Óperuperlur Norður-Ítalíu – frá Verdi til Verona
Það verður aldrei langt í stórstjörnurnar í þessari ferð. Við kynnumst ekki aðeins tónlistinni heldur líka fólkinu, stöðunum og sögunum á bak við hana.
Fyrstu dagana er Giuseppe Verdi, eitt áhrifamesta tónskáld óperusögunnar, í aðalhlutverki. Við heimsækjum fæðingarstað hans og þá staði sem mótuðu líf hans og feril, kynnumst sópransöngkonunar Renata Tebaldi og höldum til Modena, heimaborgar Luciano Pavarotti og Mirella Freni, sem ólust þar upp og urðu síðar meðal skærustu stjarna óperuheimsins.
Þaðan færum við okkur að Gardavatni, þar sem við dveljum í fjórar nætur í bænum Garda. Við siglum um vatnið, heimsækjum Isola del Garda og Sirmione, göngum til Bardolino, förum í dásamlega vínsmökkun og gefum okkur líka tíma til að njóta lífsins við vatnið.
.png)
Maria Callas tengist bæði Gardavatni og Verona. Hún átti hús í Sirmione ásamt eiginmanni sínum og dvaldi þar reglulega. Við göngum á hennar slóðum og kynnumst betur lífi hennar og þeim árum sem hún átti á þessum slóðum.
Frá Gardavatni höldum við til Verona. Þar bjó Maria Callas um árabil og þar steig hún sín fyrstu skref á ítölsku óperusviði. Við fetum í fótspor hennar um borgina, sjáum staði sem tengjast einkalífi hennar og ferli og kynnumst um leið ríkri tónlistarsögu Verona.
Hápunkturinn bíður okkar síðasta kvöldið þegar við göngum inn í hið tæplega 2.000 ára gamla Arena di Verona og upplifum AIDA eftir Giuseppe Verdi undir berum himni – á einu stórbrotnasta óperusviði heims.
Þar lokast hringurinn. Frá fæðingarslóðum Verdi liggur leiðin í Arena di Verona, þar sem við kveðjum Ítalíu með tónlist hans ómandi um Arenuna – á sama sviði og Maria Callas steig sín fyrstu stóru skref á Ítalíu.
Ferð fyrir tónlistarunnendur sem vilja ekki aðeins hlusta á óperur heldur kynnast fólkinu, stöðunum og sögunum á bak við tónlistina – og njóta um leið alls þess besta sem Norður-Ítalía hefur upp á að bjóða
HÉR er hægt að forskrá sig og tryggja sér forskráningarverð

Ferðin verður í sölu hjá Heimsferðurm sem sér um bókanir, innheimtu, skilmála og tryggingar skv. ferðakskrifstofuleyfi nr. 2022-028 gefnu út af Ferðamálastofu.
Fararstjóri er Ágústa Sigrún Ágústsdóttir. Hún hefur mannauðsstjórnun og markþjálfun að aðalstarfi en ræturnar hennar eru í söng og fararstjórn sem hún sinnir jafnhliða öðrum störfum.
Ágústa Sigrún er menntaður leiðsögumaður frá Leiðsöguskóla Íslands og hefur unnið við fararstjórn á Ítalíu, Króatíu og Slóveníu yfir 20 ár og hún hefur einnig starfað sem leiðsögumaður á Íslandi fyrir ítölsku- og enskumælandi ferðamönnum um Ísland.
Ágústa Sigrún heldur úti ferðabloggi undir nafninu Flandrr ferðamiðstöð þar sem hún varpar upp áhugaverðum vinklum um ýmislegt tengt ferðalögum: www.flandrr.is
Umsagnir um fyrri tónlistarferðir í fararstjórn Ágústu Sigrúnar
„Ferðin til Gardavatns og Verona með Ágústu Sigrúnu í fylkingarbrjósti var framúrskarandi og fararstjórnin réð mestu þar um."
„Að upplifa óperusýningu í rómversku hringleikahúsi er einstök upplifun."
„Dásamleg ferð í alla staði❤️Farastjórinn frábær og hefur ráð við öllu og kemur með fullt af óvæntu í ferðinni. Ég er til í næstu ferð💞☀️😘"
„AIDA! Isola del Garda, Sirmione…Bardolino, og ógleymanleg stund í litlu kirkjunni San Zeno 🙏🏻 Hotelið Conca d’Oro frábært ! 💪og samsöngurinn síðasta kvöldið ógleymanlegt !💃🏻"
„Óperusýningin Aida. Gönguferðin til Bardolino, siglingin út í eyjuna del Garda.Malcesine. Dvölin í bænum Garda var ljúf og notaleg og náttúrufegurðin við vatnið er einstök."
