top of page

Útúrdúrar

Writer: Ágústa Sigrún Ágústsdóttir
Ágústa Sigrún Ágústsdóttir
Jul 11
3 min read

Updated: Oct 20

Með tíma til að taka útúrdúra og forvitnina að leiðarljósi verða oft til skemmtilegustu ævintýrin. Hið leynda finnst mér meira spennandi en hið ljósa og það á svo sannarlega líka við um ferðalög og áfangastaði.


Einhvern veginn fer forvitnin í fluggírinn þegar ég rekst á staði sem þarf að hafa svolítið fyrir því að komast á og lítið sem ekkert er að finna um á netinu eða í ferðahandbókum. Staði sem eru ekki endilega merktir á ferðamannakortum, þar sem engar biðraðir myndast og enginn hefur haft fyrir því að setja upp upplýsingaskilti. Því minna sem ég veit, þeim mun meira langar mig að vita.


Mér finnst svo enn skemmtilegra þegar sjá má hvernig sagan hefur farið höndum um hluti, hús og umhverfi. Þar sem tíminn hefur fengið að vinna sitt verk, án þess að nokkur hafi endilega haft áhyggjur af því að laga, fegra eða varðveita. Það er ávísun á að ímyndunaraflið komist á fleygiferð. Hver bjó hér? Hvað gekk á innan þessara veggja? Hvers vegna fór fólkið og hvað varð um það?


Yfirgefinn bíll út í vegarkanti og hvergi hræðu neins staðar að sjá er algerlega segull á athygli mína.


Eyðibýli, hálfhrunin hús, gömul óræð verkfæri, rústir, kofar með ólæstum dyrum og grónir stígar sem skyndilega enda. Allt þetta kveikir hjá mér löngun til að staldra við, skoða betur og reyna að lesa í söguna sem staðurinn hefur að geyma. Hinar ótroðnu slóðir sem hafa sofið eins og Þyrnirós og bíða þess kannski bara að einhver reki inn nefið.


Ég hef líka lært að það er ekki alltaf það sem stendur í ferðadagskránni sem verður eftirminnilegast. Stundum er það óvænt stopp, samtal við heimamann, undarlegur hlutur á ólíklegum stað eða smá útúrdúr sem enginn hafði gert ráð fyrir. Og einmitt þess vegna finnst mér mikilvægt að hafa svigrúm til að breyta út af áætlun þegar eitthvað áhugavert verður á vegi manns.


Ferðir utan alfaraleiða eru algjörlega minn tebolli og oft einmitt inntakið í þeim ferðum sem ég bý til. Ég hef gaman af því að finna staði sem hafa eitthvað sérstakt að segja, jafnvel þótt þeir láti lítið yfir sér við fyrstu sýn. Og mér finnst ekki síður gaman að koma farþegum mínum á óvart með einhverju sem þau áttu alls ekki von á og fær vonandi pláss í minningabankanum þeirra til frambúðar.


Ég er nefnilega þeirrar skoðunar að það þurfi hvorki að fara langt né sjá allt til að ferð verði áhugaverð. Stundum þarf bara að beygja út af aðalveginum, gefa sér tíma og leyfa forvitninni að ráða för.


Hér á Flandrr.is hef ég tekið saman ýmislegt af því sem mér hefur dottið í hug að setja saman í gegnum tíðina. Ferðir sem ég hef hannað, skipulagt og margar hverjar farið oftar en einu sinni með góðum hópi fólks. Sumar hugmyndirnar hafa orðið að veruleika, aðrar bíða enn eftir rétta tækifærinu. Ég kalla þetta Ferðabankann.


Ef þú ert með lítinn hóp, vinahóp, fjölskyldu eða félagsskap sem langar að ferðast saman, geturðu sótt hugmyndir í Ferðabankann. Þú getur líka svarað stuttri könnun og merkt við það sem vekur áhuga þinn.


Flandrr getur síðan hjálpað þér að móta ferð eftir þínum óskum og láta hugmyndina verða að veruleika í samstarfi við trausta íslenska ferðaskrifstofu.


Kíktu á þetta ferðahlaðborð, leyfðu hugmyndafluginu að fara aðeins af stað og sendu mér línu ef ég get lagt þér lið.


Og hver veit nema við finnum einhverja skemmtilega útúrdúra á leiðinni!


Ferðabankinn - Hugmyndabankinn - Ferðahlaðborð á www.flandrr.is
Ferðabankinn - Hugmyndabankinn - Ferðahlaðborð
Ágústa Sigrún í Lima dalnum í Toskana
Ágústa Sigrún á hengibrú í Lima dalnum í Toskana







Comments

Rated 0 out of 5 stars.
No ratings yet

Add a rating
Uppruninn
  • Facebook
  • Instagram

Flandrr ferðamiðstöð varð til sem umgjörð og samnefnari fyrir ferðablæti Ágústu Sigrúnar.

 

Í hinu alræmda kófi magnaðist ferðaþráin mjög mikið og Ágústa ákvað að bjóða landsmönnum í sýndarferðalög í gegnum Zoom. Heimsferðir stukku strax á þessa hugmynd og þegar upp var staðið höfðu orðið til 10 sýndarferðalög og yfir 10.000 manns höfðu tekið þátt.

​

Í framhaldinu fannst henni eðlilegt að útfæra allan þann fróðleik sem hún hafði bætt við sig með einhverjum hætti og pistlaskrifin hófust. Í kjölfarið urðu til hugmyndir að ferðum sem mótast af hennar áhugasviði sem eru hreyfing, menning, tónlist og léttleiki.  

 

Íslensk ferðaskrifstofa selur ferðirnar og sér um bókanir, innheimtu, skilmála og tryggingar skv. ferðakskrifstofuleyfi  gefnu út af Ferðamálastofu.​

Flandrr ferðamiðstöð

© 2023 Flandrr. Website by CC Website Design.

bottom of page