Yfirgefni bærinn í Kalabríu

Á hæð yfir Angitola-dalnum standa rústir Rocca Angitola, miðaldabæjar sem eitt sinn iðaði af lífi en er nú löngu yfirgefinn. Hér leynast sögur af grískum goðsögnum, valdabaráttu Normanna, mannskæðum jarðskjálftum og samfélagi sem smám saman hvarf af sjónarsviðinu. Eftir standa rústirnar sem þögul vitni um viðburðaríka sögu þessa forvitnilega staðar.

Sagan nær langt aftur í aldir en bærinn var að mestu yfirgefinn áður en jarðskjálftinn mikli reið yfir Kalabríu árið 1783.
Goðsögnin um grísku borgina Krissa

Samkvæmt gamalli staðbundinni sögn stóð á þessum slóðum gríska borgin Krissa, sem sögð er hafa verið stofnuð árið 1184 f.Kr. af Krisosi (Crisso), bróður Panopeusar. Þeir voru báðir persónur úr grískri goðafræði og tengdust Fókishéraði í Grikklandi, þar sem einnig stóð forn borg að nafni Κρίσσα (Krissa).
Ekki hefur þó verið sannað að Crissa í Kalabríu hafi í raun verið til eða að Rocca Angitola hafi síðar risið á rústum hennar. Staðurinn varð engu að síður mikilvægt virki á miðöldum og gekk undir nafninu Rocca Angitola.
Þótt byggðin sé löngu horfin lifir nafnið Crissa áfram í sögum og örnefnum héraðsins, meðal annars í nafni bæjarins San Nicola da Crissa.
Rocca Niceforo – frá Býsantíumönnum til Normanna
Á miðöldum reis á hæðinni víggirt byggð sem nefndist Rocca Niceforo eða Rocca Nicefora. Uppruni hennar er rakinn til tíma Býsantíumanna, sem réðu yfir stórum hluta Kalabríu áður en Normannar lögðu héraðið undir sig á 11. öld.
Nafnið Niceforo er gjarnan tengt býsanska hershöfðingjanum Nikeforosi Fókasi eldri, sem barðist gegn Aröbum í Suður-Ítalíu á árunum 885–886. Ekki er þó fullvíst að virkið hafi verið nefnt eftir honum, því fleiri býsanskir valdamenn báru þetta nafn.