„Aida - Frábærir ferðafélagar - Óaðfinnanleg fararstjórn, 5* á Ágústu."
„Framúrskarandi fararstjóri, frábær staðsetning og hótel við Garda, skoðunarferðir með bát, til annarra bæja við Gardavatnið."
„Ferð í Arena di Verona á óperuna. Sameiginlegar máltíðir. Ferðin Garda eyju. Callas skoðunargangan í Verona. Strandferðin í Sirmione var æði, og vinsmökkunarferðin einnig. Dvölin í Garda var æðisleg."

· 12 – 14. júní: Modena (2 nætur) HOTEL REAL FINI BAIA DEL RE / 4*
· 14.– 18. júní: Garda við Gardavatn (4 nætur) HOTEL CONCA D'ORO / 3*
· 18.– 20. júní: Verona (2 nætur) HOTEL SAN PIETRO / 4*
Hér er facebook hópur fyrir áhugasama
HÉR er hægt að forskrá sig og tryggja sér forskráningarverð
Innifalið:
Flug með Neos Air í leiguflugi Heimsferða frá Keflavík til Verona.
Ein innrituð 20 kg taska ásamt handtösku.
Gisting á 4* hóteli við Modena í 2 nætur með morgunverði.
Gisting á 4* hóteli í Verona í 2 nætur með morgunverði.
Gisting á 3* hóteli í Garda í 4 nætur með morgunverði.
Miði í góð sæti á AIDA þann 19. júní.
Aðgangur í Isola del Garda eyjuna og drykkur.
5 málsverðir.
Vínsmökkun með léttum réttum.
Allur akstur og siglingar sem getið er um í ferðalýsingu.
Leiðsögn á íslensku og staðarleiðsögn eins og við á.
Íslensk fararstjórn.
Ekki innifalið: Gistináttaskattur á hótelum. Þjórfé eins og við á hverju sinni. Annað en það sem er tiltekið í ferðalýsingu.
Dagur 1 – Komudagur - Modena – LAU 12. júní
Flogið er til Verona með Neos Air í leiguflugi Heimsferða. Lent er kl. 14:00 og þaðan höldum við með rútu til Modena, en aksturinn tekur um klukkustund.
Við komum okkur fyrir á Hotel Real Fini Baia del Reog höfum það notalegt eftir ferðalag dagsins.
Um kvöldið borðum við saman þriggja rétta kvöldverð á hótelinu. Kvöldverður er innifalinn í verði ferðar.
Dagur 2 – Á slóðum Verdis og Tebaldi – SUN 13. Júní
Í dag stígum við inn í hjarta ítalskrar óperusögu og fetum í fótspor Giuseppe Verdi, eins áhrifamesta tónskálds allra tíma. Við hefjum daginn í Roncole Verdi, þar sem hann fæddist árið 1813, heimsækjum fæðingarheimili hans og litlu kirkjuna þar sem hann lék ungur á orgel.
Þaðan liggur leiðin til Busseto, bæjarins sem gegndi lykilhlutverki í lífi og ferli Verdi. Þar skoðum við Casa Barezzi, þar sem hinn ungi Verdi fékk tækifæri til að þroska hæfileika sína og þar sem kynntist Margheritu Barezzi, sem síðar varð eiginkona hans. Einnig skoðum við leikhúsið Teatro Giuseppe Verdi ef tími vinnst til.
Við heimsækjum einnig Museo Renata Tebaldi, tileinkað einni dáðustu sópransöngkonu 20. aldarinnar og einum fremsta túlkanda verka Verdi. Þar má sjá sviðsbúninga, ljósmyndir og persónulega muni úr glæsilegum ferli hennar.
Dagur þar sem saga, tónlist og persónur gullaldar ítölsku óperunnar lifna við.

Dagur 3 – Pavarotti og Freni í Modena – MÁN 14. júní
Eftir morgunverð kveðjum við hótelið og höldum inn í Modena, heimaborg tveggja af skærustu stjörnum ítalskrar óperu, Luciano Pavarotti og Mirellu Freni. Þau ólust upp í sömu borg, þekktust frá unga aldri og áttu síðar eftir að syngja saman á helstu óperusviðum heims.
