Beli – þorpið sem þagnaði 🇭🇷

Það eru til eyjar sem keppast við að vekja á sér athygli, þar sem strandbarirnir eru hver öðrum glæsilegri, snekkjurnar stærri og ferðamennirnir fleiri. Og svo eru til eyjar sem virðast ekki hafa minnsta áhuga á að taka þátt í þeirri samkeppni.
Cres er ein þeirra.
Hún liggur í norðanverðu Adríahafi, undan ströndum Króatíu, og þótt hún sé ein af stærstu eyjum landsins hefur hún að mestu sloppið við fjöldaferðamennskuna.
Reyndar er Cres stærsta eyja Króatíu, en aðeins rétt svo. Nágrannaeyjan Krk andar ofan í hálsmálið á henni í þeirri keppni. Cres er um 405,8 km² en Krk um 405,7 km². Það munar sem sagt bara smáááá – og fer líklega eftir því hversu vel menn strekkja á málbandinu hvor hefur vinninginn.
En þótt Cres hafi naumlega vinninginn í stærðarkeppninni virðist hún ekki hafa neinn sérstakan áhuga á að vinna kapphlaupið við tímann.
Í sumum þorpanna hefur fækkað svo mjög að þar eru aðeins örfáir íbúar eftir. Í öðrum heldur mannlífið áfram á sínum gamla takti, þótt nútíminn hafi auðvitað bankað upp á. Honum virðist bara ekki alls staðar hafa verið hleypt inn!
Og fáir staðir segja þá sögu betur en litla þorpið Beli, þar sem tíminn virðist ekki aðeins hafa hægt á sér, heldur stundum beinlínis staðið í stað
Þegar ferðast er um Cres verður fljótt ljóst að hér hefur náttúran haft töluvert meira að segja um skipulagið en mannfólkið.
Vegirnir liðast um grýttar hlíðar, fram hjá gömlum steinveggjum og litlum þyrpingum sem virðast hafa sprottið beint upp úr landslaginu. Sauðfé hefur um aldir verið hluti af mannlífinu og þurrhlaðnir steinveggir, sem liggja þvers og kruss, bera vitni um þolinmæði og eljusemi þeirra sem hér hafa búið.
Þorpið BELI
Hátt á eyjunni Cres stendur Beli, eitt elsta þorp eyjunnar.
Hér höfðu Rómverjar eitt sinn bækistöðvar og kölluðu staðinn Caput Insulae, höfuð eyjunnar. Enn má finna minjar um rómverska vegi og brú sem hefur staðið af sér ótal kynslóðir.
Sagt er að þorpið dragi nafn sitt af Béla IV, konungi Ungverjalands og Króatíu (1235-1270), sem á 13. öld þurfti að hafa hraðar hendur – og fætur – þegar Mongólar réðust inn í ríki hans. Eftir mikinn ósigur árið 1241 flúði konungurinn suður á bóginn, þar sem hann leitaði skjóls á ýmsum eyjum undan ströndinni.
Samkvæmt munnmælum kom hann meðal annars við í Beli og naut þar gestrisni heimamanna. Svo ánægðir eiga íbúarnir að hafa verið með þennan konunglega flóttamann að þeir nefndu þorpið eftir honum. Á einu húsanna má meira að segja finna steinhöggvið mannshöfuð sem sagt er að sé af konunginum sjálfum.
Hvort Béla hafi í raun komið til Beli er hins vegar önnur saga. Sagnfræðingar hafa ekki getað staðfest heimsóknina og hugsanlegt er að nafnið sé mun eldra.
En hver veit? Kannski stóð konungurinn einmitt hér, horfði yfir hafið og vonaði að Mongólarnir væru ekki sérlega hrifnir af sjóferðum. Það er að minnsta kosti freistandi að trúa góðri sögu þegar maður stendur á staðnum þar sem hún á að hafa gerst.
En það er ekki bara fjarlæg fortíð sem vekur forvitni hér.
Fyrir ekki svo löngu var Beli mun líflegra þorp en það er í dag. Börn gengu í skóla, fólk sinnti búskap og daglegt líf snerist um sauðfé, skógarhögg, ólífur og vínrækt. Í skógunum í kring voru litlar byggðir og fjárhirðabýli, tengd saman með stígum sem nú eru orðnir gönguleiðir ferðamanna.
Svo fór að fækka.