Þegar Normannar náðu yfirráðum í Kalabríu á 11. öld, tók við nýr kafli í sögu virkisins. Ruggero I (Roger I) lét styrkja varnir þess með turnum og víggirðingum og koma þar fyrir hermönnum.
Ruggero I (um 1031–1101) var normanskur aðalsmaður sem tók þátt í landvinningum Normanna í Kalabríu og á Sikiley.
Virkið gegndi áfram mikilvægu hlutverki á 12. öld. Staðsetningin var afar hentug til varnar. Frá hæðinni var hægt að fylgjast með ferðum manna um Angitola-dalinn og samgönguleiðum í átt að Týrrenahafsströndinni.
Rocca Niceforo varð jafnframt miðstöð fyrir byggðir á nærliggjandi svæðum. Þar á meðal voru byggðir sem tengdust síðar bæjunum Maierato, Filogaso og San Nicola da Crissa.
Á 15. öld tók nafnið Rocca Angitola smám saman við af eldra heitinu, kennt við Angitola-ána og dalinn fyrir neðan virkið.
Hvers vegna yfirgaf fólkið bæinn?
Á 18. öld hafði íbúum fækkað verulega. Ástæðurnar voru meðal annars:
Óheilnæmt loftslag í dalnum, einkum vegna stöðuvatnsins og mýrlendis við Angitola-ána, sem tengdist malaríu.
Ótti við ræningja og almennt óöryggi á svæðinu.
Fólksflótti til nærliggjandi bæja, einkum til Maierato og Pizzo.
Síðustu íbúarnir yfirgáfu byggðina á síðari hluta 18. aldar. Það merkilega er að þessi staðreynd er skjalfest.
Síðasta messan – 2. febrúar 1772
Þann dag komu prestur, lögbókari og nokkur vitni saman í Rocca Angitola til að ljúka formlega starfsemi sóknarinnar. Síðasta messan var haldin í kirkjunni Santa Maria della Cattolica. Að henni lokinni voru fáeinir munir kirkjunnar teknir saman og byggingunni lokað.
Lögbókarinn Giorgio Pirrone skráði atburðinn í opinbert skjal árið 1772, sem markaði í raun endalok samfélagsins. Þetta er því ekki aðeins þjóðsaga heldur frásögn sem byggir á varðveittum skjölum frá 1772.
Jarðskjálftinn mikli árið 1783 eyðilagði síðan stóran hluta þeirra bygginga sem enn stóðu.
Hvað er eftir í dag?
Í dag má meðal annars sjá leifar af virkisveggjum, hluta kastalaturns og gömlum kirkjubyggingum. Rústirnar standa hátt yfir dalnum og þaðan er stórkostlegt útsýni yfir Angitola-vatn og nærliggjandi sveitir.
Þarna er líka áhugaverð tenging við bæinn Pizzo Calabro. Kross frá 15. öld, þekktur sem Padre della Rocca, var fluttur frá Rocca Angitola og er varðveittur í San Giorgio Martire-kirkjunni í Pizzo. Það er aðalkirkjan í Pizzo.
Il Padre della Rocca – krossinn frá Rocca Angitola
Í Sant’Anna-kapellunni, sem listmálarinn Gregorio Murmura frá Pizzo skreytti árið 1970, hefur hinn verðmæti trékross, sem er 1,60 × 1,60 metrar að stærð, verið til sýnis og trúarlegrar tilbeiðslu í meira en hálfa öld. Samkvæmt hefð er hann nefndur Il Padre della Rocca – Faðirinn frá Rocca.
Rocca Angitola varð fyrir miklum skemmdum í jarðskjálfta árið 1659, þegar meðal annars aðalkirkja bæjarins hrundi.
Íbúarnir sem fluttu til Pizzo gleymdu aldrei krossinum sem þeim þótti afar vænt um. Honum var komið fyrir í lítilli kirkju, Chiesetta del Crocifisso, sem reist var undir lok 17. aldar. Sú kirkja var rifin árið 1939 til að rýma fyrir núverandi grunnskólabyggingu.
Frá árinu 1939 hefur krossinn verið varðveittur í San Giorgio-kirkjunni í Pizzo. Trúaðir biðjast þar fyrir frammi fyrir honum í þeirri trú að þeir njóti guðlegrar verndar.

Á morgnana segja sumir um leið og þeir gera krossmark:
„Dagurinn er langur eins og vilji þinn, ó Faðir frá Rocca!“
Þann 30. desember 1972 féll krossinn með óútskýrðum hætti niður á kirkjugest. Þrátt fyrir að hann væri mjög þungur varð maðurinn, samkvæmt frásögninni, ekki fyrir neinum meiðslum.
Það sem mér finnst auk þess mjög áhugavert við Rocca Angitola er að hér er hægt að segja sögu heils samfélags sem hvarf, en skildi eftir sig spor í nærliggjandi bæjum. Fólkið flutti, en trúarhefðirnar, kirkjugripirnir og minningarnar lifðu áfram.
Kalabria Coast to Coast – Gengið yfir ristina 2027
Í október 2026 gekk ég með góðum hópi Kalabria Coast to Coast, þvert yfir ristina á Kalabríu frá Jónahafi til Týrrenahafs, um fjallaþorp, skóga og söguslóðir utan alfaraleiða. Á síðasta göngudeginum lá leið okkar um Rocca Angitola, þar sem við kynntumst sögu þessa yfirgefnu bæjar.
Önnur gönguferð er fyrirhuguð haustið 2027. Langar þig með? Lýstu yfir áhuga með því að skrá þig og fáðu hnipp þegar ferðin fer í sölu.
Heimildir víðsvegar af veraldarvefnum m.a. hér:
Rocca Nicefora o d'Angitola
89843 Maierato, Province of Vibo Valentia, Italy
.png)



Comments