Við heimsækjum Casa Museo Luciano Pavarotti, heimili tenórsins síðustu æviárin. Þar fáum við persónulega innsýn í líf hans og feril í gegnum sviðsbúninga, ljósmyndir, verðlaun og persónulega muni. Við skoðum einnig Teatro Comunale Pavarotti-Freni, sem í dag ber nöfn beggja þessara ástsælu óperusöngvara.
Síðdegis höldum við norður að Gardavatni og komum okkur fyrir á Hotel Conca d'Oro í bænum Garda. Hótelið stendur fallega við vatnið og af þakveröndinni er glæsilegt útsýni yfir Gardavatn. Um kvöldið borðum við saman á hótelinu. Kvöldverður er innifalinn í verði ferðar.
.png)
Dagur 4 – Bærinn okkar Garda og nágrannabærinn Bardolino – ÞRI 15. júní
Eftir morgunverð, um kl. 09:00, leggjum við af stað gangandi í kynnisferð um Garda, bæinn sem verður okkar heimili næstu daga. Við röltum um bæinn og meðfram vatninu, kynnumst sögu hans og umhverfi og fáum yfirsýn yfir helstu gönguleiðir í nágrenninu. Einnig verður farið yfir þá tónleika og tónlistarviðburði sem í boði verða meðan á dvöl okkar stendur.
Fallegir göngustígar liggja meðfram vatnsbakkanum og þeir sem vilja lengri göngu geta rölt út á tangann sem rammar inn víkina við Garda. Fyrir þá sem vilja aðeins meiri hreyfingu er einnig hægt að ganga upp á höfðann, þar sem undurfagurt útsýni yfir vatnið og nágrennið bíður okkar.
Eftir hádegi höldum við til Bardolino, sem er meðal annars þekkt fyrir vín- og ólífurækt. Þangað liggur falleg gönguleið meðfram vatninu og tekur gangan um 45–60 mínútur. Við kynnumst notalegum miðbænum með kaffihúsum, veitingastöðum, litlum verslunum og líflegu mannlífi og skoðum tvær af elstu kirkjum svæðisins – önnur þeirra er sannkallaður falinn demantur.
Að göngunni lokinni bíður okkar vínsmökkun þar sem við kynnumst vínum svæðisins. Hægt verður að kaupa vín sem framleiðandinn sendir síðan á hótelið fyrir okkur.
Eftir smökkunina ræður hver sínum heimahögum. Hægt er að taka strætó eða leigubíl aftur til Garda, sigla til baka yfir vatnið eða einfaldlega rölta sömu fallegu leið heim á hótel.
• Lesefni: https://www.flandrr.is/post/garda-vid-garda
.png)
Dagur 5 – Isola del Garda – MIÐ 16. júní
Í dag siglum við út í Isola del Garda, stærstu eyju Gardavatns og sannkallaðan ævintýraheim. Þar blasir við glæsileg villa í nýgotneskum feneyskum stíl, umkringd gróskumiklum görðum og með stórkostlegu útsýni yfir vatnið.
Við fáum leiðsögn um eyjuna, kynnumst litríkri sögu hennar og göngum um fallega garðana þar sem ítalskur og enskur garðstíll mætast. Eyjan er enn í einkaeigu fjölskyldunnar sem þar býr og heimsókn þangað gefur okkur einstakt tækifæri til að kynnast einum sérstæðasta stað Gardavatns.
Við dveljum á eyjunni fram yfir hádegi og ljúkum heimsókninni á notalegum nótum með fordrykk áður en við siglum aftur til Garda. Síðdegið er frjálst.
• Lesefni: https://www.flandrr.is/post/sigmar-og-eyjan-garda
.jpg)
Dagur 6 – Sigling til Sirmione og þjóðhátíðardagur – FIM 17. júní
Við siglum frá Garda til Sirmione um morguninn og njótum útsýnisins yfir Gardavatnið á leiðinni. Sirmione teygir sig út á mjóum tanga í vatnið og er einn þekktasti og mest heimsótti bærinn við Gardavatn.