Á aðeins átta árum, frá 1945 til 1953, fækkaði íbúum Beli um meira en 70%. Sumir fluttu til Rijeka á meginlandinu eða til Ítalíu, aðrir héldu alla leið til Ameríku og Ástralíu. Það hlýtur að hafa verið stór ákvörðun að yfirgefa litla þorpið sitt og hefja nýtt líf, í Chicago jafnvel..
Árið 1980 lokaði skólinn í Beli. Það voru einfaldlega ekki nógu mörg börn eftir til að halda honum gangandi.
En byggðin lagðist ekki af. Ekki alveg.
Í dag búa þar um 40 manns og þótt margt hafi breyst heldur lífið áfram á sínum eigin takti. Og það er kannski einmitt það sem gerir Beli svo heillandi.
Norðan við Beli tekur við skógi vaxið landsvæði sem kemur mörgum á óvart. Cres er nefnilega ekki bara grýttar hlíðar og berangur, eins og ætla mætti þegar siglt er að eyjunni. Hér liggja gamlir stígar um eikar- og kastaníuskóga, fram hjá mosavöxnum steinveggjum, yfirgefnum húsum og leifum byggða sem skógurinn hefur smám saman tekið aftur í sína vörslu.
Í Tramuntana skóginum leynast meðal annars rústir þorpanna Važminež og Sveti Vid. Í því síðarnefnda bjuggu 25 manns árið 1945, en aðeins sextán árum síðar var þar ekki sála eftir.
Um þessa stíga hefur fólk gengið öldum saman, ekki sér til heilsubótar eða til að safna skrefum í snjallúrið, heldur til að komast milli bæja, sinna búfénaði og draga fram lífið.
Og þegar maður stendur við rústir gamallar byggingar vakna ótal spurningar. Hver bjó hér? Hvenær var síðast kveikt upp í arninum? Hvert fór fólkið? Og skyldi einhver afkomandi þess nú sitja hinum megin við Atlantshafið með gamla ljósmynd í höndunum, einmitt af þessu sama húsi?
Það er eitthvað heillandi við staði sem hafa verið yfirgefnir. Húsin standa auð, en sögurnar eru þarna enn, þótt enginn sé lengur til staðar til að segja þær. Það þarf bara að gefa sér tíma til að staldra við, líta í kringum sig og leyfa ímyndunaraflinu að fara aðeins út fyrir göngustíginn.
Stundum hafa staðirnir sem fólkið yfirgaf nefnilega frá meiru að segja en þeir sem enn iða af lífi.
En Cres á sér fleiri sögur. Til dæmis af gömmunum, þessum mikilfenglegu risum himinsins, sem eiga sér athvarf á eyjunni. Og svo er það stærsti bærinn, sem heitir auðvitað ekkert annað en Cres.
En það verður að bíða næsta pistils. Það liggur jú ekkert á – sérstaklega ekki á Cres!
Huldar slóðir Adríahafsins
Það sem heillar mig mest við staði eins og Cres er ekki endilega það sem stendur í ferðahandbókunum. Það eru útúrdúrarnir. Göngustígurinn sem hverfur fyrir horn eða endar skyndilega. Yfirgefna húsið sem vekur fleiri spurningar en það svarar. Lyktin af villtum kryddjurtum í sólinni og óvænt útsýni sem birtist þegar maður á síst von á því.
Stundum er nefnilega það áhugaverðasta á ferðalagi einmitt það sem maður vissi ekki að maður væri að leita að. Á Cres er nóg af slíku. Kannski er það þess vegna sem eyjan hefur varðveitt svo mikið af sínum sérstaka karakter. Hún hefur ekki verið að flýta sér að verða eitthvað annað en hún er.
Í lok ágúst 2027 ætla ég í gönguferð til Cres og Istríaskagans í Króatíu.
Þar ætlum við að feta gamlar slóðir, kanna lítil þorp, njóta náttúrunnar og kynnast sögunni sem leynist í landslaginu. Við ætlum auðvitað líka að gefa okkur tíma til að borða góðan mat, smakka vín úr héraðinu og njóta þess að vera á ferðalagi.
HÉR er hægt að forskrá sig í ferðina og fá forskráningarafslátt. Gildir út október. Forskráningarverð í TVÍBÝLI per mann: 359.000 kr. - Fullt verð: 399.000 kr.
.png)




Comments