamannasvæði, meðal annars Marina di Sibari og Laghi di Sibari, þar sem síki, smábátahöfn og sumarhús skapa allt aðra ásýnd en þá sem einkenndi hina auðugu grísku borg fyrir meira en 2.500 árum.
Kroton - Crotone
Súla úr hofi Heru í Crotone Pýþagóras
Sunnar á Jónahafsströndinni reis Kroton, ein merkasta og blómlegasta borg Magna Graecia, sem í dag heitir Crotone. Þar settist að gríski heimspekingurinn og stærðfræðingurinn Pýþagóras, sem fæddist á eyjunni Samos um 570 f.Kr. Hann flutti til Kroton um 530 f.Kr. og stofnaði þar frægan skóla sem sameinaði stærðfræði, heimspeki, tónlist og trúarlegar hugmyndir. Kenningar hans og fylgismanna hans höfðu víðtæk áhrif á þróun vísinda og heimspeki langt út fyrir mörk borgarinnar.
Í dag er Crotone hafnarborg með um 58.000 íbúa og höfuðstaður samnefnds héraðs í Kalabríu. Ólíkt hinni fornu Sybaris, sem var lögð í rúst og hvarf sem borg, hefur byggð haldist á svæði Kroton í meira en 2.500 ár. Nútímaborgin stendur að verulegu leyti á rústum hinnar grísku borgar og undir götum hennar leynast enn minjar um forna sögu.
Skammt sunnan Crotone, á Capo Colonna, stendur enn ein súla úr hinu forna musteri Heru (Tempio di Hera Lacinia), sem minnir á þann tíma þegar þessi hluti Kalabríu var ein af mikilvægustu menningarmiðstöðvum hins gríska heims.
Locri Epizefiri - Locri
Enn sunnar á Jónahafsströndinni reis Locri Epizefiri, ein merkasta gríska borg Kalabríu, stofnuð á 7. öld f.Kr. Borgin varð mikilvæg miðstöð verslunar, menningar og trúarlífs, en er ekki síst þekkt fyrir að þar voru sett einhver elstu skriflegu lög hins gríska heims. Þau eru eignuð löggjafanum Zaleukosi, sem er talinn hafa starfað á 7. öld f.Kr., þótt sögurnar um hann séu að hluta sveipaðar þjóðsögum.
Locri var einnig þekkt fyrir helgidóma sína, einkum helgidóm Persefónu, gyðju undirheimanna.
Ólíkt Kroton hvarf hin forna Locri Epizefiri smám saman sem borg. Á miðöldum fluttist byggðin að mestu upp í hæðirnar, þar sem íbúarnir leituðu meira öryggis fyrir árásum og ófriði. Þar þróaðist bærinn Gerace, sem enn í dag er þekktur fyrir vel varðveittan miðaldabæ og glæsilega dómkirkju.
Í dag er Locri strandbær með um 12.000 íbúa í héraðinu Reggio Calabria. Nútímabærinn byggðist upp á ný við Jónahaf á síðari öldum, skammt frá hinni fornu grísku borg. Þar er nú Parco Archeologico di Locri Epizefiri, þar sem sjá má leifar borgarmúra, mustera, leikhúss og annarra mannvirkja sem minna á blómaskeið grískrar menningar í Kalabríu.
Rhegion - Reggio Calabria
Við Messínasundið, þar sem meginland Ítalíu og Sikiley mætast, reis gríska borgin Rhegion, stofnuð á 8. öld f.Kr. Vegna legu sinnar við mikilvæga siglingaleið varð hún blómleg verslunar- og menningarmiðstöð Magna Graecia.
Í dag stendur Reggio Calabria á sama stað og hin forna Rhegion. Borgin er sú stærsta í Kalabríu, með um 170.000 íbúa, og er meðal annars þekkt fyrir fallega strandgöngusvæðið Lungomare Falcomatà, þaðan sem útsýni er yfir Messínasundið til Sikileyjar.
Einn merkasti vitnisburðurinn um gríska arfleifð Kalabríu eru Riace-bronsstytturnar, tvær nærri tveggja metra háar grískar styttur frá 5. öld f.Kr. Þær fundust fyrir tilviljun í sjónum við bæinn Riace á Jónahafsströnd Kalabríu árið 1972 og teljast meðal merkustu varðveittu bronslistaverka Forn-Grikkja. Í dag eru þær varðveittar á Museo Archeologico Nazionale di Reggio Calabria. Meira um stytturnar HÉR.
Grísk arfleifð í gegnum aldirnar
Grísk áhrif á Suður-Ítalíu einskorðuðust ekki við tímabil Magna Graecia. Öldum síðar varð stór hluti svæðisins hluti af Býsansríkinu, þar sem grísk tunga og menning gegndu mikilvægu hlutverki. Á miðöldum bættust einnig við fleiri grískumælandi hópar.
Fræðimenn hafa lengi deilt um uppruna þeirra grísku mállýskna sem enn lifa á Suður-Ítalíu. Eru þær bein arfleifð frá grísku nýlendunum í fornöld eða eiga þær fyrst og fremst rætur á býsönskum tíma?
Líklega er svarið ekki svo einfalt. Hér liggja mörg lög grískrar sögu hvert ofan á öðru.
Þar sem grískan lifir enn
Á Suður-Ítalíu eru enn tvö lítil grískumælandi menningarsvæði: Grecìa Salentina í Puglia, þar sem töluð er gríska mállýskan griko, og Area Grecanica í Kalabríu, þar sem mállýskan grecanico, einnig kölluð greko, hefur varðveist.
Þessar náskyldu mállýskur hafa þróast hvor á sínu svæði og orðið fyrir áhrifum frá ítölsku og staðbundnum mállýskum.
Í Kalabríu er Area Grecanica syðst í héraðinu, milli Aspromonte-fjallanna og Jónahafsins. Kjarnasvæði grískrar tungu er einnig þekkt sem Bovesia. Þar eru litlir bæir og þorp á borð við Bova, Gallicianò og Roghudi, þar sem grísk menningararfleifð hefur lifað í aldanna rás.
Sum þessara þorpa eru afar afskekkt. Roghudi Vecchio stendur til dæmis nánast yfirgefið í hrikalegu fjallalandslagi eftir að íbúarnir þurftu að yfirgefa þorpið vegna náttúruhamfara á 20. öld. Bova er hins vegar lifandi bær og eitt helsta menningarsetur grískumælandi Kalabríu.

Tungumál og menning í útrýmingarhættu
Bæði griko og grecanico eiga undir högg að sækja. Ítalska hefur tekið við sem daglegt tungumál yngri kynslóða og þeim fækkar sem alast upp við að tala þessar grísku mállýskur.
Árið 1999 voru sett sérstök lög á Ítalíu um vernd sögulegra tungumálaminnihluta, þar á meðal grískumælandi samfélaganna í Puglia og Kalabríu. Unnið er að því að varðveita tungumálin ásamt tónlist, hefðum og öðrum menningararfi samfélaganna.
Þetta eru því ekki aðeins forvitnilegar minjar um fortíðina heldur lifandi menningarsamfélög sem vilja tryggja að tungumál þeirra og sérkenni glatist ekki.
Og það er einmitt eitt af því sem mér finnst svo heillandi við Suður-Ítalíu. Maður þarf stundum bara að skafa örlítið ofan af yfirborðinu og þá kemur í ljós að Ítalía er miklu meira en bara Ítalía.
.png)



Comments