Við göngum um sögulegan bæinn og kynnumst sögu hans, en Maria Callas verður aldrei langt undan. Hún bjó um árabil í Sirmione ásamt eiginmanni sínum Giovanni Battista Meneghini og við göngum að villunni þar sem þau áttu heimili. Yst á tanganum skoðum við Grotte di Catullo, stórbrotnar rómverskar minjar og leifar einnar stærstu rómversku villu sem varðveist hefur á Norður-Ítalíu.
Í tilefni þjóðhátíðardags Íslendinga borðum við saman hádegisverð á fallegum veitingastað í Sirmione. Málsverður er innifalinn í verði ferðar en drykkir ekki.
Eftir hádegi gefst tími til að njóta stemningarinnar, rölta um þröngar göturnar og auðvitað smakka ítalskan gelato – hér eru ísbúðir nánast á hverju götuhorni. Þeir sem vilja geta tekið með sér sundföt og handklæði og prófað eina af þekktustu ströndum Sirmione.
Síðdegis siglum við aftur heim til Garda eftir dag þar sem saga, tónlist og sumarlíf við Gardavatn fléttast skemmtilega saman.
• Lesefni: https://www.flandrr.is/post/catullo-sirmione
.jpg)
Dagur 7 – Borghetto sul Mincio og Verona – FÖS 18. júní
Hinn vikulegi útimarkaður í Garda setur svip sinn á bæinn þennan morgun og upplagt er að rölta um markaðinn og gera góð kaup áður en við kveðjum Gardavatnið – að minnsta kosti í bili.
Um hádegi skráum við okkur út af hótelinu og höldum í átt að Verona. Á leiðinni stoppum við í Borghetto sul Mincio, einstaklega fallegum litlum bæ við ána Mincio. Þar gefst tími til að rölta um þröngar götur, skoða gömlu vatnsmyllurnar og njóta hádegisverðar í þessu notalega umhverfi.
Hádegisverður í Borghetto.
Við komum á Hotel San Pietro í Verona um kl. 15:00 og það sem eftir lifir dags er frjálst.
Um kvöldið gefst þeim sem vilja kostur á að fara í Arena di Verona og sjá glæsilega ballettsýningu sem byggir á sögu Rómeós og Júlíu – vel við hæfi í borginni þar sem ein frægasta ástarsaga heims er sögð hafa gerst.
.jpg)
Dagur 8 – Verona – Maria Callas, Mozart og AIDA í Arenunni - LAU 19. júní
Í dag kynnumst við Verona í gegnum tónlistina. Með sérfróðum staðarleiðsögumanni göngum við um elsta hluta borgarinnar, sem er á heimsminjaskrá UNESCO, og fetum meðal annars í fótspor Mariu Callas. Við heimsækjum staði sem tengjast árunum sem hún bjó í Verona, hjónabandi hennar og ferlinum sem átti eftir að gera hana að einni mestu óperustjörnu 20. aldarinnar.
Verona tengist fleiri stórmennum tónlistarsögunnar og við kynnumst meðal annars sögu Mozarts í borginni og öðrum tónlistarmönnum sem hér hafa dvalið og starfað. Inn á milli njótum við helstu kennileita gamla bæjarins, heyrum söguna af Rómeó og Júlíu og kynnumst mannlífinu í þessari fögru borg ástarinnar. Gönguferðin tekur um tvær klukkustundir og allir fá hvíslur svo auðvelt sé að fylgjast með frásögninni.
Að göngunni lokinni gefst frjáls tími til að njóta Verona áður en við hittumst aftur og borðum saman skammt frá Arena di Verona.
Um kvöldið bíður svo einn af hápunktum ferðarinnar – AIDA eftir Giuseppe Verdi í Arena di Verona. Hið tæplega 2.000 ára gamla rómverska hringleikahús breytist í eitt stórbrotnasta óperusvið heims. Sýningin hefst kl. 21:15 en við komum okkur tímanlega fyrir í Arenunni og njótum stemningarinnar áður en sýning hefst.
• Lesefni: https://www.flandrr.is/post/trulofunarhringur-maria-callas
• Lesefni: https://www.flandrr.is/post/leikhus-og-hringleikahus
.jpg)
Dagur 9 – Brottför – SUN 20. júní
Við skráum okkur út af hótelinu kl. 11:00 og kveðjum Verona eftir viðburðaríka daga í heimi ítalskrar tónlistar og óperu. Þaðan höldum við með rútu til Feneyja og áfram á Marco Polo-flugvöll, þaðan sem flogið er heim til Íslands með Icelandair.
.jpg)
.png)